Innlent | mbl | 15.7.2026 | 13:03 Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ „Við verðum að tryggja fjölbreyttari námsleiðir og mæta ólíkum þörfum og áhuga nemenda,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í samtali við mbl.is. mbl.is/Karítas Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Brottfallið tengist vanda verknáms Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Fleiri konur hverfa frá námi en áður Skora á ráðherra að auglýsa stöðuna „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ » Fleiri tengdar fréttir Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt áform um ný námslok á framhaldsskólastigi sem meðal annars er ætlað að mæta þeim nemendum sem horfið hafa frá námi vegna námsörðugleika. Áformin, sem snúa að þrenns konar breytingum á lögum um framhaldsskóla, voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í morgun. Þar segir að fengin reynsla sýni fram á að þörf kunni að vera á að skýra og styrkja lagaumgjörð um framhaldsskóla enn frekar, einkum að því er varði námslok og stöðu tiltekinna námsúrræða. „Við verðum að tryggja fjölbreyttari námsleiðir og mæta ólíkum þörfum og áhuga nemenda,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í samtali við mbl.is, rétt eins og hið háa brotthvarfshlutfall nemenda úr framhaldsskólanámi sé skýr áminning um. Frétt af mbl.is Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Hinar fyrirhuguðu breytingar stefna í fyrsta lagi að því að innleiða ný námslok á framhaldsskólastigi sem eru sérstaklega hugsuð fyrir nemendur sem þurfa einstaklingsmiðaðra, hagnýtara og sveigjanlegra nám en núverandi leiðir til námsloka gera ráð fyrir. Frétt af k100.is „Ég flosnaði upp úr framhaldsskóla“ Tryggi raunhæfa leið til námsloka við hæfi Þessari nýju námslokaleið er ætlað að tryggja að nemendur sem ekki stefna að hefðbundnum námslokum eða þurfa aukinn stuðning í námi eigi raunhæfa leið til námsloka við hæfi, auk þess að auka virkni nemenda og styrkja tengsl náms við atvinnulíf. Þá er áformunum einnig ætlað að skýra hlutverk starfsbrauta fyrir nemendur með fötlun, skilyrði fyrir innritun á þær og stöðu þeirra í lögunum, enda þörf á því að uppfæra löggjöfina þannig að hún endurspegli betur raunverulega framkvæmd. Í þriðja lagi miða áformin að því að marka fjarnámi skýrari lagaumgjörð með því að kveða skýrar á um framkvæmd fjarnáms á framhaldsskólastigi, þar á meðal ábyrgð skóla og stöðu nemenda. Frétt af mbl.is „Ekki einu einasta barni verði vikið úr skóla“ Ætlað að stemma stigu við brotthvarfi Einn mælikvarði á árangur áformanna, verði þau að lögum, verður að fylgjast með þróun brotthvarfs þeirra nemenda sem breytingarnar beinast sérstaklega að frá námi á framhaldsskólastigi. Fjallað hefur verið um þróun brotthvarfs nemenda á framhaldsskólastigi frá námi á vettvangi Morgunblaðsins og mbl.is, en þar kemur meðal annars fram að brotthvarf á Íslandi er það hæsta innan Evrópu og hefur staðið í stað á undanförnum árum í stað þess að fara lækkandi eins og þróunin hefur verið innan Evrópu. Frétt af mbl.is Brottfallið tengist vanda verknáms Finna lausnir fyrir þá sem finna sig ekki Í samtali við mbl.is setur Inga áformin í samhengi við hið háa brotthvarfshlutfall íslenskra nemenda frá námi á framhaldsskólastigi, og segir að taka verði betur utan um þá nemendur sem flosni frá námi vegna hvers kyns örðugleika við bóknám. „Við erum með augun á boltanum og þetta er eitthvað sem að ég lít mjög alvarlegum augum,“ segir hún og bætir því við að sjálf hafi hún lagt áherslu á að finna lausnir fyrir þá nemendur sem flosna frá námi og finna sig ekki. Frétt af mbl.is Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn „Getum við boðið þeim einhverja aðra möguleika, önnur tækifæri? Vegna þess að það liggur alveg fyrir að þeir sem eru að útskrifast með svona slæman lesskilning eftir tíu ára grunnskólagöngu eiga mjög erfitt uppdráttar í öllu því sem lýtur að bara bóknámi,“ segir hún enn fremur. Frétt af mbl.is Inga: Nýt „100% trausts“ Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Brottfallið tengist vanda verknáms Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Fleiri konur hverfa frá námi en áður Skora á ráðherra að auglýsa stöðuna „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bellingham-æðið hvergi meira en í heimabænum Skráðum hatursglæpum fjölgað hér á landi Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Government proposes social media ban for children under 15 Kálfakjöt skipar stóran sess í evrópskri matargerð Umræðan „Þjóðin sjálf á höfuðvaldið“ Íslendingar, hugsið ykkur tvisvar um Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Allt var brotið og peningaskápurinn galopinn“ Komust hjá aflífun hunds Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi Fleiri konur hverfa frá námi en áður Mest lesið Í gær Í vikunni Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta „Sumarið er loksins komið“ Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV 25 stiga hiti á Seyðisfirði í nótt Gular viðvaranir vegna hvassviðris Aðsend grein: Íslendingar, hugsið ykkur tvisvar um Brottfallið tengist vanda verknáms 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Skipverjarnir játa sök Slökkviliðsstjóri lætur af störfum Ísland má ekki missa af lestinni Tvær stórfelldar líkamsárásir Andlát: Kristófer Þorleifsson Að hluta til vegna fjármálahrunsins Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Nýjast á mbl.is » Bellingham-æðið hvergi meira en í heimabænum Skráðum hatursglæpum fjölgað hér á landi Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Government proposes social media ban for children under 15 Kálfakjöt skipar stóran sess í evrópskri matargerð Umræðan „Þjóðin sjálf á höfuðvaldið“ Íslendingar, hugsið ykkur tvisvar um Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi Óljóst hvort umdeild drög fari aftur í samráðsgátt Skipverjarnir játa sök Mest lesið Í gær Í vikunni Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta „Sumarið er loksins komið“ Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV 25 stiga hiti á Seyðisfirði í nótt Gular viðvaranir vegna hvassviðris Aðsend grein: Íslendingar, hugsið ykkur tvisvar um Brottfallið tengist vanda verknáms 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Skipverjarnir játa sök Slökkviliðsstjóri lætur af störfum Ísland má ekki missa af lestinni Tvær stórfelldar líkamsárásir Andlát: Kristófer Þorleifsson Að hluta til vegna fjármálahrunsins Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina