Innlent | mbl | 16.7.2026 | 16:10 | Uppfært 16:26 Siggi hakkari fær 18 mánaða skilorð fyrir tugmilljónasvik Sigurður Ingi Þórðarson er betur þekktur sem Siggi hakkari. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Sigurður Ingi Þórðarson (Siggi hakkari) Umdeildir þættir tilnefndir til verðlauna „Sigurður beitti son okkar hrottalegu ofbeldi“ Sigurður áfram í síbrotagæslu Dæmdur í þriggja ára fangelsi Sigurður játar kynferðisbrot » Fleiri tengdar fréttir Kynferðisbrotamaðurinn Sigurður Ingi Þórðarson, sem einnig er þekktur undir nafninu Siggi hakkari, hefur verið dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ógrynni brota, mestmegnis skjalafals og fjársvik sem hlaupa samtals á tugum milljóna króna, en einnig vopnalagabrot. Heildarfjárhæðin var hátt í þrjátíu milljónir króna sem Sigurður sveik út úr tugum fyrirtækja, en hann játar brot sín skýlaust, að því er fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur . Dómurinn er alls 23 blaðsíður að lengd, og þar af fara sautján blaðsíður í að telja upp brot Sigurðar sem framin voru á árunum 2019-2021. Frétt af mbl.is Siggi hakkari tók sér frest Frétt af mbl.is Sigurður áfram í síbrotagæslu Blekkti starfsfólk til að heimila viðskiptin Brotin framdi Sigurður flest með þeim hætti að hann pantaði vörur undir dulnefni í gegnum tölvupóst og í nafni félaga eða fyrirtækja sem voru í rauninni ekki með virka starfsemi, og kom sér síðan undan því að greiða fyrir þær. Sigurður hringdi gjarnan á undan sér og kynnti sig sem framkvæmdastjóra eða starfsmann hinna uppskálduðu fyrirtækja til þess að auka traustverðugleika sinn og blekkja starfsfólk viðkomandi fyrirtækis til þess að heimila reikningsviðskipti með gjaldfresti. Hann fékk vörurnar ýmist afhentar til sín eða til annarra fyrir sína hönd, en ekki er kveðið nánar á um refsingu vitorðsmanna hans í dómnum. Mest sveik Sigurður vörur fyrir samtals 2.294.177 krónur frá einu fyrirtæki. Frétt af mbl.is Siggi hakkari: „Ég játa sök“ Meðferð málsins dregist óhóflega Einhverjum kann að þykja refsingin væg, í ljósi fyrri brota Sigurðar og umfangs svikanna, en þrátt fyrir að umfang dómsins sé mikið er það mat dómsins að meðferð málsins hafi dregist óhóflega og ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að Sigurði verði sérstaklega um það kennt. Með hliðsjón af því og brotum hans þykir refsingin hæfilega ákveðin í átján mánuði, en í ljósi þess hve meðferð málsins tafðist verður refsingin skilorðsbundin. Frétt af mbl.is Dæmdur í þriggja ára fangelsi Dýr merkjafatnaður og áfengi gert upptækt Sigurði er gert að endurgreiða flestum fyrirtækjanna alls 6,9 milljónir fyrir það sem hann sveik af þeim, en bótakröfum þriggja fyrirtækja var vísað frá þar sem frá þeim bárust hvorki tilkynningar um lögmæt forföll né var ákæruvaldinu falið að sækja þing fyrir þeirra hönd. Þá var honum gert að greiða 4,2 milljónir í sakarkostnað. Þá var Sigurði gert að sæta upptöku á þremur hnífum í kassa, fimm Rolex-úrum, fjöldanum öllum af raftækjum og dýrum vínflöskum, merkjavörufatnaði frá merkjum á borð við Ralph Lauren, Prada og Louis Vuitton sem fundust á heimili hans. Frétt af mbl.is Greiði Wikileaks 7 milljónir Vaktaður fyrir síbrot Sigurður hefur áður hlotið þunga dóma fyrir fjársvik, en hann var árið 2014 dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjölda afbrota, þó aðallega fjársvika. Frétt af mbl.is Sveik út pítsur og bíómiða Játaði hann þá að hafa svikið út um þrjátíu milljónir, en hann var dæmdur til að greiða samtökunum Wikileaks rúmar sjö milljónir sem hann sveik frá samtökunum. Hafði Sigurður stuttu áður fengið átta mánaða dóm fyrir kynferðisbrot gegn 17 ára pilti. Frétt af mbl.is Sigurður játar kynferðisbrot Árið 2015 var hann svo dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir brot gegn níu drengjum, meðal annars gegn einum piltanna alls 40 sinnum á tveggja ára tímabili. Sagði í niðurstöðu dómsins að brot Sigurðar hafi verið umfangsmikil og brotavilji hans einbeittur. Tengdar fréttir Sigurður Ingi Þórðarson (Siggi hakkari) Umdeildir þættir tilnefndir til verðlauna „Sigurður beitti son okkar hrottalegu ofbeldi“ Sigurður áfram í síbrotagæslu Dæmdur í þriggja ára fangelsi Sigurður játar kynferðisbrot » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ömurlegar fréttir fyrir landsliðsmanninn Selenskí skipar nýjan varnarmálaráðherra Beint: Fundur Áfram Ísland á Akranesi Lögreglan leitar að Sæbjörgu Til Víkings Ólafsvíkur í þriðja sinn Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Farþegi stakk leigubílstjóra Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Hitamet sumarsins fallið Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Hundruðum eldri nemenda vísað frá „Það var ekkert að hjólinu“ Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður „Hell week“ á Seyðisfirði Innkalla Vogaídýfu Valgeir Örn ráðinn frá RÚV til Landsnets Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi Einn fær 552,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Ömurlegar fréttir fyrir landsliðsmanninn Selenskí skipar nýjan varnarmálaráðherra Beint: Fundur Áfram Ísland á Akranesi Lögreglan leitar að Sæbjörgu Til Víkings Ólafsvíkur í þriðja sinn Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hitamet sumarsins fallið Spara mætti milljarða Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Brottfallið litið alvarlegum augum Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Hundruðum eldri nemenda vísað frá „Það var ekkert að hjólinu“ Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður „Hell week“ á Seyðisfirði Innkalla Vogaídýfu Valgeir Örn ráðinn frá RÚV til Landsnets Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi Einn fær 552,5 milljónir