Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Stúlkan fundin

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir 16. júlí 2026 kl. 17:28INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Stúlk­an fundin Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Unglingsstúlka sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir í gær er komin í leitirnar. Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum á Facebook kemur fram að stúlkan sé heil á húfi og lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð. Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Starfs­mað­ur í Hvíta húsinu grun­að­ur um inn­herja­svik vegna ræðna Banda­ríkja­for­seta Starfsmaður sem stýrir textavél í Hvíta húsinu er til rannsóknar fyrir að nýta innherjaupplýsingar til að veðja á hvaða orð Donald Trump myndi nota í ræðum sínum. Hann reyndi að innheimta rúma 90.000 dali en var stöðvaður og reikningurinn frystur. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Að minnsta kosti 12.000 um­fram­dauðs­föll vegna hita­bylgj­unn­ar Tölfræðilegar upplýsingar um dauðsföll í níu Evrópulöndum benda til þess að að minnsta kosti 12.000 umframdauðsföll megi rekja til hitabylgjunnar. Þessi tala gæti átt eftir að hækka þegar sambærilegar upplýsingar liggja fyrir frá fleiri löndum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Yfir 4.800 fórust í jarð­skjálf­t­un­um Brynja Dögg Friðriksdóttir Enn eru lík fórnarlamba að finnast í húsarústum í La Guaira í Venesúela svo tölur yfir fjölda látinna gætu átt eftir að hækka enn frekar. AP / Ariana Cubillos Yfirvöld í Venesúela hafa staðfest að 4.829 fórust í jarðskjálftunum í Venesúela 24. júní. Tugþúsunda er enn saknað og fólk leitar enn ástvina í rústum húsa og bygginga. Ríflega tuttugu þúsund manns misstu heimili sín í jarðskjálftunum og hafast við í tjaldbúðum þar sem víða er skortur á vatni og fullnægjandi hreinlætisaðstöðu. Þá slösuðust um 16.740 manns í skjálftunum en flestir hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Fjöl­miðla­fyr­ir­tæki Trumps hyggst selja hrað­ari aðgang að færsl­um for­set­ans Fjölmiðlafyrirtæki Donalds Trump ætlar að selja hraðari aðgang að færslum Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlum. Þjónustan á að hjálpa til við að brúa bilið fyrir fyrirtæki sem hingað til hafa treyst á handvirka vöktun á færslum á Truth Social. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Eldgos við Sundhnúksgíga Viss áhætta að taka upp skóla­hald að nýju í Grinda­vík Prófessor í jarðeðlisfræði segir líkur á því að eldsumbrotum við Grindavík sé lokið, en ef kvika haldi áfram að safnast fyrir gæti eldgos brotist út. Hann segir vissa áhættu tekna að hefja skólahald aftur og að íbúar verði að vera á vaktinni. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Vestri tapaði gegn Qara­bag öðru sinni Einar Örn Jónsson Vestri mætti Qarabag frá Aserbaísjan öðru sinni í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Qarabag vann fyrri leikinn í síðustu viku 3-0 og endurtók leikinn í kvöld með öðrum 3-0 sigri. Jaly Mouaddib skoraði fyrsta markið á 5. mínútu, Pedro Bicalho bætti öðru við á 29. mínútu og það þriðja skoraði Zakaria Sawo á 56. mínútu. Vestri er því úr leik í Evrópudeildinni í ár en fer í aðra umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Þar mætir liðið RFS frá Lettlandi og er fyrri leikurinn í Riga þann 23. júlí næstkomandi. Vestri er bikarmeistari en leikur í næstefstu deild eftir fall úr Bestu deildinni síðasta haust. Mummi Lú Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Mann­fólk­ið breyt­ist í slím á Ak­ur­eyri Menningar- og tónlistarhátíðin „Mannfólkið breytist í slím“ hófst á Akureyri í kvöld og heldur áfram um helgina. Að sögn slímmálaráðherra er markmið hátíðarinnar að ná til jaðarhópa og rækta vistkerfi menningar utan meginstrauma á Akureyri. