- What: Icelandic news summary including a found girl, health care issues, and coastal erosion.
- Impact: General awareness of current events in Iceland.
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Stúlkan fundin heil á húfi Rebekka Líf Ingadóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir stúlku í kvöld sem er fundin heil á húfi. Því hafa allar persónugreinanlegar upplýsingar verið fjarlægðar úr þessari frétt. Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Til skoðunar að gera hlé á skurðaðgerðum Ef um væri að ræða einhverja aðra starfsemi, þá væri búið að loka henni segir forstjóri Landspítala um ástandið á bráðamóttöku. Rætt hefur verið um að gera hlé á stórum hluta skurðaðgerða til að búa til legurými. Fyrir 34 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Mýrdalshreppur Berjast við náttúruöflin í Reynisfjöru Landeigendur í Reynisfjöru freista þess að verja viðvörunarskiltin í fjörunni, en vegna landrofs og sjávargangs var byrjað að grafa undan þeim og hætta á að þau hryndu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Leggja til 12,6 milljarða arðgreiðslu Stjórn Íslandsbanka mun leggja til 12,6 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Hagnaður af rekstri bankans árið 2025 nam 25,2 milljörðum króna og var arðsemi eiginfjár 11,2 prósent. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Vill sjá NATO 3.0 Aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir tímabært að breyta Atlantshafsbandalaginu og að Evrópa axli ábyrgð á eigin vörnum þótt Bandaríkin haldi áfram kjarnorkuvopnum í álfunni. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Ljóst hverjum Ísland mætir í Þjóðadeild Í dag var dregið í Þjóðadeild Evrópu í fótbolta en karlalandsliðið leikur í C-deild. Ísland mætir Búlgaríu, Eistland og annað hvort Lúxemborg eða Möltu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Þetta er svo galið ástand“ Formaður Félags hjúkrunarfræðinga segir fólk liggja upp undir tíu daga á bráðamóttökunni. Hún lýsir ástandinu sem gölnu. Hjúkrunarfræðingur sem vinnur á bráðamóttökunni segir viðbragðið þar ekki í lagi eins og staðan er í dag. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Íþróttir Áfengið velkomið á leikvöngum Reykjavíkur Reglur um sölu áfengis á íþróttaviðburðum hafa verið rýmkaðar í Reykjavík. Nú má selja áfengi að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Fólkið í Epstein-skjölunum sem hefur stigið til hliðar Birting Epstein-skjalanna hefur haft meiri áhrif í Evrópu en Bandaríkjunum. Hverjir hafa stigið til hliðar eftir að hafa birst í skjölunum? Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Sauð upp úr í yfirheyrslu um Epstein-skjölin Hækkaður rómur og fúkyrði á víxl einkenndu yfirheyrslu dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á Pam Bondi dómsmálaráðherra í gær. Þingmenn spurðu Bondi út í meðferð dómsmálaráðuneytisins á Epstein-skjölunum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Rektor Bifrastar keypti hús af skólanum Þrír starfsmenn Háskólans á Bifröst, þar á meðal rektor, keyptu fasteignir í eigu Kiðár ehf., dótturfélags skólans, árið 2024. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, sem sat í stjórn félagsins þegar húsin voru seld, segir viðskiptin hafa verið eðlileg. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Samþykktu hækkun skráningargjalda í 100.000 krónur Háskólaráð samþykkti hækkun skráningargjalda fyrir Háskóla Íslands á fundi í dag. Nemendur mótmæltu áformum um hækkunina við upphaf fundarins. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Starfsmenn í hættu vegna hraðaksturs á vinnusvæði Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Einungis 30 ökumenn virtu hámarkshraða þegar Lögreglan á Vesturlandi var við hraðamælingar á vinnusvæði Vegagerðarinnar í Norðurárdal við Bjarnadalsá í gær. 46 ökumenn voru á svo miklum hraða að það kallaði á ökuleyfissviptingu á staðnum. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar. Hámarkshraðinn á vinnusvæðinu var minnkaður úr 90 km/klst niður í 30 km/klst. Lögreglan mældi 295 bifreiðar með hraðamyndavélabíl. 265 óku yfir hámarkshraða, 169 voru yfir sektarmörkum og sá sem hraðast ók mældist á 116 kílómetra hraða. Lögreglan segir starfsmenn Vegagerðarinnar hafa verið í hættu vegna hraðakstursins. „Starfsmenn Vegagerðarinnar voru sannarlega í hættu vegna hraða margra ökumanna sem óku um vinnusvæðið,“ segir í færslu lögreglunnar á Vesturlandi á Facebook. RÚV / Alexander Kristjánsson Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Zelensky tjáir sig um hjálmamálið: „Íþróttir þýða ekki minnisleysi“ Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, tjáði sig um bann íþróttakappans Vladyslav Heraskevych á Vetrarólympíuleikunum. Zelensky segir að íþróttir ættu ekki að þýða minnisleysi og að ólympíuhreyfingin ætti að stöðva stríð fremur en hið andstæða. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fullar endurbætur á Fjarðarheiði gætu kostað tæpa tíu milljarða Vegagerðin telur að það gæti kostað allt að 9,5 milljarða að endurbæta veginn um Fjarðarheiði þannig að hann uppfylli kröfur. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Handalögmál á tyrkneska þinginu Tyrkneskir þingmenn slógust í gær eftir umdeilda skipun ráðherra. