Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Bílvelta í Skutulsfirði Alexander Kristjánsson Bíll valt utan vegar í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á ellefta tímanum í dag. Þrír voru um borð í bílnum og voru þeir fluttir á sjúkrahús á Ísafirði til aðhlynningar. Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn segir að ekki sé vitað hversu alvarlegt slysið er. Aðstæður á veginum voru góðar. Halla Ólafsdóttir Fyrir 50 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Þéttsetin tjaldsvæði og fólk greinilega þreytt á rigningunni suðvestanlands Fjöldi fólks hefur flúið rigninguna á suðvesturhorni landsins og í betra veður á tjaldsvæðum á Suður- og Austurlandi. Á tjaldsvæðinu á Kirkjubæjarklaustri hefur verið uppbókað frá því á fimmtudag. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Björgólfur Thor flytur frá Bretlandi til Ítalíu Björgólfur Thor Björgólfsson hefur flutt skattalegt heimilisfesti frá Bretlandi til Ítalíu vegna breytinga á bresku skattkerfi. Hann segir bresku ríkisstjórnina hafa gert mistök. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurþing Stórbæta Ráðhúsið á Raufarhöfn Miklar endurbætur hafa staðið yfir á ráðhúsinu á Raufarhöfn. Gamli bankinn á Raufarhöfn er orðinn ráðhús bæjarins. Þar er suðupottur alls konar starfsemi, segir starfsmaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Tónleikum Bad Bunny á Ítalíu aflýst vegna hagléls Rýma þurfti tónleikastað söngvarans Bad Bunny í Mílanó í gærkvöldi vegna hagléls. Um 80 þúsund gestir voru á tónleikunum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Úrslitaleikur HM - endurheimtir Messi markakóngstitilinn? Úrslitaleikur HM er í dag en þar mætast Spánn og Argentína. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og er á RÚV. Í fyrsta skipti verður hálfleikssýning í úrslitaleiknum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Facebook lá niðri Fréttastofa RÚV Vefsíða Facebook lá niðri um tíma í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá vefsíðunni Downdetector hafa þúsundir tilkynninga borist um tæknivandamál frá því um klukkan hálfátta í morgun. Önnur þjónusta á vegum Meta-fyrirtækisins virtist þó virka sem skyldi meðan á biluninni stóð. EPA / LUKAS COCH Fréttin var uppfærð eftir að síðan var komin í lag. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hæð sem stjórnar veðri haggast ekki næstu daga Það verður áfram vestlæg átt með vætu vestantil en björtu veðri á Austurlandi fram í miðja viku. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Búið er að slökkva eldinn í byggðinni í Drammen Ekkert slökkvistarf var í Drammen í nótt og búið er að ráða niðurlögum eldsins í byggðinni. Enn loga þó eldar í skóginum og verður slökkvistarfi fram haldið þar í dag. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Ein stærsta flugskeytaárásin á Kyiv fram til þessa Rússar gerðu mikla flugskeytaárás á Kyiv í nótt. Einn var drepinn og 13 særðust í árásunum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tate-bræðurnir handteknir í Miami Bresk yfirvöld hafa óskað eftir að bræðurnir verði framseldir. Þeir eru grunaðir um kynferðisbrot, nauðganir og mansal í Bretlandi yfir sjö ára tímabil. Bræðurnir voru fyrst ákærðir í Rúmeníu árið 2022 en flúðu landið áður dæmt var í málinu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Fór í útlegð frá Kúbu til Miami Kúbanskur listamaður og andófsmaður fór í útlegð til Miami á Flórída í gær. Hann sat fimm ár í fangelsi á Kúbu fyrir mótmæli gegn stjórnvöldum. