Innlent | Sunnudagsblað | 25.7.2026 | 8:00 Úr ólíkum áttum: Spara með hraða Ögmundur Jónasson mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Pistill Ögmundar Jónassonar úr Sunnudagsblaðinu Hratt eða hægt, það var spurningin. Ég kom akandi austan úr sveitum á leið til Reykjavíkur rétt fyrir sveitarstjórnarkosningarnar síðastliðið vor. Í útvarpi voru umræðuþættir um sveitarstjórnarmál. Það vildi svo til að í þann mund sem ég lagði í Kambana hófst umræða um Hveragerði sem ég nú hafði í baksýnisspeglinum og gat virt fyrir mér hvernig byggðin var tekin að færast upp í hlíðina. Tilfinning mín var sú að þetta hefði gerst hratt. Heyra mátti að allir voru frambjóðendur stórhuga; vildu mikið og helst hratt. Hveragerði yrði að vaxa og því hraðar þeim mun betra. Með vextinum kæmi velsældin. Þetta stóð upp úr hjá frambjóðendum þar til að skyndilega kvað við nýjan tón. Til máls tók kona – ekki veit ég úr hvaða flokki hún var en ég hugsaði með mér þarna í Kömbunum að ég myndi kjósa hana væri ég íbúi í Hveragerði. Þessi frambjóðandi gekk nefnilega á hólm við hraðahugsunina. Styrkur Hveragerðis, sagði hún, væri smæðin og notalegheitin, gróðurinn og kyrrðin. Hveragerði mætti vaxa en vöxturinn yrði að vera hægur og í sátt við fyrri byggð og umhverfið. Þá yrði Hveragerði áfram eftirsóknarverð miðstöð heilsuverndar, gróður- og velsældarparadís. Á þeim forsendum myndi atvinnustarfsemi blómstra, ekki með neinum gassagangi og stórframkvæmdum, heldur á lágstemmdan hátt. Með öðrum orðum, ekki hratt og ótt heldur hægt og hljótt. Gróðinn í krónum talið yrði hugsanlega takmarkaðri en vellíðan yrði þeim mun meiri. Allt þetta kom upp í hugann þegar Viðskiptaráð tefldi nú alveg nýlega fram hraðamódeli sínu. Til þess að telja ríkið á að tvöfalda akbrautir, grafa göng og gera mislæg gatnamót hafði Viðskiptaráð reiknað það út að á þrjátíu árum mætti græða 275 milljarða með því að aka hraðar um vegi landsins því að þannig sparaðist verðmætur tími. Þetta er á sinn hátt sannfærandi og fyrir bragðið freistandi að hvetja til þjóðarátaks í hraðakstri svo græða megi jafnvel enn meira en Viðskiptaráð ætlar. En minna þarf þó á það að ein meginástæðan fyrir vegabótum, sem eru forsendur fyrir tímasparandi hraðakstri, er sögð vera sú að síaukinn fjöldi ferðamanna þurfi að komast leiðar sinnar. En verður þá komist hjá því að spyrja hvers vegna þeir fari um landið? Gæti það verið til þess að njóta náttúrunnar, einfaldleikans, róseminnar; anda þessu öllu að sér með hægðinni? Gæti verið að einhverju sé við að bæta í reiknimódel Viðskiptaráðs? Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Flugvöllur rýmdur vegna skógarelda Þrír ungir menn handteknir vegna morðs Aðsend grein: Svartsýni verður ekki til af tilviljun Úr ólíkum áttum: Spara með hraða Úr ólíkum áttum: Hraðar milli staða Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þegar Ísland sótti ekki um Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Mistök Vísis og þrettán daga þögn Nýtt innflutningsgjald í bígerð Mest lesið Í gær Í vikunni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Þegar Ísland sótti ekki um Vilja byggja upp nýtt hverfi Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Gular viðvaranir vegna hvassviðris „Það er bara algjört hrun“ Gamlar hefðir á Grenjaðarstað Manni kastað fram af svölum Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Flugvöllur rýmdur vegna skógarelda Þrír ungir menn handteknir vegna morðs Aðsend grein: Svartsýni verður ekki til af tilviljun Úr ólíkum áttum: Spara með hraða Úr ólíkum áttum: Hraðar milli staða Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Ófullnægjandi ástand á Hraunbúðum Þegar Ísland sótti ekki um Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Mest lesið Í gær Í vikunni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Þegar Ísland sótti ekki um Vilja byggja upp nýtt hverfi Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Gular viðvaranir vegna hvassviðris „Það er bara algjört hrun“ Gamlar hefðir á Grenjaðarstað Manni kastað fram af svölum Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá