Gréta María Grétarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís og Krónunnar, og Hrund Rudólfsdóttir, fyrrverandi forstjóri Veritas, hafa tekið sæti í stjórn hreyfingarinnar SJÁ, sem hvetur fólk til að kjósa já í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það er mikilvægt að taka ákvörðun um framtíð okkar byggða á áreiðanlegum gögnum. Mér finnst því eðlilegt að við fáum að sjá hvað samningur felur í sér. Ég segi já þann 29. ágúst því ég vil geta tekið upplýsta ákvörðun um framtíð mína,“ segir Gréta María . Fyrir í stjórn eru Jónas Hagan, Hjálmar Vilhjálmsson og Berglind Guðmundsdóttir. „Framundan eru mikilvæg umræða um stóra ákvörðun sem mun hafa mikil áhrif á Ísland, sama hver niðurstaðan verður. Það er flókin og erfið vegferð fyrir þjóð að taka slíka umræðu og mikilvægt að þegar niðurstaða sé komin, að um hana ríki sem víðtækust sátt,“ segir Hrund . „ Ég tel mikilvægt að við skoðum nánar hvað í aðild að Evrópusambandinu gæti falist af tveimur stórum ástæðum. Í fyrsta lagi til að afla þeirra upplýsinga sem eru forsenda málefnalegrar umræðu og réttrar ákvarðanatöku. Í öðru lagi þá tel ég að það sé besta leiðin til að tryggja sátt í samfélaginu til framtíðar litið.“ SJÁ hyggst standa fyrir opnum fundum og viðburðum víðs vegar um landið á næstu vikum. Hreyfingin segist vilja skapa vettvang fyrir málefnalega og uppbyggilega umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. „Við erum afar ánægð með að Gréta María og Hrund hafi ákveðið að ganga til liðs við okkur. Þær styrkja teymið okkar og koma með dýrmæta reynslu og kraft inn í starfið. Við hlökkum til samstarfsins og þeirra verkefna sem fram undan eru,“ segir Berglind Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri SJÁ.