Bandarískar hersveitir gerðu nýjar árásir á Íran í dag í hefndarskyni fyrir árásir Írana á þrjú flutningaskip sem sigldu um Hormússund undanfarna daga, samkvæmt bandarísku herstjórninni í Mið-Austurlöndum (CENTCOM). Wall Street Journal segir frá. Árásir Írana á skipin á alþjóðlegu siglingaleiðinni, þar sem 20% af olíu heimsins fóru áður um, voru „tilefnislausar, hættulegar og skýrt brot á vopnahléinu,“ sagði í yfirlýsingu CENTCOM. Íranskir fjölmiðlar greindu frá sprengingum í Sirik, Qeshm og Bandar Abbas, stöðum í eða nærri sundinu. Árásirnar beindust að loftvörnum, strandgæslubúnaði, loftvarnar- og stýriflaugastöðum, auk drónaskotpalla og hafnarmannvirkja, samkvæmt háttsettum bandarískum embættismanni. Árásirnar komu skömmu eftir að ríkisstjórn Trumps afturkallaði leyfi sem heimilaði Íran að selja olíu á opnum markaði. Með því var helsti efnahagslegi ávinningur Íran af tímabundnu friðarsamkomulagi við Bandaríkin felldur niður, og hætta skapaðist á að samkomulagið færi í uppnám eftir daga af átökum við Hormússund.