Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Flókið að tilkynnna um tjón vegna refa

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.7.2026 | 8:42 Flókið að tilkynnna um tjón vegna refa Þrátt fyrir fáar tilkynningar þess efnis er tjón af völdum refa töluvert mikið í sveitum landsins. mbl.is/Jónas Erlendsson Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Æðarbændur verða mjög reglulega fyrir tjóni af völdum refa en hvatinn fyrir þá til að tilkynna um slíkt tjón er enginn og auk þess er það flókið. Þetta segir Margrét Rögnvaldsdóttir, æðarbóndi á Harðbaki II á Melrakkasléttu. Greint var frá því í Morgunblaðinu á laugardag að Náttúruverndarstofnun teldi forsendur refaveiða hér á landi brostnar enda væru tilkynningar um tjón af völdum þeirra mjög fáar. Margrét segir fáar tilkynningar ekki gefa rétta mynd af stöðunni. Frétt af mbl.is Forsendur fyrir refaveiðum brostnar „Náttúruverndarstofnun vill fá tjón tilkynnt til sín en það hefur aldrei verið neinn hvati til að tilkynna þetta fyrir æðarbændur og ekki heldur fyrir sauðfjárbændur. Fáar tilkynningar þýða alls ekki að tjónið hafi ekki orðið, það þýðir bara að þeim hafi ekki borist neinar tilkynningar um tjónið,“ segir Margrét í samtali við Morgunblaðið. Margrét hefur sjálf orðið fyrir miklu tjóni af völdum refa í sumar, og einnig í fyrra, og veit til þess að margir æðarbændur hafi sömu sögu að segja, þótt þeir hafi fáir tilkynnt það tjón sem þeir hafa orðið fyrir. „Það eru mjög margir sem hafa ekki tilkynnt um tjón þar sem þeir sjá ekki tilgang með því að leggja vinnu í að taka þetta saman. Þetta er eitt af því sem við þurfum að bæta úr fyrst Náttúruverndarstofnun ætlar að fara að gera eitthvað með þessar tölur,“ segir Margrét. Þrátt fyrir að einhverjir bændur vilji mögulega tilkynna tjón af völdum refa er ekki þar með sagt að þeir geri það, enda er það flókið og ekki mjög aðgengilegt ferli. „Þeir eru ekki með nein eyðublöð eða neitt til þess að tilkynna þetta inn. Þú getur ekki farið á heimasíðuna hjá þeim og tilkynnt þetta þar. Samkvæmt lögum á maður að tilkynna um tjónið til sveitarfélagsins sem tilkynnir svo Náttúruverndarstofnun um það. Maður veit náttúrulega ekki hvort þetta fari í réttan farveg. Það er bara ekki fyrir hendi hvernig eigi að tilkynna tjónið og hvert.“ Margrét er einn sex æðarbænda á austanverðri Melrakkasléttu sem sendu Norðurþingi erindi fyrr í sumar þar sem lýst var yfir óánægju með refaveiðar á svæðinu enda hefðu refirnir valdið miklu tjóni í æðarvarpi bændanna. Margrét segir að bændurnir á Melrakkasléttunni hafi ákveðið að taka saman tjónið og tilkynna það sameiginlega til bæði Norðurþings og Náttúruverndarstofnunar strax eftir verslunarmannahelgina. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kalman dásamaður í The New Yorker Flókið að tilkynnna um tjón vegna refa Elsti fótboltamaðurinn skoraði í fyrsta sinn í fjögur ár Hefur trú á því að skynsemi ráði för í haust „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Áfengispolkinn: Fram og til baka Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mistök Vísis og þrettán daga þögn Feðgar greindust báðir með hvítblæði Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar Bar Jón Pál til grafar Ekki verra veður á morgun en í dag Skúli Tómas aftur á Landspítalann Svíar herða skilyrði vegna dvalarleyfa Innbrot í fjölbýlishús til rannsóknar Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Nýjast á mbl.is » Kalman dásamaður í The New Yorker Flókið að tilkynnna um tjón vegna refa Elsti fótboltamaðurinn skoraði í fyrsta sinn í fjögur ár Hefur trú á því að skynsemi ráði för í haust „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Áfengispolkinn: Fram og til baka Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Feðgar greindust báðir með hvítblæði Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar Bar Jón Pál til grafar Ekki verra veður á morgun en í dag Skúli Tómas aftur á Landspítalann Svíar herða skilyrði vegna dvalarleyfa Innbrot í fjölbýlishús til rannsóknar Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp

Share this article