Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bílvelta í Skötufirði

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Bíl­velta í Skötu­firði Alexander Kristjánsson Bíll valt utan vegar í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á ellefta tímanum í dag. Þrír voru um borð í bílnum og voru þeir fluttir á sjúkrahús á Ísafirði til aðhlynningar. Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn segir að ekki sé vitað hversu alvarlegt slysið er. Aðstæður á veginum voru góðar. RUV / Loftmyndir Fyrir 10 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Mót­mæli í Úkra­ínu þriðja kvöld­ið í röð Þúsundir komu saman til mótmæla í Úkraínu í gærkvöld, þriðja kvöldið í röð. Fólkið krefst þess að hætt verði við brottvikningu varnarmálaráðherrans. Zelensky segir málin til skoðunar, mótmælendur hafi náð eyrum hans. Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Þre­falt fleiri smit af völdum sýkla­lyfja­ó­næm­ra bakt­er­ía Sýklalyfjaónæmar bakteríur eins og E. coli greinast hér þrefalt oftar fyrir tíu árum. Íslendingar sem hafa ferðast til útlanda bera þær hingað heim. Líklega erum við að glata forskoti okkar, segir sýklafræðilæknir, og nálgasta suð- og austlægari Evró Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 In­fant­ino að kenna að sam­sær­is­kenn­ing­arn­ar um HM grass­eri Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu lýkur í kvöld með úrslitaleik Argentínu og Spánar. Mótið hefur sætt mikilli gagnrýni og pólitískra áhrifa gætir víða. Prófessor í félagsfræði segir vinnubrögð forseta FIFA einkennast af undirlægjuhætti. Fyrir 23 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Perú Fimm létust í jarð­skjálfta í Perú Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Fimm létust í jarðskjálfta í Andes-fjöllum í Perú í gærkvöld. Skjálftinn var 5,1 að stærð og hafði mest áhrif í bænum Chongos Bajo sem liggur 300 kílómetra austur af höfuðborginni Lima. Í bænum slösuðust 21 til viðbótar við þá sem létust. Viðbragðsaðilar í Perú. Myndin er úr safni. EPA / Mikhail Huacan Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Þétt­set­in tjald­svæði og fólk greini­lega þreytt á rign­ing­unni suð­vest­an­lands Fjöldi fólks hefur flúið rigninguna á suðvesturhorni landsins og í betra veður á tjaldsvæðum á Suður- og Austurlandi. Á tjaldsvæðinu á Kirkjubæjarklaustri hefur verið uppbókað frá því á fimmtudag. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Björg­ólf­ur Thor flytur frá Bret­landi til Ítalíu Björgólfur Thor Björgólfsson hefur flutt skattalegt heimilisfesti frá Bretlandi til Ítalíu vegna breytinga á bresku skattkerfi. Hann segir bresku ríkisstjórnina hafa gert mistök. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurþing Stór­bæta Ráð­hús­ið á Rauf­ar­höfn Miklar endurbætur hafa staðið yfir á ráðhúsinu á Raufarhöfn. Gamli bankinn á Raufarhöfn er orðinn ráðhús bæjarins. Þar er suðupottur alls konar starfsemi, segir starfsmaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Tón­leik­um Bad Bunny á Ítalíu aflýst vegna hagl­éls Rýma þurfti tónleikastað söngvarans Bad Bunny í Mílanó í gærkvöldi vegna hagléls. Um 80 þúsund gestir voru á tónleikunum. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Úr­slita­leik­ur HM - end­ur­heimt­ir Messi marka­kóngs­tit­il­inn? Úrslitaleikur HM er í dag en þar mætast Spánn og Argentína. