Laugar ehf., sem rekur 20 líkamsræktarstöðvar undir merkjum World Class, hagnaðist um 995 milljónir króna árið 2025, samanborið við 965 milljóna króna hagnað árið áður. Stjórn félagsins leggur til að hagnaði ársins verði ráðstafað til næsta árs og ekki er gerð tillaga um úthlutun arðs, að því er kemur fram í nýbirtum ársreikningi. Velta World Class jókst um 7,9% milli ára og nam rúmum 6,8 milljörðum króna. Rekstrargjöld jukust um 10,3% og námu tæplega 5,7 milljörðum. Ársverk voru 130 en 128 árið áður. Rekstrarhagnaður (EBIT) Lauga dróst lítillega saman milli ára og nam 1.176 milljónum króna. Eignir Lauga námu 4,0 milljörðum króna og eigið fé var um 2,7 milljarðar króna. Félagið greiddi út 250 milljónir króna í arð í fyrra. Systurfélagið Í toppformi ehf., sem heldur á fasteignum World Class á Íslandi, var með eignir upp á 6,7 milljarða og 1,3 milljarða í eigið fé í lok árs 2024. Fasteignafélagið hefur ekki birt ársreikning fyrir árið 2025. Sjá einnig Í toppformi á fasteignir fyrir 6,7 milljarða Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir eiga 36,6% hvort í félögunum tveimur og Sigurður Leifsson fer með 26,8% hlut.