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti FH aftur á topp­inn eftir stór­sig­ur Einar Örn Jónsson FH komst á ný í efsta sæti Bestu deildar kvenna í fótbolta eftir stórsigur á Grindavík/Njarðvík í kvöld. Grindavík komst yfir á 12. mínútu og var 1-0 yfir þar til á 41. mínútu en þá skoraði FH tvisvar fyrir leikhlé. FH bætti svo fjórum mörkum við í seinni hálfleik og vann með sex mörkum gegn einu. FH komst með sigrinum aftur í efsta sæti deildarinnar. FH er með 26 stig, tveimur meira en Breiðablik. Grindavík/Njarðvík er eftir sem áður í 6. sæti með 12 stig. Grindavík/Njarðvík - FH: 1-0 Hannah McLaughlin 1-1 Helena Errington 1-2 Ída Marín Hermannsdóttir 1-3 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir 1-4 Helena Errington 1-5 Nia Christopher 1-6 Ragnheiður Skúlad. FH fagnar marki fyrr í sumar RÚV / Mummi Lú Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær „Það er björt fram­tíð í Grinda­vík og við erum stór­huga fram á við“ Í dag er liðið ár síðan níunda eldgosið á Sundhnúksgígaröð hófst. Grindvíkingar hafa þurft að takast á við afleiðingar hamfaranna. Bæjarstjóri segir mikilvægt að breyta áföllunum í tilgang – tilgangurinn sé að byggja bæinn til framtíðar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Þyrla Gæsl­unn­ar sótti slas­að­an mann og flutti á Ak­ur­eyri Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti slasaðan mann á Sjúkrahúsið á Akureyri í kvöld. Ekki liggur fyrir hver líðan mannsins er. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Golf Suber efstur eftir fyrsta dag - Mc­Il­roy í miklu basli Einar Örn Jónsson Fyrsta hring Opna meistaramótsins í golfi er lokið á Royal Birkdale vellinum á Englandi. Þetta er í 154. sinn sem mótið fer fram. Bandaríkjamaðurinn Jackson Suber er nokkuð óvænt í efsta sæti. Hann lék fyrsta hring á 5 höggum undir pari og er höggi á undan næstu mönnum, Sungjae Im frá Suður-Kóreu og Englendingnum Daniel Brown. Rory McIlroy, sem margir binda vonir við á mótinu, var í talsverðum vandræðum í dag. Hann lék á tveimur höggum yfir pari og er í 85.-106. sæti. Eftir morgundaginn verður keppendahópurinn skorinn niður um helming og má reikna með að um 75 efstu komist áfram. Rory McIlroy átti erfiðan dag á Opna meistaramótinu í dag. EPA / ADAM VAUGHAN Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Degi ís­lenska fjár­hunds­ins fagnað í ell­efta sinn um helg­ina Dagur íslenska fjárhundsins verður haldinn hátíðlegur víða á laugardaginn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Við myndum bara gefa fólki úti á götu“ Leysist ekki úr húsnæðisvanda kaffistofu Samhjálpar verða matargjafir úti á götu, segir framkvæmdastjóri. Samtökin hafa tapað tugum milljóna vegna tafa á opnun, málið var rætt á fundi borgarráðs í dag. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Allar björg­un­ar­sveit­ir í Eyja­firði kall­að­ar út Lögregla, björgunarsveitir, sjúkraflutningamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út í Glerárdal suðvestur af Akureyri í kvöld vegna slasaðs manns. