Sky Lagoon baðlónið á Kársnesinu í Kópavogi hagnaðist um 1.556 milljónir króna árið 2025, samanborið við 1.426 milljóna króna hagnað árið áður. Stjórn félagsins lagði til að 1,5 milljarðar króna verði greiddir út í arð til hluthafa í ár. Lónið opnaði í lok apríl árið 2021 og var árið 2025 því fjórða heila rekstrarár í sögu þess. Velta Sky Lagoon jókst um rúmlega 350 milljónir eða um 5,7% milli ára og nam 6,6 milljörðum króna. Rekstrargjöld jukust um 4,5% og námu 4,8 milljörðum króna, þar af voru laun og tengd gjöld tæpir 1,2 milljarðar. Ársverk voru 89 í fyrra, samanborið við 91 árið áður. Rekstrarhagnaður (EBIT) jókst um 8,9% milli ára og nam 1,8 milljörðum króna. Eignir Sky Lagoon námu ríflega 3 milljörðum króna í lok síðasta árs. Eigið fé nam 1,6 milljörðum króna. Félagið var ekki með neinar langtímaskuldir aðrar en 10 milljóna króna tekjuskattsskuldbindingu. Sjá einnig Sky Lagoon afhjúpar 2 milljarða króna viðbyggingu Sky Lagoon er að 51% hluta í eigu Pursuit Iceland ehf., sem er í eigu kanadíska fyrirtækisins Pursuit Collecition. Eftirstandandi 49% hlutur er í eigu Geothermal Lagoon ehf. sem er aftur í 95% eigu Peninsula ehf. Eyþór Kristján Guðjónsson og Gestur Þórisson eru stærstu hluthafr Peninsula með 36% hlut hvor um sig. Geothermal Lagoon á einnig 100% hlut í félaginu Nature Resort ehf. sem vann að uppbyggingu baðlónsins á Kársnesi. Nature Resort bókfærði fasteignina á tæplega 1,5 milljarða króna í lok síðasta árs. Félagið hagnaðist um 5,8 milljónir dala, eða tæplega 750 milljónir króna, í fyrra.