Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stórbruni í Drammen – 100 íbúðir brunnar til kaldra kola

Read Full Article →

Eldur logar í Drammen í Noregi þar sem yfir hundrað íbúðir hafa brunnið til kaldra kola. Mikill viðbúnaður slökkviliðs er á staðnum sem hefur enn ekki náð tökum á eldinum. Vegna vinds breiðist eldurinn hratt út. Hann breiðist í næsta hverfi og hefur læst sig í skóga nálægt raðhúsunum. Engin slys orðið á fólki Tilkynnt var um eld í íbúð í raðhúsi klukkan hálf fjögur að staðartíma í Noregi síðdegis. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði á vettvangi er erfitt að eiga við eldinn. Ekki er talið að nein alvarleg slys hafi orðið á fólki en nokkrir íbúar voru fluttir á sjúkrahús. Einn slökkviliðsmaður slasaðist lítillega. Íbúar beðnir um að yfirgefa svæðið og loka gluggum Mörg hundruð manns hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín. Mælst var til þess í neyðarskilaboðum sem send voru á íbúa. „Yfirgefið svæðið. Lokið dyrum, gluggum og loftopum og slökkvið á loftræstingu ef það er mögulegt, hætta er á sprengingu og eitruðum reyk,“ segir í skilaboðunum. Slökkvilið frá nærliggjandi bæjum aðstoða við slökkvistörf. Sprengingar heyrast á vettvangi. Upptök eldsins eru enn ókunn. Það hefur verið óvenjuheitt á þessum slóðum að undanförnu. Fréttin hefur verið uppfærð. Mikill eldur logar í röð íbúðarhúsa í Drammen í Noregi. Mikill viðbúnaður slökkviliðs er á staðnum og óskað hefur verið eftir aðstoð frá nærliggjandi bæjum. Ekki hefur enn náðst að ráða niðurlögum eldsins.

Share this article