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjallabyggð Rafmagnslaust á Siglufirði Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Rafmagnslaust var á Siglufirði milli þrjú og fimm í dag vegna bilunar. Bilunin náði til alls bæjarins og hafði áhrif á um þrettán hundruð manns. Samkvæmt upplýsingum frá Rarik er viðgerðum lokið og ekki búist við frekari truflunum. Rarik Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Íslendingar setja milljarð í vopnakaup fyrir Úkraínu Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu í gegnum sérstakt verkefni á vegum NATO. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Undiraldan er fjölbreytt og frískandi Það var komið víða við í Undiröldunni þessa vikuna og ný íslensk lög sett á fóninn frá Kristmundi Axel og Bubba Morthens, Inspector Spacetime og fleirum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Giséle Pelicot í viðtali: „Þetta er ekki ég“ „Þetta er ekki ég,“ sagði Giséle Pelicot þegar hún sá fyrst myndir sem eiginmaður hennar hafði tekið af henni þegar hún var meðvitundarlaus. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að nauðga henni og fengið tugi manna til að gera hið sama. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tilkynna endalok stóraðgerða ICE í Minnesota Tom Homan kveðst hafa fengið samþykki Trumps fyrir að ljúka stóraðgerðum innflytjendastofnunarinnar ICE í Minnesota. Íbúar ríkisins hafa mótmælt aðgerðum ICE harkalega og tveir bandarískir ríkisborgarar verið drepnir í aðgerðum ICE í ríkinu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Ríkisstofnanir hafa afskrifað um 2,3 milljarða af skuldum Háskólans á Bifröst Deilurnar í Háskólanum á Bifröst halda áfram þrátt fyrir starfslok rektors. Þrír kennarar sem voru kærðir til siðanefndar hóta að stefna skólanum. Bifröst hefur staðið í ströngu á liðnum árum vegna erfiðrar skuldastöðu. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Kristrún dæmd úr leik — „Svo eyðileggur maður allt því maður nær ekki að taka rétta beygju“ Kristrún Guðnadóttir var dæmd úr leik í 10 kílómetra skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum fyrir að sleppa brekku. Þetta var seinni grein Kristrúnar á leikunum og hún hefur nú lokið keppni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Vill að atvinnuveganefnd ræði veiðiráðgjöf Brynjólfur Þór Guðmundsson Fulltrúi Flokks fólksins í atvinnuveganefnd Alþingis vill að nefndin taki ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um loðnuveiði til umræðu. Sigurjón Þórðarson þingmaður segir að ef veiðiheimildir væru miðaðar alfarið við stofnstærðarmælingu loðnu í janúar og minni mælingu i haust sleppt væru veiðiheimildirnar líklegast 100 þúsund krónum meiri en nú er. Þetta segir hann að gæti skilað 23 milljörðum miðað við þær 230 krónur sem fást nú á kílóið í Færeyjum. Sigurjón Þórðarson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Stuðningur við Úkraínu aðalmálið á fundi utanríkisráðherra NATO-ríkjanna Bresk stjórnvöld ætla að verja hálfum milljarði punda í loftvarnir í Úkraínu og fleiri ríki tilkynna um stuðning sinn í dag. Staðan í Úkraínu er aðalumræðuefnið á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel í dag. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Gamla bandaríska sendiráðið verði rifið að hluta og breytt í íbúðarhúsnæði Til stendur að rífa viðbyggingar gamla sendiráðs Bandaríkjanna í Þingholtunum og byggja þar upp íbúðahúsnæði. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Nemendur mótmæltu hækkun skráningargjalda Háskólaráð fjallar í dag um tillögu um að hækka skrásetningargjald úr 75 þúsund krónum í 100 þúsund krónur. Hópur nemenda mætti og mótmælti hækkuninni. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Golf Frostið setur golfvelli á óþægilegan stað Eftir mildan vetur á höfuðborgarsvæðinu er kuldaboli mættur til að hrella vallarstjóra á golfvöllum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Æskilegt að koma daglegri hreyfingu inn í skólastarf Æskilegt væri að koma daglegri hreyfingu inn í skólastarf, að mati lektors við íþróttadeild Háskólans í Reykjavík. Í framtíðarsýn stjórnvalda er eitt markmið að offita meðal barna verði ekki algengust á Íslandi af ríkjum Norðurlandanna. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Handbolti Veit að gagnrýnin kemur frá góðum stað en öllu má ofgera Björgvin Páll markvörður segir gagnrýnina aldrei hafa verið jafn mikla og á nýliðnu Evrópumeistaramóti. Þó hann nýti gagnrýnina til góðs taki aðrir leikmenn misvel í hörð orð. Nú er hann í nýju hlutverki sem getur verið krefjandi. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heimsglugginn Søreide tekur við af Solberg Erna Solberg hættir sem formaður norska íhaldsflokksins Høyre eftir 22 ár og Ine Eriksen Søreide tekur við. Þá var mikilvægi samvinnu rætt í Heimsglugganum í tilefni af eldheitri hvatningu Bertels Haarders til að efla norræna varnarsamvinnu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál SA lagði VR í félagsdómi Samtök atvinnulífsins höfðu betur gegn VR í deilu félaganna um kauptaxtaauka. VR var ósátt við túlkun SA á kjarasamningi og fékk Alþýðusambandið til að höfða mál