Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lokahátíðin og hálfleikssýningin í beinni á rásum RÚV

Read Full Article →

Lokadagur HM í fótbolta er runninn upp og lýkur mótinu í kvöld með úrslitaleik Spánar og Argentínu sem hefst klukkan 19:00. Leikurinn fer fram á MetLife leikvanginum í New York/New Jersey í Bandaríkjunum þar sem einnig verður boðið upp á veglega lokahátíð og hálfleikssýningu. Lokahátíðin hefst klukkan 17:35 í beinni útsendingu á RÚV 2 . Úrslitaleikurinn og hálfleikssýningin verða í beinni útsendingu bæði á RÚV og RÚV 2. HM stofan fyrir úrslitaleikinn hefst klukkan 17:55 á RÚV 2 en sjónvarpsfréttir verða á RÚV klukkan 18:00. Það verður mikið um dýrðir í kvöld þegar HM í fótbolta lýkur með úrslitaleik Spánar og Argentínu. Stjörnum prýdd lokahátíð mótsins hefst kl. 17:35 í beinni útsendingu á RÚV 2 og hálfleikssýning í úrslitaleiknum á RÚV. HM-dagskrá dagsins 17:35 - Lokahátíð HM - RÚV 2 17:55 - Stofan - RÚV 2 19:00 - Spánn - Argentína - RÚV 21:25 - HM kvöld - RÚV Dagskrá lokahátíðar fyrir leik Á meðal þeirra sem koma fram eru: Jennifer Hudson syngur bandaríska þjóðsönginn Robbie Williams Laura Pausini Nicole Scherzinger Post Malone IShowSpeed sérstök gestainnkoma frá Tom Cruise Hálfleikssýningin Í fyrsta skipti verður hálfleikssýning á úrslitaleik HM, svipað og þekkist til dæmis í Ofurskálarleiknum í NFL-deildinni í amerískum fótbolta. Sýningin verður 11 mínútna löng og hálfleikurinn allur í 25 mínútur. Sýningin er skipulögð af Chris Martin úr Coldplay í samstarfi við Global Citizen og inniheldur meðal annars: Justin Bieber Shakira Madonna BTS Burna Boy Coldplay Gustavo Dudamel ásamt New York Philharmonic og Simón Bolívar Symphony Orchestra PS22-kórinn Þetta er í fyrsta sinn í 96 ára sögu heimsmeistaramótsins sem FIFA heldur sérstaka hálfleikssýningu með þessum hætti.

Share this article