Innlent | Sunnudagsblað | 25.7.2026 | 8:00 Úr ólíkum áttum: Hraðar milli staða Hildur Björnsdóttir Setja bókamerki Pistill Hildar Björnsdóttur úr Sunnudagsblaðinu Það er lífsgæðamál að bæta samgöngur í Reykjavík. Samgönguvandinn hefur farið vaxandi undanliðin ár og borgarbúar sólundað milljónum klukkustunda árlega í umferðartafir. Eitt brýnasta verkefni nýs meirihluta verður að greiða úr þessari stöðu og koma fólki hraðar á milli staða – tryggja frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur og tryggja að einn fararmáti útiloki ekki annan. Um langa hríð var lítið gert til að greiða úr daglegri umferð borgarbúa. Nú er hins vegar unnið að því að flýta mislægum gatnamótum við Sprengisand, innleiða snjalla ljósastýringu um alla borg og afturkalla þrengingar við Höfðabakka. Almenningssamgöngur verða byggðar upp með áherslu á hagkvæmt og sveigjanlegt hraðvagnakerfi sem þrengir ekki að almennri umferð. Þá er unnið að því að flýta Miklubrautargöngum og tryggja áfram öruggar tengingar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Samhliða vinnum við að því að Sundabraut komist loks til framkvæmda, enda þjóðhagslega arðbær og mikilvæg tenging fyrir fjölmörg hverfi borgarinnar. Um þessar mundir er unnið að nýjum gatnamótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Á framkvæmdatíma myndast miklar tafir við gatnamótin en þegar framkvæmdum verður lokið, ljósastýring hefur að fullu verið innleidd og nýjar leiðir hafa opnast til austurs mun afkastageta gatnamótanna hafa margfaldast. Vegagerðin áætlar að framkvæmdum ljúki í nóvember. En lausnirnar felast ekki allar í umfangsmiklum framkvæmdum, þær geta ekki síst falist í betra skipulagi. Ferðatími fólks á höfuðborgarsvæðinu lengist í einhverjum tilfellum um 30 mínútur að morgni þegar framhalds- og háskólar hefjast aftur á haustin. Með betra skipulagi mætti hins vegar ná fram betri dreifingu umferðarálags. Við höfum lýst okkur reiðubúin að leiða samtal við atvinnulíf, Landspítala og menntastofnanir um breytilegt upphaf vinnudags og kennsludags svo ná megi fram betri álagsdreifingu. Jafnframt mætti ná auknu jafnvægi á umferðarstrauma með jafnara borgarskipulagi og fjölgun vinnustaða í austurborginni. Tækifærin liggja víða. Fram undan eru umfangsmiklar breytingar á gangverki borgarinnar. Unnið er að stórtækum samgöngubótum, tækifærum í skipulagsmálum, hagræðingu í rekstrinum og stórsókn í skólamálum. Stefnan er skýr: við ætlum að efla höfuðborgina og koma henni í fremstu röð. Við ætlum að koma fólki hraðar á milli staða og tryggja fjölbreytta góða kosti í samgöngum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lambakjöt, lifrarpylsa og harðfiskur í uppáhaldi fjölskyldunnar Flugvöllur rýmdur vegna skógarelda Þrír ungir menn handteknir vegna morðs Aðsend grein: Svartsýni verður ekki til af tilviljun Úr ólíkum áttum: Spara með hraða Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýtt innflutningsgjald í bígerð Ófullnægjandi ástand á Hraunbúðum Sækja slasaðan einstakling á skemmtiferðaskip Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Vilja byggja upp nýtt hverfi Þegar Ísland sótti ekki um Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Gular viðvaranir vegna hvassviðris „Það er bara algjört hrun“ Manni kastað fram af svölum Gamlar hefðir á Grenjaðarstað Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Lambakjöt, lifrarpylsa og harðfiskur í uppáhaldi fjölskyldunnar Flugvöllur rýmdur vegna skógarelda Þrír ungir menn handteknir vegna morðs Aðsend grein: Svartsýni verður ekki til af tilviljun Úr ólíkum áttum: Spara með hraða Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mistök Vísis og þrettán daga þögn Hægt að skipta á honum og heilu liði Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Mest lesið Í gær Í vikunni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Vilja byggja upp nýtt hverfi Þegar Ísland sótti ekki um Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Gular viðvaranir vegna hvassviðris „Það er bara algjört hrun“ Manni kastað fram af svölum Gamlar hefðir á Grenjaðarstað Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá