Birgitta Líf Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs World Class og Laugar Spa. Í tilkynningu þar sem greint er frá þessu segir að starfsemin hafi vaxið og þróast hratt undanfarin ár. Breytingin sé liður í áframhaldandi uppbyggingu og þróun starfseminnar og komi til samhliða ráðningu nýs markaðsstjóra fyrirtækjanna. Birgitta Líf hefur starfað hjá World Class um árabil og gegnt þar lykilhlutverki í uppbyggingu markaðsstarfs fyrirtækisins. Undanfarin ár hefur hún stýrt markaðsmálum World Class og Laugar Spa og leitt fjölbreytt verkefni sem tengjast vörumerkjauppbyggingu, stafrænum miðlum og þróun markaðs- og þjónustulausna. Í nýju hlutverki mun Birgitta Líf leiða þróunar- og markaðssvið fyrirtækjanna með áherslu á stefnumótun, áframhaldandi uppbyggingu vörumerkjanna og þróunarverkefni sem styðja við vöxt og þjónustu við viðskiptavini. „Undir sviðinu starfar öflugt teymi sem vinnur að markaðs- og þróunarmálum fyrirtækjanna, þar á meðal nýráðin Anna Bergmann markaðsstjóri, Heiðrún Guðmundsdóttir stafrænn markaðsfræðingur, Kjartan Oddason yfirmaður stafrænnar stefnu og hönnunar og Ásthildur Bára Jensdóttir rekstrarþróunarstjóri,“ segir í tilkynningunni. Birgitta Líf er með BA-gráðu í lögfræði, hefur lokið meistaranámi í alþjóðaviðskiptum og miniMBA námi í markaðsfræði. „World Class og Laugar Spa hafa vaxið og þróast hratt undanfarin ár og það er spennandi að fá tækifæri til að leiða áframhaldandi þróun markaðs- og þjónustumála fyrirtækjanna. Við erum með sterkt teymi og skýra framtíðarsýn og ég hlakka til að vinna áfram að uppbyggingu og þróun starfseminnar,“ segir Birgitta Líf Björnsdóttir.