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og er á RÚV. Í fyrsta skipti verður hálfleikssýning í úrslitaleiknum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Fac­e­book lá niðri Fréttastofa RÚV Vefsíða Facebook lá niðri um tíma í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá vefsíðunni Downdetector hafa þúsundir tilkynninga borist um tæknivandamál frá því um klukkan hálfátta í morgun. Önnur þjónusta á vegum Meta-fyrirtækisins virtist þó virka sem skyldi meðan á biluninni stóð. EPA / LUKAS COCH Fréttin var uppfærð eftir að síðan var komin í lag. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hæð sem stjórn­ar veðri hagg­ast ekki næstu daga Það verður áfram vestlæg átt með vætu vestantil en björtu veðri á Austurlandi fram í miðja viku. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Búið er að slökkva eldinn í byggð­inni í Dram­men Ekkert slökkvistarf var í Drammen í nótt og búið er að ráða niðurlögum eldsins í byggðinni. Enn loga þó eldar í skóginum og verður slökkvistarfi fram haldið þar í dag. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Ein stærsta flug­skeyta­árás­in á Kyiv fram til þessa Rússar gerðu mikla flugskeytaárás á Kyiv í nótt. Einn var drepinn og 13 særðust í árásunum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tate-bræð­urn­ir hand­tekn­ir í Miami Bresk yfirvöld hafa óskað eftir að bræðurnir verði framseldir. Þeir eru grunaðir um kynferðisbrot, nauðganir og mansal í Bretlandi yfir sjö ára tímabil. Bræðurnir voru fyrst ákærðir í Rúmeníu árið 2022 en flúðu landið áður dæmt var í málinu. 19. júlí 2026 kl. 3:39ERLENDAR FRÉTTIR Kúba Fór í útlegð frá Kúbu til Miami Kúbanskur listamaður og andófsmaður fór í útlegð til Miami á Flórída í gær. Hann sat fimm ár í fangelsi á Kúbu fyrir mótmæli gegn stjórnvöldum. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna krefst þess að stjórnvöld á Kúbu láti yfir 700 pólitíska fanga lausa. 19. júlí 2026 kl. 2:08ERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland For­seti Ung­verja­lands lætur af emb­ætti Tamas Sulyok undirritaði viðauka við stjórnarskrá landsins sem mun binda enda á forsetatíð hans. Hann er sagður hliðhollur fyrrum forsætisráðherra landsins, Viktor Orban. 19. júlí 2026 kl. 0:23ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Eng­land – Frakk­land England vann 4-6 gegn Frökkum í bronsleik HM karla í fótbolta í kvöld. Þetta er markahæsti bronsleikur sögunnar og einn af markahæstu lokaleikjum heimsmeistaramótsins. 19. júlí 2026 kl. 0:07ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Ut­an­rík­is­ráð­herra Norður-Kóreu í op­in­berri heim­sókn í Rúss­landi Norður-Kórea hefur sent Rússum flugskeyti, hergögn og þúsundir hermanna til að berjast gegn Úkraínuher. Rússneski varnarmálaráðherrann hefur sagt að Rússar séu tilbúnir til frekara samstarfs á næstu árum. 18. júlí 2026 kl. 23:22ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Mbappé orðinn marka­hæst­ur í sögu HM Kylian Mbappé er nú markahæstur í sögu HM með 22 mörk. Hann skoraði tvö mörk í kvöld í 4-6 tapi gegn Englandi. Messi á tækifæri til að hrifsa metið aftur til sín á morgun í úrslitaleik. 18. júlí 2026 kl. 22:51ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Tveir banda­rísk­ir her­menn féllu og eins er saknað eftir árásir í Jór­dan­íu Brynja Dögg Friðriksdóttir Bandaríski fáninn á herbúningi hermanns. EPA / HANNIBAL HANSCHKE Tveir bandarískir hermenn féllu í árásum Írana í Jórdaníu í gær. Miðstjórn bandaríska hersins, CENTCOM, greindi frá þessu í færslu á X. Þá er eins saknað og fjórir særðust í árásunum. Þeir voru fluttir á spítala í Jórdaníu til aðhlynningar en hafa verið útskrifaðir af spítalanum. Aðrir sem hlutu