Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sky lagoon sýknað af kröfu starfsmanns sem rann

Read Full Article →

Innlent | mbl | 28.6.2026 | 9:11 Sky lagoon sýknað af kröfu starfsmanns sem rann Baðlónið Sky lagoon. Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað Sky Lagoon af kröfu fyrrverandi starfsmanns sem krafðist viðurkenningar á bótaskyldu eftir að hafa fengið heilahristing í vinnuslysi í búningsklefa baðlónsins í lok árs 2021. Dómurinn taldi slysið vera óhapp sem ekki yrði rakið til saknæmrar háttsemi af hálfu vinnuveitandans. Rann við að sækja óhrein glös Starfskonan rann á blautu gólfi þegar hún var á leið út í lónið til að sækja óhrein glös. Við fallið rak hún höfuð og öxl í skáp og hlaut heilahristing. Í kjölfarið glímdi hún við langvarandi einkenni, meðal annars höfuðverki, svima, þreytu, minnisskerðingu, ljós- og hljóðfælni og kvíða. Hún var síðar metin með 20 stiga varanlegan miska og fékk greiddar bætur úr launþegatryggingu. Bentu á sleipt gólfið Í málinu hélt konan því fram að stjórnendur Sky Lagoon hefðu lengi vitað að gólf í búningsklefunum væru hættulega hál. Fyrrverandi starfsmenn báru fyrir dómi að ítrekað hefði verið bent á vandann og að rætt hefði verið um að leggja mottur á gólfið. Af því hefði hins vegar ekki orðið, meðal annars vegna útlits, og þess í stað hefðu starfsmenn verið látnir moppa gólfin reglulega. Flísar uppfylltu kröfur Sky Lagoon hafnaði því að aðbúnaður hefði verið ófullnægjandi og benti á að flísarnar uppfylltu gildandi kröfur um hálkuviðnám. Þá kom fram að frá opnun baðlónsins hefðu 21 tilvik verið skráð þar sem starfsmenn hefðu runnið eða fallið, þar af sjö í búningsklefum. Slys konunnar hefði þó verið það eina sem hefði haft alvarlegar afleiðingar. Héraðsdómur féllst á að gólfefnið uppfyllti lögbundnar kröfur og að rekstraraðilinn hefði gripið til ýmissa ráðstafana til að draga úr slysahættu, meðal annars með reglulegri þurrkun gólfa, viðvörunarskiltum og sérstöku hálkuvarnarefni á flísunum. Dómurinn taldi því ekki sannað að slysið mætti rekja til vanrækslu eða óforsvaranlegs aðbúnaðar heldur væri um óhappatilvik að ræða. Tilkynntu ekki slysið strax Þótt dómurinn gagnrýndi ekki efnislega aðbúnaðinn kom fram að Sky Lagoon hefði ekki tilkynnt slysið til Vinnueftirlitsins fyrr en tæpum ellefu mánuðum eftir að það varð, þrátt fyrir lögbundna tilkynningarskyldu. Dómurinn taldi þá vanrækslu þó ekki hafa áhrif á niðurstöðu málsins þar sem enginn ágreiningur var um tildrög slyssins eða aðstæður á vettvangi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sky lagoon sýknað af kröfu starfsmanns sem rann „Þá fannst mér ég vera ömurleg manneskja“ Banna viðtöl og myndbandsupptökur Upp með vasaklútana! „Ég fer eins oft og færi gefst og verð hálfómöguleg ef of langur tími líður á milli“ Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Hitabylgjan hefur áhrif á vínframleiðslu Stenst ekki skoðun ESB leggur á nýtt gjald Mest lesið Í gær Í vikunni Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Flugeldar í Safamýri um miðnætti Fjöldi ferða Baldurs fellur niður Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi Sóttu slasaða göngukonu Heppinn áskrifandi vann 2,5 milljónir Hefur ekki áhyggjur af fjölgun kínverskra ferðamanna Stórt hrun við Reynisfjöru Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Trump í Skagafirði „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki ESB leggur á nýtt gjald Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Deila um hvort kæra eigi sendiboða sem benti á öryggisveikleika Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Sky lagoon sýknað af kröfu starfsmanns sem rann „Þá fannst mér ég vera ömurleg manneskja“ Banna viðtöl og myndbandsupptökur Upp með vasaklútana! „Ég fer eins oft og færi gefst og verð hálfómöguleg ef of langur tími líður á milli“ Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Tók ekki milljón dollara mynd Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Breytingarnar of hraðar og aggressívar Mest lesið Í gær Í vikunni Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Flugeldar í Safamýri um miðnætti Fjöldi ferða Baldurs fellur niður Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi Sóttu slasaða göngukonu Heppinn áskrifandi vann 2,5 milljónir Hefur ekki áhyggjur af fjölgun kínverskra ferðamanna Stórt hrun við Reynisfjöru Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Trump í Skagafirði „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki ESB leggur á nýtt gjald Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Deila um hvort kæra eigi sendiboða sem benti á öryggisveikleika Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article