Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stórseiðahús Laxeyjar í rekstur

Read Full Article →

Fyrstu seiðin voru flutt frá seiðastöð Laxeyjar í stórseiðahúsið í Viðlagafjöru 27. maí og 5. júní var flutningi alls hópsins lokið. Með því varð stórseiðahúsið formlega komið í rekstur og starfar samkvæmt áætlun. Frá þessu er sagt á Facebook-síðu Laxeyjar í Vestmannaeyjum. „Þetta markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu Laxey og styrkir framleiðslugetu félagsins til framtíðar. Stórseiðahúsið er mikilvæg viðbót við áframeldisstarfsemi Laxey. Með því að skapa aukið rými fyrir stærri fisk fyrr á framleiðsluferlinu eykur húsið sveigjanleika í rekstri, bætir nýtingu innviða og stuðlar að skilvirkara framleiðsluflæði." Stórseiðahúsið samanstendur af átta kerum, hvert með 1.050 m³ vatnsrúmmál, eða samtals 8.400 m³. „Húsið var reist á aðeins tíu mánuðum, sem er eftirtektarverður árangur og vitnisburður um þann metnað, kraft og fagmennsku sem einkennt hefur verkefnið frá upphafi. Þessi áfangi hefði ekki náðst án framlags starfsfólks, verktaka, birgja og samstarfsaðila sem hafa lagt hönd á plóg við uppbygginguna. Stórseiðahúsið samanstendur af átta kerum Við viljum færa öllum sem komu að verkefninu innilegar þakkir fyrir þeirra framlag. Þessi áfangi sýnir hvað hægt er að áorka með öflugu teymisstarfi, þekkingu og sameiginlegri sýn.

Share this article