Innlent | Morgunblaðið | 27.7.2026 | 8:00 Aðsend grein: Áfengispolkinn: Fram og til baka Ari Trausti Guðmundsson mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Ef pantaðar eru fimm flöskur af góðu borðvíni hjá ÁTVR og þær sóttar í Ríkið (t.d. Hugrúnu) eru engin lög eða reglur brotnar. Sé það gert með sama hætti á vefnum og sótt í Smáríkið eru seljandi og neytandi á gráu svæði. Seljandinn hefur ekki formlegt áfengissöluleyfi. Að öllu óbreyttu hefur sú meginregla nú verið brotin að uppspretta verslunar áfengis til almennings sé ríkisrekin sem milliliður á milli heildsala og leyfisskyldra söluaðila, svo sem veitingahúsa og bara. Þetta limbó er enn látið afskiptalaust af opinberri hálfu. Horfið er viljandi frá meginstefnu um að ríkið, sem heldur m.a. um heilsu- og öryggismálefni landsmanna, véli um vöru sem með 100% vissu hefur valdið margvíslegu heilsutjóni og landsþekktum vanda öldum saman. Áfengi er löngu komið til að vera „Það á að vera frjálst val sérhvers einstaklings á lögaldri að drekka áfengi og allir sem vilja selja eiga að hafa jafnan rétt.“ Þannig, einfölduð og samandregin, hljóðar mantra margra hér á landi. Allt frá fólki í næsta húsi, heildsölum, eigendum veitingahúsa og matvælasölukeðja til stjórnmálamanna og hagspekinga eða fjárfesta. Ábyrgð þessa fólks og þeirra sem andmæla, auk stjórnvalda, sem ákvarða lög og reglur er lúta að áfengi, er öllum ljós, líka almenningi sem ræður miklu um fyrirkomulagið og alla meðferð þessa aldagamla fylgidrykkjar okkar. Hann er alls ekki að hverfa úr samfélagi okkar, nú frekar en fyrrum. Sala hans er ekki undanskilin samfélagsábyrgð, ekki fremur en ábyrgð einstaklingsins. Alvarleg lýðheilsustaða Alllengi hefur verið talið að einn af hverjum tíu íbúum landsins berjist við mismunandi afleiðingar of mikillar áfengisneyslu og tjón hennar vegna geti numið tugum milljarða á ári, allt frá áfengistengdum kvillum og vinnutapi til tjóns á eignum fólks, og þá án þess að mannslát, rakin til áfengisneyslu, séu höfð með í útreikningum. Vegna þessa og þaulrannsakaðra staðreynda um áhrif etýlalkóhóls (vínanda) á mannslíkamann, og vegna aðvarana t.d. OECD, um langtímasamhengi neyslu og aðgengis að alkóhóldrykkju, er afar stór hópur andsnúinn þessari möntru og tilraunum til að fjölga sölustöðum og halda alkóhóli að fólki með auglýsingum. Áfram fjölgar sölustöðum Nú eru 24 netverslanir virkar, 51 útsölustaður ÁTVR og um 1.200 staðir með vínveitingaleyfi. Neyslan í lítrum vínanda per íbúa eldri en 15 ára hefur aukist úr 4,5 l árið 1984, í 7,5 l árið 2016, 8,1 l 2022 og loks í 7,6 l árið 2024. Ársneysla ólíkra áfengistegunda liggur á bilinu 24 til 25 milljón lítrar, sé litið til vökvamagns. Í útreikninga vantar neyslu á smyglvarningi og heimabruggi, en auk þess eru ekki til tölur um hvernig tollaður innflutningur í sölueiningum skiptist á milli bjórs, léttvíns og sterks víns. Minna verður á að vínandamagnið er ekki það eina sem ber að líta á. Innbyrt magn í lítrum vökva skiptir máli. Ýmis önnur efni í áfengi geta varðað heilsu við ofneyslu, t.d. kornprótín og kolvetni í miklum mæli, jafnvel snefilefni: litarefni, súlfíð eða óæskileg efni til varnar skordýrum eða sveppum. Mikið vökvamagn, innbyrt á skömmum tíma, getur valdið sérlegu álagi á líkamann. Er mark takandi? Í hópi þeirra sem