Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fyrsta sjóstangaveiðimót ársins hefst á föstudag

Read Full Article →

Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur stendur fyrir fyrsta landsmót ársins í Reykjavík dagana 20.–21. mars 2026. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landssambands sjóstangaveiðifélaga. Þar segir að mótið verði sett í félagsheimili SjóstangaveiðifélagsReykjavíkur á Grandagarði á fimmtudagskvöldið þar sem farið verði yfir helstu atriðin sem tengjast keppninni. Mæting á bryggju árla föstudags Síðan er mæting fyrir birtingu, eða klukkan fimm, á föstudagsmorgun á Bóttabryggju. Byrjað verði á bryggjuveiði í 15 mínútur klukkan sex áður en haldið verði út til veiða. „Veitt verður í sjö klukkustundir frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp og haldið til hafnar. Trúnaðarmenn passa uppá veiðitíma,“ segir á sjol.is. Leikurinn er svo endurtekinn á laugardaginn með sex klukkutíma veiði. Um kvöldið verður síðan lokahóf. Úr mótatöflu Landssambands sjóstangaveiðifélaga fyrir árið 2026: mar. '26 Innanfélagsmót - AkranesSjóskip 20.-21. mar. '26 Íslandsmót - ReykjavíkSjór 10.-11. apr. '26 Íslandsmót - VestmannaeyjarSjóve 24.-25. apr. '26 Íslandsmót - AkranesSjóskip maí '26 Innanfélagsmót - VestmannaeyjarSjóve 8.-9. maí '26 Íslandsmót - ÓlafsvíkSjósnæ maí '26 Innanfélagsmót - RifSjósnæ 23. maí '26 Innanfélagsmót - ReykjavíkSjór júl. '26 Innanfélagsmót - GrímseySjóak 17.-18. júl. '26 Íslandsmót - NeskaupstaðurSjónes 26. júl. '26 Innanfélagsmót - SiglufjörðurSjósigl 7.-8. ágú. '26 Íslandsmót - SiglufjörðurSjósigl 14.-15. ágú. '26 Íslandsmót - DalvíkSjóak 30. ágú. '26 Innanfélagsmót - NeskaupstaðurSjónes

Share this article