Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vélarvana bátur dreginn til hafnar á Hrísey

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Hrís­eyj­ar­ferj­an dró vél­ar­vana bát til hafnar Ásrún Aldís Hreinsdóttir Hvalaskoðunarbáturinn Brimir var dregin vélarvana til hafnar á Árskógssandi síðdegis í dag. Tveir voru um borð í bátnum en engir farþegar. Hríseyjarferjan Sævar dró bátinn inn til hafnar en Brimir varð vélarvana rétt fyrir utan Árskógssand. Engin slys urðu á fólki og björgunin gekk vel. Aðsend Aðsend Fréttin var leiðrétt. Brimir var dreginn til hafnar á Árskógssandi. Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Siggi „hakk­ari“ játar að hafa svikið 28 millj­ón­ir frá fjölda fyr­ir­tækja Sigurður Þórðarson fékk í dag 18 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm og er gert að greiða rúmar tíu milljónir króna í bótakröfur og í sakarkostnað. Hann sveik 28 milljónir frá fyrirtækjum og er dæmdur fyrir fjársvik, skjalafals og vopnalagabrot. Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Tveir úr sam­skiptateymi borg­ar­inn­ar vinna upp­sagn­ar­frest­inn Hildur Björnsdóttir borgarstjóri heldur utan um upplýsingamál með aðstoð starfsfólks skrifstofu borgarstjóra. Öllum upplýsingafulltrúum var sagt upp en tveir þeirra vinna út uppsagnrfrest til áramóta. Nýtt fyrirkomulag verður kynnt á næstu vikum. Fyrir 26 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Segir yf­ir­mann úkra­ínska hers­ins ala á sundr­ungu Ríkisstjórnarskipti í Úkraínu, sem Volodymyr Zelensky tilkynnti fyrr í vikunni, hafa valdið úlfúð í úkraínsku þjóðfélagi. Þau hafa svipt hulunni af deilum milli fráfarandi varnarmálaráðherra og yfirmanns úkraínska hersins. Fyrir 50 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Falk­lands­eyj­ar og fót­bolti – hvað gerir FIFA? Argentína vann góðan endurkomusigur á Englandi í undanúrslitum heimsmeistaramóts karla í gærkvöld. Mikil saga er á milli ríkjanna og leikir liðanna gjarnan verið áhugaverðir. Argentínumenn gerðust pólitískir við leikslok. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Við­var­andi lokun sund­laug­ar í Öx­ar­firði baga­leg fyrir ferða­þjón­ustu Ferðamenn í Ásbyrgi aka yfir 60 kílómetra til að komast í sund því sundlaugin í Lundi í Öxarfirði er lokuð og óvíst hvenær endurbætur verða gerðar á henni. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tvennt dæmt fyrir kóka­ín­smygl Brynjólfur Þór Guðmundsson Karl og kona frá Póllandi voru í gær dæmd til fangelsisvistar fyrir tilraun til að smygla tæplega hálfu kílói af kókaíni til landsins. Smyglið uppgötvaðist þegar fólkið kom til Keflavíkurflugvallar frá Katowice í Póllandi. Bæði voru þau með efnin falin inni á sér. Karlmaðurinn fékk átta mánaða fangelsisdóm og konan sex mánuði. Fólkið átti efnin ekki heldur tók að sér að smygla þeim gegn greiðslu. Fólkið var sakfellt í Héraðsdómi Reykjaness. Ruv.is / Anton Brink Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Há­lendis­vakt Lands­bjarg­ar stend­ur vakt­ina Hálendisvakt slysavarnarfélagsins Landsbjargar stendur vaktina á hálendinu í sumar. Vaktin sinnir ýmsum verkefnum og segir verkefnastjóri Landsbjargar vel hafa gengið að manna vaktirnar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Eldgos við Sundhnúksgíga „Eitt sem er alveg hægt að slá föstu er að þessum um­brot­um er ekki lokið“ Eitt ár er liðið frá síðasta eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni. Jarðeðlisfræðingur segir ljóst að eldsumbrotunum á Reykjanesskaga sé ekki lokið. Alls hefur gosið 12 sinnum þar frá árinu 2021. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Prót­ein popp inn­kall­að Fréttastofa RÚV Iðnmark hefur innkallað þrjár framleiðslulotur af Stjörnu prótein poppi vegna þess að mjólk var ekki gefin upp í innihaldslista á umbúðum. Loturnar sem eru innkallaðar eru með dagsetningarnar 03.11.26, 20.10.26 og 05.10.26. Matvælastofnun varar fólk með ofnæmi eða óþol fyrir mjólk við poppinu og hvetur það til að henda því eða skila inn gegn endurgreiðslu. Iðnmark innkallaði framleiðsluloturnar þrjár í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ítalía 32 sak­felld­ir vegna brúar sem hrundi í Genóa Yfirmaður fyrirtækisins sem rak brú í Genóa sem hrundi 2018 var í dag dæmdur til tólf ára fangelsisvistar. 32 af 57 sakborningum voru sakfelldir. 43 fórust þegar brúin hrundi. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Sungið um BDSM, lækna og svín Það er af nógu að taka í Undiröldunni þessa vikuna þar sem Kaktus Einarsson ásamt John Grant, Kristján Saenz ásamt Bríet, 666° Norður og fleiri mæta með nýja tónlist. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ísafjarðarbær Hnútu­kast á bryggj­unni á Ísa­firði Það gekk á ýmsu á bryggjunni á Ísafirði í morgun þegar rúmlega sex þúsund farþegar á fjórum skemmtiferðaskipum komu í land. