Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Sigurð Þórðarson í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals, fjársvik og vopnalagabrot. Sigurður, sem stundum hefur verið kallaður „Siggi hakkari“, sveik rúmar 28 milljónir frá fjölda fyrirtækja á árunum 2019 til 2021. Hann játaði brotin skýlaust. Í mörgum tilfellum þóttist Sigurður vera framkvæmdastjóri ónefndra fyrirtækja, til dæmis með því að framvísa fölsuðum ársreikningum eða öðrum skjölum, og pantaði dýrar vörur sem hann greiddi ekki fyrir. Samlokugrill, úr og tískufatnaður gerður upptækur Sigurði er gert að greiða sex fyrirtækjum um sjö milljónir króna. Honum er auk þess gert að greiða tæpar þrjár milljónir í málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns og eina milljón og 400 þúsund krónur í annan sakarkostnað. Sigurður samþykkti bótakröfurnar en krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa. Vegna þess hve meðferð máls hans dróst lengi er dómurinn skilorðsbundinn. Dómurinn kveður á um að ýmsir munir Sigurðar, sem má gera ráð fyrir að sé góss svika hans, verði gerðir upptækir. Þar á meðal eru ýmis konar dýr fatnaður frá tískuvörumerkjum, viskí og annað áfengi, raftæki, þar á meðal dróni, húsgögn og hnífar. Sigurður sætir upptöku á þessum munum: Þremur hnífum í kassa, hnífatösku og hnífum Tveimur vínfötum og standi Tveimur rose gold Bourgie lömpum Cino professional kaffivél LG sjónvarpi (77 tommu) Aarke sodastream tæki Fuzzy kolli Sonos kassa Tveimur Sonos hljóðstöngum Hníf í kassa merktum Funktion Apple TV Chivas Regal 15 ára vískíflösku Glenfarclas viskíflösku 25 ára The Macallan Rare Cask viskíflösku Flösku af Glenfiddich Single Malt 18 ára Flösku af Glenfiddich Single Malt 26 ára Flösku af The Dalmore King Alexander III Flösku af The Macallan 12 ára Flösku af Chivas Regal Fimm Rolex úrum (vantar á ól) Einu Patek Philippe Geneve úri Einu Orient úri Ivy n Rox úri AP Pignette úri Bose hljóðkerfi með fjórum hlutum Tveimur Nest Hub Google vekjaraklukkum Mii hleðsludokku Tveimur gold Bourgie lömpum Apple TV ásamt fjarstýringu og tveimur snúrum LG sjónvarpi (55 tommu) Tveimur iPhone 12 í óopnuðum umbúðum Lenovo tabM10 spjaldtölvu Fjórum Sonos hátölurum Tveimur Bose hátölurum Lyklakippu með 9 lyklum og 3 aðgangshnöppum Dróna af gerðinni DJI ásamt fjarstýringu Pappírum Poka og handfangi Fjórum blekhylkjum Tveimur Dom Perignon flöskum Einni Belluga Vodka flösku Einni Diamond Vodka flösku Kassa af Chateau Batailley (6x750ml) Einni flösku af Louis XIII Einni skóburstunarvél Tveimur samlokugrillum Tveimur 66° Norður Þórsmörk úlpum Bugatti ullarfrakka Hugo Boss sportjakka Finucci ullarfrakka Burberry leðurjakka Hugo Boss vesti Jakka merktum Landsbjörgu Gráum Polo Ralph Lauren jakka Polo Ralph Lauren vesti Polo Ralph Lauren dökkbláum jakka Polo Ralph Lauren dúnúlpu 66° Norður Jökla parka úlpu 66° Norður flísvesti BOSS vesti The North Face vesti BOSS strigaskóm Louis Vuitton spariskóm Louis Vuitton bláum spariskóm Louis Vuitton brúnum götuskóm Hugo Boss leðurstrigaskóm Prada strigaskóm Louis Vuitton strigaskóm Garmin Aviator úr ásamt kassa og hleðslusnúru Sigurður var dæmdur fyrir vopnalagabrot fyrir að hafa haft sex piparúða, tvær útdraganlegar kylfur og eina rafstuðsbyssu í vörslu sinni. Brotin þóttu sönnuð með játningu Sigurðar og með gögnum sem lágu fyrir. Við ákvörðun refsingar litu dæmendur til játningar, langs sakaferils hans og hve umfangsmikil og skipulögð brotin voru. Sigurður hefur áður verið dæmdur fyrir kynferðisbrot, fjársvik, þjófnað, tollalagabrot, umferðarlagabrot, eignaspjöll og fleiri brot. Hann var dæmdur í sex mánaða fangelsi í Danmörku í mars vegna skjalafals og fjársvika og í Póllandi var hann dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi, m.a. vegna umferðarlagabrota.