minniháttar áverka eru aftur komnir til starfa. Bandaríski herinn tilkynnti í annarri færslu á X í kvöld að árásir Bandaríkjahers væru hafnar að nýju á skotmörk í Íran. Árásunum er ætlað að draga úr mætti Írana til að ógna skipaumferð um Hormússund og refsa íranska byltingarverðinum fyrir árásirnar á hermennina í Jórdaníu í gær. 18. júlí 2026 kl. 21:25ERLENDAR FRÉTTIR Finnland Ný leigu­bíla­þjón­usta í Finn­landi ein­göngu fyrir konur og börn Tvö ný leigubílafyrirtæki í Finnlandi keyra eingöngu konur og börn. Markmiðið með þjónustunni er að auka öryggistilfinningu kvenna í leigubílum. 18. júlí 2026 kl. 21:10ÍÞRÓTTIR Golf Aron og Guðrún leiða fyrir loka­dag Hval­eyr­ar­bik­ars­ins Aron Snær Júlíusson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiða fyrir lokahring Hvaleyrarbikarsins í golfi. Aron er með eins höggs forskot og Guðrún með fimm högga forskot. 18. júlí 2026 kl. 20:12ÍÞRÓTTIR Fótbolti Sá yngsti í sögu efstu deild­ar Novak Tufegdzic er yngsti leikmaður í sögu efstu deildar karla í fótbolta en hann byrjaði inn á fyrir Val í Bestu deildinni í kvöld. Novak er 14 ára og 26 daga gamall. 18. júlí 2026 kl. 20:09INNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Ákvarð­an­ir í ágúst um það sem brýn­ast er í Grinda­vík Framtíð skólahalds og búsetu í Grindavík skýrist í ágúst, þegar niðurstöður áhættumats liggja fyrir. Til að skapa sátt taka fulltrúar Grindavíkinga þátt ásamt sérfræðingum, sem vinna í sumarleyfum. 18. júlí 2026 kl. 19:56INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Mik­il­vægt að sam­fé­lag­ið vinni saman að sjálfs­vígs­for­vörn­um Niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sýna að sjálfsskaðahegðun og sjálfsvígshugsanir eru algengari hjá stúlkum. Verkefnastjóri sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis segir niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi markvissra forvarna. 18. júlí 2026 kl. 19:52ÍÞRÓTTIR Golf Enn eitt metið í sögu risa­móta – Bryson hélt mótinu „í gísl­ingu“ Nýsjálendingurinn Ryan Fox jafnaði metið yfir lægsta skor í sögu risamóta er hann fór á 62 höggum í dag á Opna breska mótinu. Rory McIlroy var vægast sagt ósáttur út í Bryson DeChambeau sem fékk refsingu. 18. júlí 2026 kl. 19:40INNLENDAR FRÉTTIR Matur „Maður verður að geta treyst því að inni­halds­lýs­ing­ar séu réttar“ Rangar innihaldslýsingar á matvælum geta reynst dýrkeyptar. Ung kona veiktist og missti úr vinnu eftir að hafa borðað Vogaídýfu. 18. júlí 2026 kl. 18:42ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Æðsti­klerk­ur Írans hyggst kenna Banda­ríkj­un­um „ógleym­an­lega lexíu“ Æðstiklerkur Írans segir undirskrift Bandaríkjaforseta undir viljayfirlýsingu um að binda enda á átökin í Mið-Austurlöndum einskis virði. Vika er síðan árásir hófust að nýju. 18. júlí 2026 kl. 18:19ÍÞRÓTTIR Fótbolti Botn­lið Þórs vann topp­lið­ið í fyrsta leik Arons í efstu deild Botnlið Þórs vann 2-1 sigur gegn toppliði Víkinga í Bestu deild karla í fótbolta. Þetta var fyrsti leikur Arons Einars Gunnarssonar fyrir Þór í efstu deild. Víkingur tapaði síðast í deildarkeppni fyrir 342 dögum. 18. júlí 2026 kl. 18:16INNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Sjálf­u­pall­ar til varnar nátt­úr­unni Mývetningar hafa ráð undir rifi hverju. Traðk utan göngustíga á vinsælum ferðamannastöðum við Mývatn hefur aukist og Náttúruverndarstofnun brá á það ráð að hlaða sjálfupalla til að vernda náttúruna. 18. júlí 2026 kl. 18:15INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglu

Share this article