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL List „Mjódd­in er tign­ar­leg eins og álfa­höll“ Menning er það sem gerir okkur mennsk, segir leikstjóri Götuleikhúss Hins hússins. Götuleikhúsið hefur glatt borgarbúa með ýmis konar furðulegum uppákomum í sumar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ungir bændur and­víg­ir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og ESB Samtök ungra bænda taka skýra og einróma afstöðu gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið og þar með gegn frekari aðildarviðræðum og þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ákærð­ur fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stiga­palli Karlmaður sætir ákæru fyrir að svipta konu frelsi klukkustundum saman, nauðga henni og beita hana miklu ofbeldi. Konan krefst 15 milljóna í bætur. Hann er jafnframt ákærður fyrir hættulega árás á aðra konu. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Kald­hæðni ör­lag­anna – þegar Messi baðaði Yamal Spánn og Argentína mætast í úrslitum heimsmeistarkeppninnar á sunnudaginn. Lionel Messi og Lamine Yamal mætast þá í fyrsta skipti á vellinum en fyrir 19 árum mættust þeir á öðrum og heldur óvanalegum vettvangi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ólafur Þór verður næsti sveit­ar­stjóri Skaga­strand­ar Brynjólfur Þór Guðmundsson Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að ráða Ólaf Þór Ólafsson í embætti sveitarstjóra. Hann tekur við starfinu 1. ágúst. Ólafur hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarstörfum. Hann var sveitarstjóri í Reykhólahreppi og Tálknafjarðarhreppi auk þess að sitja í bæjarstjórn Sandgerðisbæjar þar sem hann var forseti bæjarstjórnar. 16 sóttu um starfið og varð Ólafur Þór fyrir valinu. Formlega verður gengið frá ráðningunni á fundi sveitarstjórnar í næstu viku. Ólafur Þór Ólafsson. RÚV / Jóhannes Jónsson Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Sjúkra­hús rýmt vegna árása Banda­ríkj­anna Íranar saka Bandaríkjamenn um grimmdarlegar árásir eftir að rýma þurfi sjúkrahús með krabbameinssjúklingum vegna árása. Bandaríkin hafa fært árásir sínar norður eftir Íran, nær höfuðborginni Tehran. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Orku­for­stjóri nýr for­sæt­is­ráð­herra Úkra­ínu Úkraínska þingið samþykkti í morgun tilnefningu Sergiys Koretsky í embætti forsætisráðherra. Uppstokkun Volodymyrs Zelensky forseta hefur mætt mikilli gagnrýni. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Val­geir Örn ráðinn til Lands­nets Brynjólfur Þór Guðmundsson Valgeir Örn Ragnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður samskipta hjá Landsneti. Hann hefur störf í næsta mánuði. Valgeir Örn hefur starfað í fjölmiðlum í nærri tvo áratugi og var síðustu árin varafréttastjóri RÚV og einn umsjónarmanna Silfursins. Valgeir sér um samskipti Landsnets við almenning, hagaðila og fjölmiðla auk þess að bera ábyrgð á innri upplýsingagjöf til starfsfólks. Valgeir Örn Ragnarsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Almar tekur við for­mennsku Brynjólfur Þór Guðmundsson Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, er sjálfkjörinn næsti formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann var eini sveitarstjórnarmaðurinn sem skilaði inn framboðstilkynningu áður en frestur rann út á miðnætti. Almar tekur við formennskunni af Jóni Birni Hákonarsyni á landsþingi sambandsins í september. Almar hefur verið bæjarstjóri í Garðabæ í fjögur ár og setið í bæjarstjórn í tólf ár. Hann hefur setið í stjórnum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins síðustu ár. Almar Guðmundsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Slökkvi­liðs­stjór­inn látinn fara vegna rann­sókn­ar á fjár­reið­um slökkvi­liðs­ins Stjórn Brunavarna Árnessýslu komst að samkomulagi við slökkviliðsstjórann um starfslok eftir að ábendingar bárust um atriði í fjármálum slökkviliðsins. Stjórnin vísaði tilteknum þáttum til rannsóknar lögreglu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kanada Í lest í miðju eld­hafi Gróðureldar hafa logað víða í Kanada og haft áhrif á bæði samgöngur og loftgæði. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilsa Inn­kalla ídýfu vegna hveit­is Fréttastofa RÚV Mjólkursamlag KS hefur innkallað nokkrar framleiðslulotur af Voga ídýfu með kryddi. Í innihaldslýsingu kemur ekki fram að ídýfan innihaldi hveiti sem er ofnæmisvaldur. Innköllunin nær yfir allar dósir af Voga ídýfu með kryddi sem eru merktar með best fyrir dagsetningar á bilinu 28. júlí til 30. október. Lotunúmerin eru 26-0744 til og með 26-1630. Fyrirtækið hvetur fólk sem hefur ofnæmi eða óþol fyrir hveiti til að henda vörunni eða skila henni í búð þar sem hún var keypt og fá endurgreitt. KS Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Hver endar með gull­skó­inn? Aðeins tveir leikir eru eftir af heimsmeistaramóti karla í fótbolta og því er keppnin um gullskóinn að harðna. Lionel Messi og Kylian Mbappé eru jafnir í efsta sæti með átta mörk en hvar endar skórinn? Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Vilja fella leyfi til blóðmera­halds úr gildi Tvenn íslensk og tíu erlend dýraverndarsamtök krefjast þess að atvinnuvegaráðuneytið felli úr gildi ákvörðun Matvælastofnunar um að leyfa blóðmerahald. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Gera þátta­röð eftir bókum Lilju um Áróru Íslenskt og þýskt kvikmyndagerðarfyrirtæki hafa keypt réttinn að bókum Lilju Si

Share this article