Seðlabankastjóri Tékklands Aleš Michl hefur gagnrýnt ákall forsetans Petr Pavel um að landið taki upp evru á þessum tímapunkti. Hann segir í viðtali við Financial Times að tékkneska hagkerfið hefði enn ekki samþættast hagkerfum annarra ríkja á evrusvæðinu nægilega mikið svo að réttlætanlegt sé að taka upp evruna að svo stöddu, þrátt fyrir að miklar framfarir hafi náðst frá því að Tékkland gekk í Evrópusambandið árið 2004. Sjá einnig Evran ekki orðinn gjaldmiðill fyrr en 2042 Hann varar við að ótímabær upptaka evrunnar gæti ýtt undir verðbólgu og bætti við að sú ráðstöfun myndi leiða til aukins launakostnaðar og stuðla að öðrum kostnaðarhækkunum. Seðlabankastjórinn sagði að áhersla forsetans á upptöku evrunnar hefði að undanförnu „ekki leitt til neinnar uppbyggilegrar umræðu, heldur aðeins pólitísks hávaða“. „Mér líkar vel við sveigjanlegt gengi og styrking tékknesku krónunnar er tól í baráttunni gegn verðbólgu,“ sagði Michl. Pavel hefur haldið því fram að tékknesk útflutningsfyrirtæki starfi nú þegar að verulegu leyti innan evrusvæðisins, án þess þó að tékknesk stjórnvöld hafi nokkur áhrif á stefnumótun Seðlabanka Evrópu. „Sú staðreynd að hagkerfi okkar er svo nátengt evrusvæðinu ætti að leiða okkur að þeirri niðurstöðu að það sé augljóslega betra að sitja við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar en að standa fyrir utan dyrnar og þurfa síðan að eiga við afleiðingar þeirra,“ sagði Pavel á ráðstefnu í júní. Petr Pavel, forseti Tékklands. © EPA (EPA) Seðlabankastjórinn gagnrýndi einnig ákall forsætisráðherrans Andrej Babiš um lækkun stýrivaxta og sagði að breyting í þá áttina við stjórn peningastefnunnar myndi grafa undan verðstöðugleika í landinu. Michl sagði að forsætisráðherrann – auðkýfingur sem hefur lýst aðdáun sinni á Donald Trump – hefði fetað í fótspor Bandaríkjaforsetans með málflutningi um að eftir því sem fjármagn verði ódýrara, því betri verði efnahagsaðstæður í landinu. Seðlabankastjórinn tók undir að það væri kaldhæðnislegt að hann væri nú að deila opinberlega við Babiš um peningastefnuna eftir að hafa áður starfað sem ráðgjafi hins síðarnefnda þegar hann gegndi embætti fjármálaráðherra. Michl sagði í viðtalinu að hugmyndir forsetans og forsætisráðherrans í efnahagsmálum væru „ótímabærar“. Auðæfi Andrej Babiš, forsætisráðherra Tékklands, eru metin á 4,3 milljarða dala af Forbes. © EPA (EPA) Í síðustu viku hækkaði Seðlabanki Tékklands stýrivexti sína í fyrsta sinn í fjögur ár. Bankinn hækkaði vexti um 0,25 prósentustig, upp í 3,75% til að bregðast við verðbólguþrýstingi og launahækkunum í landinu. Þótt verðbólga í landinu hafi verið í kringum 2% verðbólgumarkmið seðlabankans undanfarin tvö ár varaði tékkneski seðlabankinn í júní við því að kjarnaverðbóla, sem undanskilur vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, hafi haldist yfir markmiði og væri nú aðeins rétt undir 3%. Ekki væru merki um að hún myndi lækka.