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna krefst þess að stjórnvöld á Kúbu láti yfir 700 pólitíska fanga lausa. 19. júlí 2026 kl. 2:08ERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Forseti Ungverjalands lætur af embætti Tamas Sulyok undirritaði viðauka við stjórnarskrá landsins sem mun binda enda á forsetatíð hans. Hann er sagður hliðhollur fyrrum forsætisráðherra landsins, Viktor Orban. 19. júlí 2026 kl. 0:23ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: England – Frakkland England vann 4-6 gegn Frökkum í bronsleik HM karla í fótbolta í kvöld. Þetta er markahæsti bronsleikur sögunnar og einn af markahæstu lokaleikjum heimsmeistaramótsins. 19. júlí 2026 kl. 0:07ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Utanríkisráðherra Norður-Kóreu í opinberri heimsókn í Rússlandi Norður-Kórea hefur sent Rússum flugskeyti, hergögn og þúsundir hermanna til að berjast gegn Úkraínuher. Rússneski varnarmálaráðherrann hefur sagt að Rússar séu tilbúnir til frekara samstarfs á næstu árum. 18. júlí 2026 kl. 23:22ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Mbappé orðinn markahæstur í sögu HM Kylian Mbappé er nú markahæstur í sögu HM með 22 mörk. Hann skoraði tvö mörk í kvöld í 4-6 tapi gegn Englandi. Messi á tækifæri til að hrifsa metið aftur til sín á morgun í úrslitaleik. 18. júlí 2026 kl. 22:51ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Tveir bandarískir hermenn féllu og eins er saknað eftir árásir í Jórdaníu Brynja Dögg Friðriksdóttir Bandaríski fáninn á herbúningi hermanns. EPA / HANNIBAL HANSCHKE Tveir bandarískir hermenn féllu í árásum Írana í Jórdaníu í gær. Miðstjórn bandaríska hersins, CENTCOM, greindi frá þessu í færslu á X. Þá er eins saknað og fjórir særðust í árásunum. Þeir voru fluttir á spítala í Jórdaníu til aðhlynningar en hafa verið útskrifaðir af spítalanum. Aðrir sem hlutu minniháttar áverka eru aftur komnir til starfa. Bandaríski herinn tilkynnti í annarri færslu á X í kvöld að árásir Bandaríkjahers væru hafnar að nýju á skotmörk í Íran. Árásunum er ætlað að draga úr mætti Írana til að ógna skipaumferð um Hormússund og refsa íranska byltingarverðinum fyrir árásirnar á hermennina í Jórdaníu í gær. 18. júlí 2026 kl. 21:25ERLENDAR FRÉTTIR Finnland Ný leigubílaþjónusta í Finnlandi eingöngu fyrir konur og börn Tvö ný leigubílafyrirtæki í Finnlandi keyra eingöngu konur og börn. Markmiðið með þjónustunni er að auka öryggistilfinningu kvenna í leigubílum. 18. júlí 2026 kl. 21:10ÍÞRÓTTIR Golf Aron og Guðrún leiða fyrir lokadag Hvaleyrarbikarsins Aron Snær Júlíusson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiða fyrir lokahring Hvaleyrarbikarsins í golfi. Aron er með eins höggs forskot og Guðrún með fimm högga forskot. 18. júlí 2026 kl. 20:12ÍÞRÓTTIR Fótbolti Sá yngsti í sögu efstu deildar Novak Tufegdzic er yngsti leikmaður í sögu efstu deildar karla í fótbolta en hann byrjaði inn á fyrir Val í Bestu deildinni í kvöld. Novak er 14 ára og 26 daga gamall. 18. júlí 2026 kl. 20:09INNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Ákvarðanir í ágúst um það sem brýnast er í Grindavík Framtíð skólahalds og búsetu í Grindavík skýrist í ágúst, þegar niðurstöður áhættumats liggja fyrir. Til að skapa sátt taka fulltrúar Grindavíkinga þátt ásamt sérfræðingum, sem vinna í sumarleyfum. 