Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð

Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.2.2026 | 22:30 Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Óskar ásamt Matthew Gale meðframleiðanda sínum í Edinborg. Ljósmynd/Aðsend Óskar Eiríksson, einn eiganda Leikhúsmógúlsins, er meðal framleiðenda Friends the Musical Parody , eins konar söngleikjaskopstælingar af hinum sívinsælu sjónvarpsþáttum sem að festu sig rækilega í minni vestrænnar dægurmenningar undir lok síðustu aldar. Sýningin, sem fyrst var sett upp á litlu sviði í New York, ferðast nú milli stærstu leiksviða Bretlands en gert er ráð fyrir að yfir 170 þúsund manns sjái nýjustu uppfærsluna og að miðasölutekjur gætu numið hátt í milljarði króna. Spurður út í tilkomu sýningarinnar segir Óskar að kunningi hans sem hann hafi áður unnið með að uppsetningum í New York hafi nálgast hann með hugmyndina að verkinu og hann slegið til. Seldist strax upp „Ég sagði bara strax já. Ég fann strax að þetta yrði eitthvað rosalega skemmtilegt. Þannig að við fórum af stað og opnuðum sýninguna í litlu leikhúsi í New York árið 2017,“ segir hann og bætir við að viðbrögðin hafi ekki látið á sér standa. „Þetta var rosalega merkilegt, við settum sýninguna í forsölu og seldum í rauninni fyrir öllum kostnaðinum innan 24 klukkustunda.“ Er það ekki mjög fágætt í þessum bransa? „Það er mjög fágætt. Maður hefur eiginlega ekki heyrt af slíku áður. Seinna lentum við reyndar í því sama þegar við settum sýninguna upp í Finnlandi.“ Hér er Óskar í Edinburgh Playhouse, 3.300 sæta leikhúsi þar sem Friends-sýningin var sýnd í byrjun mánaðar. Ljósmynd/Aðsend Stærri og stærri Fyrst um sinn var sýningin sýnd í leikhúsi í New York sem tók um 190 manns í sæti en það eru álíka margir og komast fyrir á litla sviði Borgarleikhússins. Fljótlega fóru aðstandendur sýningarinnar hins vegar að huga að því hvernig mætti stækka umgjörð hennar. „Ég fór síðan einn með sýninguna til Bretlands og vann þar með öðrum samstarfsaðila í að stækka hana. Við fórum svo á fyrsta túrinn með hana sem var rosalega vel seldur í Bretlandi en hann opnaði viku áður en öll leikhús lokuðu í Covid,“ segir Óskar. Eftir að faraldurinn gekk yfir fannst Óskari að sýningin ætti enn meira inni og lagðist í að stækka hana enn frekar og fékk þá til liðs við sig framleiðendur sem eru vanir að setja upp sýningar á stærstu sviðum Bretlands. Stækkun sýningarinnar fyrir sýningaferðalagið sem hófst í september og stendur fram í apríl var mikið verkefni en Óskar segir að kostnaður við hverja einustu sýningu hafi þrefaldast og þróa þurfti ýmis atriði svo þau myndu skila sér á stóru sviði. Þessi vinna gekk hins vegar vel og segir Óskar að sýningin sé á mjög góðum stað núna. óskar ásamt systrum sínum, Signýju og Sygin, Eiríki föður sínum, Torfa Geir rekstrarstjóra Leikhúsmógúlsins og Jill Bowman yfirmanni skrifstofu Leikhúsmógúlsins í New York. Ljósmynd/Aðsend 170 þúsun áhorfendur Gert er ráð fyrir að yfir 170 þúsund manns sæki sýninguna áður en sýningaferðalaginu lýkur og að miðasölutekjur verði hátt í milljarð króna. Sýningin hefur nú einnig túrað við miklar vinsældir í Ástralíu, Póllandi og Spáni. Ekki er um að ræða fyrsta skipti sem Óskar kemur að sýningu sem gengur svo vel. Íslenska fjölskyldufyrirtækið Leikhúsmógúlinn, sem hann stofnaði ásamt systrum sínum, föður og mági árið 2000, hefur komið að hundruðum leikhúsuppsetninga um allan heim. „Ég ætlaði mér nú alltaf að verða leikari en svo var það mágur minn sem fékk hugmynd um að stofna þetta fyrirtæki í kringum Hellisbúann á sínum tíma,“ segir Óskar og vísar þar í einn vinsælasta einleik í heimi sem fyrirtækið hefur átt heimsréttinn á síðan 2006. Til að byrja með tryggði Leikhúsmógúllinn sér sýningarrétt á einleiknum í Þýskalandi, þar sem hún er enn til sýnis 25 árum síðar, en eftir velgengni þar hefur fyrirtækið framleitt sýninguna í öllum heimsálfum, utan suðurskautsins. Óskar ásamt Rob Beckner, höfundi Hellisbúans. Ljósmynd/Aðsend Kynstur af kókaíni í IKEA-pokum Twin sisters Sara and Lilja both competing in Miss Iceland Jafnt í Napólí - Hörð barátta um meistaradeildarsæti Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Erfiðast að læra íslensku Taka afdráttarlausa afstöðu gegn bókun 35 Interpol rannsakar árásina á Grund „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Interpol rannsakar árásina á Grund Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Beint: Framsókn kýs nýja forystu Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Fær rúmar 45 milljónir í vasann Kynstur af kókaíni í IKEA-pokum Twin sisters Sara and Lilja both competing in Miss Iceland Jafnt í Napólí - Hörð barátta um meistaradeildarsæti Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Höfum verið of kurteis Obama tjáir sig um myndskeiðið í fyrsta sinn Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins Líkamsárásirnar tvær líklega ótengdar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Interpol rannsakar árásina á Grund Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Beint: Framsókn kýs nýja forystu Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Fær rúmar 45 milljónir í vasann

Share this article