Fiskeldisfyrirtækið Laxey hefur boðið íbúum Vestmannaeyja, hagsmunaaðilum, félagasamtökum, opinberum aðilum og öðrum áhugasömum á samráðs- og upplýsingafund um starfsemi fyrirtækisins. Þetta kemur á heimasíðu Laxeyjar þar sem segir að fundurinn sé liður í samráði fyrirtækisins við nærsamfélagið og hagsmunaaðila í samræmi við kröfur ASC-vottunar. Skapa vettvang fyrir opið samtal Markmið fundarins sem verður haldinn 21. júlí klukkan 17 í seiðastöð Laxeyjar á Strandvegi eru sögð vera eftirfarandi: kynna starfsemi LAXEY og stöðu uppbyggingar, fara yfir umhverfis- og sjálfbærnimál, ræða fiskheilbrigði og fiskvelferð, upplýsa um hvernig staðið er að meðferð fiska, þar á meðal notkun lyfja og annarra meðferða þegar þeirra er þörf, ræða áhrif starfseminnar á samfélagið, skapa vettvang fyrir opið samtal þar sem gestir geta komið á framfæri spurningum, ábendingum og athugasemdum.