18. júlí 2026 kl. 19:56INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Mikilvægt að samfélagið vinni saman að sjálfsvígsforvörnum Niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sýna að sjálfsskaðahegðun og sjálfsvígshugsanir eru algengari hjá stúlkum. Verkefnastjóri sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis segir niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi markvissra forvarna. 18. júlí 2026 kl. 19:52ÍÞRÓTTIR Golf Enn eitt metið í sögu risamóta – Bryson hélt mótinu „í gíslingu“ Nýsjálendingurinn Ryan Fox jafnaði metið yfir lægsta skor í sögu risamóta er hann fór á 62 höggum í dag á Opna breska mótinu. Rory McIlroy var vægast sagt ósáttur út í Bryson DeChambeau sem fékk refsingu. 18. júlí 2026 kl. 19:40INNLENDAR FRÉTTIR Matur „Maður verður að geta treyst því að innihaldslýsingar séu réttar“ Rangar innihaldslýsingar á matvælum geta reynst dýrkeyptar. Ung kona veiktist og missti úr vinnu eftir að hafa borðað Vogaídýfu. 18. júlí 2026 kl. 18:42ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Æðstiklerkur Írans hyggst kenna Bandaríkjunum „ógleymanlega lexíu“ Æðstiklerkur Írans segir undirskrift Bandaríkjaforseta undir viljayfirlýsingu um að binda enda á átökin í Mið-Austurlöndum einskis virði. Vika er síðan árásir hófust að nýju. 18. júlí 2026 kl. 18:19ÍÞRÓTTIR Fótbolti Botnlið Þórs vann toppliðið í fyrsta leik Arons í efstu deild Botnlið Þórs vann 2-1 sigur gegn toppliði Víkinga í Bestu deild karla í fótbolta. Þetta var fyrsti leikur Arons Einars Gunnarssonar fyrir Þór í efstu deild. Víkingur tapaði síðast í deildarkeppni fyrir 342 dögum. 18. júlí 2026 kl. 18:16INNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Sjálfupallar til varnar náttúrunni Mývetningar hafa ráð undir rifi hverju. Traðk utan göngustíga á vinsælum ferðamannastöðum við Mývatn hefur aukist og Náttúruverndarstofnun brá á það ráð að hlaða sjálfupalla til að vernda náttúruna. 18. júlí 2026 kl. 18:15INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Reyndi að komast undan lögreglu undir áhrifum og án ökuréttinda Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ökumann í dag sem hafði reynt að komast undan. Þegar lögregla hafði hendur í hári hans reyndist hann vera undir áhrifum áfengis og raunar hafði hann aldrei öðlast ökuréttindi. „Ökumaður var því handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til að hann væri hæfur í skýrslutöku,“ segir í dagbók lögreglu. Þá stöðvaði lögregla för ökumanns sem ók á 118 km hraða þar sem hámarkshraði var 80 og annars sem ók á 119 km hraða þar sem hámarkshraði er 90. RÚV / Sölvi Andrason 18. júlí 2026 kl. 17:23ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Samfélagið í Drammen í sárum Íslendingur í Drammen segir eldsvoða setja mikinn svip á bæinn. Hundruð hafa misst heimili sín í eldinum sem logar enn í skóginum. 18. júlí 2026 kl. 17:14INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Heilbrigðisyfirvöld ættu alvarlega að íhuga að bjóða upp á ný endómetríósupróf Tvær nýjar leiðir til að greina endómetríósu verða teknar í notkun á heilsugæslustöðvum í Bretlandi til reynslu. Jón Ívar Einarsson, skurðlæknir, segir yfirvöld hér á landi eiga að íhuga alvarlega að fara að dæmi Breta. 18. júlí 2026 kl. 17:07ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Markahæsti bronsleikur sögunnar England vann 4-6 gegn Frökkum í bronsleik HM karla í fótbolta. Þetta er markahæsti bronsleikur sögunnar og einn af markahæstu leikjum í sögunni. Frakklan