Innlent | Morgunblaðið | 16.7.2026 | 8:40 Brottfallið litið alvarlegum augum Námsárangur barna í grunnskóla hefur mikið forspárgildi um það hvort nemendur ljúki námi á framhaldsskólastigi, að sögn ráðherra. mbl.is/Eggert Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Brottfallið tengist vanda verknáms Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Fleiri konur hverfa frá námi en áður Skora á ráðherra að auglýsa stöðuna » Fleiri tengdar fréttir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra Íslands, lítur brottfall íslenskra ungmenna úr námi á framhaldsskólastigi mjög alvarlegum augum og segir það lykilatriði að styrkja framhaldsskólakerfið sjálft, tryggja fjölbreyttari námsleiðir og mæta ólíkum þörfum og áhuga nemenda. Í samtali við Morgunblaðið telur Inga það mikilvægt að bera kennsl á ástæður þess að fólk flosni upp frá námi. „Getum við komið auga á eitthvað sérstakt umfram annað sem er þess valdandi að unga fólkið okkar er að flosna svona upp frá náminu?“ Morgunblaðið greindi frá því í fyrradag að hátt brotthvarfshlutfall nemenda á framhaldsskólastigi hefði staðið í stað um árabil hér á landi í stað þess að lækka eins og þróunin hefur verið í Evrópu, en til þess að hægt sé að leita lausna við vandanum segir Inga mikilvægt að ástæður brotthvarfsins liggi fyrir. Hún bendir á að einn helsti áhrifaþátturinn, út frá rannsóknum á brotthvarfi nemenda, sé menntun og félagsleg staða foreldra, sem sé að stórum hluta einfaldlega birtingarmynd ójafnra tækifæra í samfélaginu. „Svo hefur námsárangur í grunnskólanum náttúrulega algjörlega forspárgildi um það hvort nemendur ljúki framhaldsskóla, og það skýrir einnig stóran hluta af til dæmis kynjamismun í brotthvarfi,“ segir hún. „Við sjáum að eftir tíu ára grunnskólagöngu eru mörg börn bara alls ekki á góðum stað og ekki í stakk búin til að takast á við námið sem tekur á móti þeim í framhaldsskólunum.“ Þá geti verið að nemendur velji ekki alltaf þá námsleið sem henti námslegri stöðu þeirra og styrkleikum best. „En það er náttúrulega algjört grundvallaratriði að grípa börnin snemma og það er mikill og merkur vilji innan ráðuneytisins til að taka til hendinni í þessum málum.“ Hún segir ýmsar aðgerðir í bígerð innan ráðuneytisins til þess að takast á við þennan vanda, til að mynda bindi hún sjálf vonir við símafrí og bann við samfélagsmiðlanotkun fyrir börn undir 15 ára, sem nánar er greint frá á áttundu síðu blaðsins. „En þetta háa brottfall er skýr áminning um að við verðum að styrkja grunninn og fylgja nemandanum betur eftir, tryggja fjölbreyttari námsleiðir og mæta ólíkum þörfum og áhuga þeirra, og tryggja að börnin komi betur undirbúin inn í framhaldsskólann.“ Styrkja verknámið Í Morgunblaði gærdagsins var fjallað nánar um einn mögulegan þátt í brotthvarfi nemenda frá skóla sem varðar erfiðleika eldri nemenda við að komast inn í verknám. Skortur á nemendaplássum í verknámi leiðir til þess að á ári hverju neyðast verknámsskólar til þess að synja hundruðum nemenda um skólavist í iðn- og starfsnámi. Margir þeirra eru nemendur sem flosnað hafa upp úr hefðbundnu bóknámi. Inga harmar þá stöðu sem uppi er og segir ráðuneytið nú vinna að því að auka þann fjölda nemenda sem verknámsskólarnir geti tekið á móti. „Við þurfum líka að styrkja framhaldsskólakerfið sjálft – það hentar ekki öllum sama leiðin. Sumir nemendur finna sig bara síður í bóknámi til dæmis en gætu náð mun betri árangri í verknámi ef réttu tækifærin væru til staðar,“ segir hún. Því sé mikil uppbygging fram undan í verknámi sem tryggja muni fleirum pláss og þannig vonandi minnka brottfallið. „Í haust verður til dæmis tekin í notkun glæný verknámsaðstaða við Fjölbraut í Breiðholti og fjórir aðrir verknámsskólar eru í burðarliðnum, þannig að það er ýmislegt fram undan þar,“ segir hún. Kynnir ný námslok Í dag birti ráðuneytið einnig áform um breytingu á lögum um framhaldsskóla í samráðsgátt þar sem lögð eru drög að nýrri leið til þess að ljúka námi á framhaldsskólastigi. Hún er sérstaklega hugsuð fyrir nemendur sem þurfa einstaklingsmiðaðra, hagnýtara og sveigjanlegra nám en núverandi leiðir til námsloka gera ráð fyrir. Þessari nýju námslokaleið er ætlað að tryggja að nemendur sem ekki stefna að hefðbundnum námslokum eða þurfa aukinn stuðning í námi eigi raunhæfa leið til námsloka við hæfi, auk þess að auka virkni nemenda og styrkja tengsl náms við atvinnulíf, og er henni meðal annars ætlað að mæta þörfum nemenda sem horfið hafa frá námi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Brottfallið tengist vanda verknáms Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Fleiri konur hverfa frá námi en áður Skora á ráðherra að auglýsa stöðuna » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Hélt aftur tárunum yfir Messi Lést eftir stunguárás í Stokkhólmi Brottfallið litið alvarlegum augum Mikið áfall fyrir Arsenal Handtekinn í kjölfar dauða ungbarns Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brottfallið litið alvarlegum augum Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Brottfallið tengist vanda verknáms Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Hundruðum eldri nemenda vísað frá „Hell week“ á Seyðisfirði Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Varað við hvössum vindhviðum á morgun Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Einn fær 552,5 milljónir Gæti sést til sólar vestanlands á morgun Hitamet sumarsins fallið Lengri sunnudagsopnun í Salalaug Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitamet sumarsins fallið Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Hélt aftur tárunum yfir Messi Lést eftir stunguárás í Stokkhólmi Brottfallið litið alvarlegum augum Mikið áfall fyrir Arsenal Handtekinn í kjölfar dauða ungbarns Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brottfallið litið alvarlegum augum Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Hundruðum eldri nemenda vísað frá „Hell week“ á Seyðisfirði Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Varað við hvössum vindhviðum á morgun Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Einn fær 552,5 milljónir Gæti sést til sólar vestanlands á morgun Hitamet sumarsins fallið Lengri sunnudagsopnun í Salalaug Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitamet sumarsins fallið Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“