Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslenskir liðsmenn Nolan fjölmenntu á Ódysseifskviðu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.7.2026 | 19:00 Íslenskir liðsmenn Nolan fjölmenntu á Ódysseifskviðu Um 400 manns komu á sýninguna í gærkvöldi. Ljósmynd/Þorgeir Óskarsson Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Fjöldi fólks sem vann að Ódysseifskviðu hér á landi kom saman á sýningu í tveimur sölum Smárabíós í gærkvöld til að horfa á myndina. „Þetta gekk bara frábærlega og það var gaman að sjá hvað komu margir. Ég held að það hafi komið um 400 manns af þeim rúmlega 600 sem var boðið. Það var vel mætt og myndin fékk frábærar viðtökur,“ segir Leifur B. Dagfinsson, framkvæmdastjóri True North, við mbl.is. True North sá um framleiðslu myndarinnar hér á landi. Leifur segir um 650 manns frá Íslandi hafa tekið þátt auk 500 til viðbótar frá útlöndum. Frétt af mbl.is Ódysseifskviða slær í gegn hérlendis Bíógestir gæða sér á poppi og kóki. Ljósmynd/Þorgeir Óskarsson Risastórt skip sent í bútum til landsins „True North vildi bara segja takk við alla sem lögðu hönd á plóg, sérstaklega við alla aukaleikarana sem stóðu sig frábærlega. Þeir unnu langa daga á næturnar. Þetta voru allt saman næturtökur. Sumir voru í tjöldum, aðrir voru í skólum og það var svona allur gangur á þessu, því það er ekki hlaupið að því að fá gistingu úti á landi í júnímánuði á Íslandi,“ segir Leifur um sýninguna. Hann segist líka vera þakklátur íslenska „krúinu“ sem hafi unnið þrekvirki í því að koma skipi Ódysseifskviðunnar aftur saman. Það hafi verið sent í bútum til landsins, sett saman og síðan verið flutt landleiðina frá Markarfljóti yfir á Snæfellsnesið. „Það var ýmislegt sem þurfti að gera til að koma svona risaskipi á milli staða. Þetta er alveg ágætis dallur og níðþungur, “ segir Leifur. Skipið var um það bil 6 metrar á breidd og 30 á lengd að hans sögn. Frétt af mbl.is Þúsund við tökur á Ódysseifskviðu Ljósmynd/Þorgeir Óskarsson Stærsti leikstjórinn í geiranum Hvernig er tilfinningin að sjá allt þetta erfiði verða til á stóra skjánum? „Hún er bara frábær. Maður skilur núna af hverju hann (Christopher Nolan) er stærsti leikstjórinn í þessum geira í dag. Og frábær þessi sýn hans, að hafa verið með honum frá byrjun að „scouta“ þetta, og sjá hann vinna það hvernig hann sá þetta fyrir sér og hvernig hann fann út úr því að skjóta þetta á nóttunni og nota þessa júníbirtu.“ „Það var búið að pæla þetta allt saman út, hvernig hann vildi hafa þetta til að ná Hades, eins og sú eyja kemur út, allir þessir svörtu og gráu litir, þeir njóta sín vel í þessu skýjaða og þokukennda landslagi,“ segir Leifur sem segir True North vera ánægða með útkomuna. Frétt af mbl.is Fyrsta stikla Ódysseifskviðu komin út Ljósmynd/Þorgeir Óskarsson Ljósmynd/Þorgeir Óskarsson Ljósmynd/Þorgeir Óskarsson Ljósmynd/Þorgeir Óskarsson Ljósmynd/Þorgeir Óskarsson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndir: Mótmæltu fyrir utan Víkingsvöllinn Víkingur R. - Hapoel Be'er Sheva, staðan er 0:0 Íslenskir liðsmenn Nolan fjölmenntu á Ódysseifskviðu Lúxus án flækju: Bananar með karríhjúp og ís á fimm mínútum Frá Chelsea til Aston Villa Umræðan Gjörbreytt menntakerfi Varanlegar undanþágur eru ekki á boðstólum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Afstaða Frakklands óljós Bregðast við ummælum Þorgerðar Vald landlæknis jafnað við vald dómstóla Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Kvika ýtir landinu upp við Svartsengi Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Myndir: Mótmæltu fyrir utan Víkingsvöllinn Víkingur R. - Hapoel Be'er Sheva, staðan er 0:0 Íslenskir liðsmenn Nolan fjölmenntu á Ódysseifskviðu Lúxus án flækju: Bananar með karríhjúp og ís á fimm mínútum Frá Chelsea til Aston Villa Umræðan Gjörbreytt menntakerfi Varanlegar undanþágur eru ekki á boðstólum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Afstaða Frakklands óljós Smávægileg bilun tafði heimför Íslendinganna Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Kvika ýtir landinu upp við Svartsengi Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá

Share this article