andæfa óheftri áfengissölu eru bæði þau sem ekki drekka áfengi og aðrir sem gera það í einhvers konar hófi, líkt og á við um ýmsar matvörur sem eru mishollar. Halda því fram að það beri að taka mark á faraldsfræðirannsóknum og lífeðlisfræðilegum könnunum á efnaverkunum alkóhóls. Taka mark á sérfræðingum í læknis- og erfðafræðum, t.d. Valgerði Rúnarsdóttur (lyf- og fíknilækningar), Kára Stefánssyni (taugalækningar og erfðafræði) og Höllu Þorvaldsdóttur framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins eða talsmönnum Hjartaverndar. Taka mark á forsvarendum SÁÁ og fjölda þeirra sem hafa beina reynslu af áhrifum áfengis og annarra vímuefna. Taka mark á aukinni áfengisneyslu 8.-10. bekkinga milli ára, 2022-25. Annað er óábyrgt. Forvarnir innibera meira en fræðslu Mín afstaða gegn fjölgun sölustaða með nýhafinni hjáleið, í gegnum sjálfgefin vefverslunar-aflátsbréf, er m.a. grunduð á setu á sex þingum Alþingis. Þar fór drjúgur tími árlega í andóf gegn riddurum „frjálsrar áfengissölu í nafni lýðræðis og frelsis“ sem árlega geystust fram í nafni baráttu gegn forræðishyggju. Í þeirra huga á hugtakið að virka sem skotheld „rök“ fyrir sem fjölþættustu aðgengi að áfengi. Samt er alkunna að allar forvarnir í lýðheilsumálum, eða t.d. vegna umferðaröryggis, falla undir forræðishyggju en einnig samfélagsábyrgð. Tilvísunin er þess vegna innantóm. Við öll verðum að viðurkenna vel grundaðar, sanngjarnar og langreyndar forvarnir frammi fyrir ýmiss konar áskorunum er varða lýðheilsu, hvort sem er t.d. sykursýki, krabbameinum, geðrænum vanda eða veilum í blóðrás og hjarta. Fræðsla um áfengi, eðli þess, notkun, hóf, hættur, meðferð o.s.frv. er mjög mikilvægt verkefni. Sölustýring og skil á fé til sameiginlegra meðferðarúrræða eru jafn mikilvæg. Núverandi horfur á áfengissölu og hvað aðgengi að áfengi varðar eru ekki almenningi til heilla. Ari Trausti Guðmundsson, náttúruvísindamaður og rithöfundur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Myndskeið: Sveindís klobbaði markvörðinn Aðsend grein: Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Aðsend grein: Áfengispolkinn: Fram og til baka Vilborg Arna: „Áhuginn kviknaði frekar seint“ Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Nýtt innflutningsgjald í bígerð Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Bar Jón Pál til grafar Ekki verra veður á morgun en í dag Skúli Tómas aftur á Landspítalann Svíar herða skilyrði vegna dvalarleyfa Ekki hin dæmigerða K-poppsöngkona Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Nýjast á mbl.is » „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Myndskeið: Sveindís klobbaði markvörðinn Aðsend grein: Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Aðsend grein: Áfengispolkinn: Fram og til baka Vilborg Arna: „Áhuginn kviknaði frekar seint“ Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikill styrkur í sjálfstæðinu fyrir Ísland Hægt að skipta á honum og heilu liði Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Þegar Ísland sótti ekki um Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Bar Jón Pál til grafar Ekki verra veður á morgun en í dag Skúli Tómas aftur á Landspítalann Svíar herða skilyrði vegna dvalarleyfa Ekki hin dæmigerða K-poppsöngkona Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp