„Það hefur verið dálítið mikið um frestanir hjá okkur,“ segir Marinó Njálsson, ritari Landssambands sjóstangaveiðifélaga, um sjóstangaveiðimótin það sem af er sumri. Þegar hafa verið haldin fjögur mót í Íslandsmótaröð landssambandsins og þrjú eru eftir, það næsta á Patreksfirði um næstu helgi. Síðan er eftir mót á Siglufirði og svo lokamótið sem félagið á Akureyri mun halda út frá Dalvík. Þungt í vöfum að færa til mót Marinó segir að frestanir á mótum vegna veðurs hafi því miður orðið til að draga aðeins úr þátttökunni. „Gistingarnar eru allar svo dýrar og frestanir og þá er svo erfitt að færa mót út af því. Það hefur alveg gengið vel en það er aðeins leiðinlegt ef það dregur úr af þessu, það er ekki nógu skemmtilegt þegar við lendum í því,“ segir Marinó. Uppgangur á Akureyri Þrátt fyrir dálitla ágjöf í þessum efnum og minni virkni félagsmanna segir Marinó ýmislegt jákvætt í starfinu í sumar. „Það er uppgangur á Akureyri. Þeir héldu mjög veglegt innanfélagsmót í Grímsey núna í sumar, þannig að það er alveg gott lífsmark þar,“ nefnir Marinó sem dæmi. Í keppnunum hafi ýmislegt gleðilegt borið til tíðinda. Íslandsmet í ýsu, flundru og hlýra „Það hafa verið sett þrjú landsmet, í ýsu, hlýra og flundru. Það hafa aldrei veiðst stærri fiskar hjá okkur af þessum tegundum,“ segir Marinó. Fram til þessa hafa lokahóf landssambandsins verið haldin á haustin en Marinó segir að nú verið brugðið út af því. „Lokahófið verður með síðasta mótinu og Íslandsmeistarinn verður þá krýndur um miðjan ágúst, það verður meiri stemning í því,“ segir hann. Formaður í forystu Spurður um ganginn í Íslandsmótinu segir Marinó að það sé reyndar sjálfur formaður landssambandsins, Sigurjón Már Birgisson, sem hafi þar tekið forystuna enda hafi hann mætt á öll mótin hingað til. „Hann er í góðum gír og mjög hress,“ segir ritarinn um formanninn.