Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Áfengið velkomið á leikvöngum Reykjavíkur

  • What: The Reykjavik City Council has changed its alcohol regulations, now allowing alcohol sales at sports events under certain conditions.
  • Impact: The changes aim to create a clear and fair regulatory framework while protecting children and young people.
Read Full Article →

Borgarráð Reykjavíkur hefur gert breytingar á áfengisreglum sínum. Áfengissala á íþróttaviðburðum er nú leyfð að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Á síðasta sumri stoppaði lögregla áfengissölu á nokkrum leikjum í Bestu deild karla í fótbolta. Nú lítur út fyrir að slíkt sé úr sögunni. „Með breytingunni er markmiðið að skapa skýrt, sanngjarnt og gagnsætt regluverk þar sem gætt er meðalhófs. Jafnframt er breytingunni ætla að tryggja ábyrga, skýra og vel útfærða umgjörð um áfengissölu á íþróttaviðburðum til að verja börn og ungmenni í samræmi við forvarnarsjónarmið.“ Breytingunum er ætlað að koma í veg fyrir ófyrirsjáanleika og ójafnræði íþróttafélaga í Reykjavík. Sum þeirra hafa varanlegt rekstrarleyfi í veitingasölu sem hefur verið nýtt til sölu á leikjum. Þá hefur borgarráð veitt undanþágur fyrir staka viðburði. Nú sæki félög sem hafa ekki rekstrarleyfi um leyfi fyrir veitingastaði í flokki tvö, en það er ætlað fyrir umfangslitla áfengisveitingastaði. Tillaga stýrihópsins tekur mið af þeirri þróun sem hefur verið í framkvæmd síðustu ár.

Share this article