Olíuverð hefur fallið um meira en 7% það sem af er degi eftir að Bandaríkin gerðu hlé á árásum á Íran aðra nóttina í röð. Sáttasemjarar reyna nú að koma í veg fyrir að átökin blossi upp á ný eftir tveggja vikna gagnkvæmar árásir. Þetta kemur fram í frétt Financial Times. Tíðindin hafa aukið vonir um bráðabirgðasamkomulag sem gæti dregið úr spennu og greitt fyrir skipaumferð um Hormússund á ný. Verð á Brent-hráolíu stendur nú í um 85 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð. Verðið náði 100 dölum á tunnu í síðustu viku, í fyrsta sinn í tvo mánuði, eftir að átökin röskuðu olíuflutningum um sundið. Bandaríkjaher hefur ekki greint frá loftárásum á Íran frá því á fimmtudagsnótt og Íranar hafa ekki ráðist á bandarískar herstöðvar á svæðinu frá því á föstudag. Bandaríska flotabannið á íranskar hafnir er þó enn í gildi. Sendinefnd frá Óman ræddi við Írana í Teheran um helgina um bráðabirgðasamkomulag um örugga skipaumferð um Hormússund, meðal annars um skiptingu umferðar milli suðurgangsins við strönd Óman og íranskra hafsvæða. Mike Waltz, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði Trump forseta gefa viðræðunum svigrúm áður en ákveðið yrði hvort árásir hæfust á ný. Íranar sögðu viðræðurnar hafa verið uppbyggilegar en að umferð um sundið hefði enn ekki breyst. Gögn Kpler sýndu að færri en tíu vöruflutningaskip fóru daglega um Hormússund um helgina. Saul Kavonic hjá MST Marquee sagði líklegt að umferðin myndi aukast hægt og aðeins að hluta, þar sem útgerðir vildu meiri vissu um öryggi skipa sinna.