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Stjarn­an áfram eftir hasar í Fær­eyj­um Einar Örn Jónsson Stjarnan komst í dag áfram í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta. Stjarnan sótti Víking frá Götu heim til Færeyja. Stjarnan var með 3-1 forskot eftir fyrri leikinn í síðustu viku. Það forskot fór á þriggja mínútna kafla í seinni hálfleik þegar Aron Benjaminsen og Sölvi Vatnhamar skoruðu fyrir Víking. Stjarnan svaraði því með mörkum frá Birni Snæ Ingasyni (67. mínútu) og Guðmundi Baldvin Nökkvasyni (81. mínútu) og 2-2 fór. Stjarnan vann því 5-3 samanlagt og fer áfram og mætir Ilves frá Finnlandi í næstu umferð. Fyrri leikurinn er strax eftir viku. Stjarnan fagnar marki fyrr í sumar RÚV / Mummi Lú Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Borgin boðar frek­ari hag­ræð­ingu í ágúst Borgarstjóri segir að „nokkuð umsvifamiklar“ hagræðingaraðgerðir verði kynntar í næsta mánuði. Hún heldur sem stendur utan um upplýsingamál með aðstoð starfsmanna á skrifstofu borgarstjóra og segir fyrirkomulagið ganga vel. 16. júlí 2026 kl. 17:35ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Dval­ar­tími er­lendra stúd­enta og blaða­manna stytt­ur Takmörk verða sett á dvalarleyfi erlendra stúdenta og leyfi erlendra blaðamanna stytt samkvæmt nýjum tillögum Bandaríkjastjórnar. 16. júlí 2026 kl. 17:15ERLENDAR FRÉTTIR Íþróttir Al­þjóða­ól­ymp­íu­nefnd­in situr föst við sinn keip Alþjóðaólympíunefndin ætlar ekki að endurskoða þá ákvörðun að hleypa rússnesku ólympíunefndinni aftur inn. Níu Evrópusambandsríki höfðu krafist þess að sambandið stöðvaði fjárframlög til nefndarinnar af þeim sökum. 16. júlí 2026 kl. 16:57INNLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið „Chat con­trol“ gæti komið til Ís­lands í gegnum EES Innan Evrópusambandsins er deilt um nýjar reglur sem eiga að koma í veg fyrir dreifingu barnaníðsefnis á netinu. Tillagan gæti varðað EES-samninginn og gæti því haft bein áhrif á íslenska notendur dulkóðaðra samskiptaforrita. 16. júlí 2026 kl. 16:56INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Árekst­ur undir Ing­ólfs­fjalli Árekstur tveggja bíla varð á Suðurlandsvegi undir Ingólfsfjalli fyrir skömmu. Fjórir voru fluttir af vettvangi til skoðunar. Búið er að greiða úr töfum á umferð. 16. júlí 2026 kl. 16:17INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Siggi „hakk­ari“ játar að hafa svikið 28 millj­ón­ir frá fjölda fyr­ir­tækja Sigurður Þórðarson fékk í dag 18 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm og er gert að greiða rúmar tíu milljónir króna í bótakröfur og í sakarkostnað. Hann sveik 28 milljónir frá fyrirtækjum og er dæmdur fyrir fjársvik, skjalafals og vopnalagabrot. 16. júlí 2026 kl. 16:12INNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Hrís­eyj­ar­ferj­an dró vél­ar­vana bát til hafnar Ásrún Aldís Hreinsdóttir Hvalaskoðunarbáturinn Brimir var dreginn vélarvana til hafnar á Árskógssandi síðdegis í dag. Tveir voru um borð í bátnum en engir farþegar. Hríseyjarferjan Sævar dró bátinn inn til hafnar en Brimir varð vélarvana rétt fyrir utan Árskógssand. Engin slys urðu á fólki og björgunin gekk vel. Aðsend Aðsend Fréttin var leiðrétt. Brimir var dreginn til hafnar á Árskógssandi. 16. júlí 2026 kl. 16:09INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Tveir úr sam­skiptateymi borg­ar­inn­ar vinna upp­sagn­ar­frest­inn Hildur Björnsdóttir borgarstjóri heldur utan um upplýsingamál með aðstoð starfsfólks skrifstofu borgarstjóra. Öllum upplýsingafulltrúum var sagt upp en tveir þeirra vinna út uppsagnarfrest til áramóta. Nýtt fyrirkomulag verður kynnt á næstu vikum. 16. júlí 2026 kl. 16:04ERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Segir yf­ir­mann úkra­ínska hers­ins ala á s

Share this article