Innlent | mbl | 14.7.2026 | 18:00 164 börn í fóstri án gilds fósturleyfis Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála segir skráningu eftirlitsheimsókna víða ófullnægjandi. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Barnavernd Tæpar 800 milljónir frá ríki til UNICEF Auglýsa eftir forstjóra Barnaverndarstofu Fleiri voru ósáttir við Barnaverndarstofu Sakar ráðuneytið um „klúður“ Tilefni til að biðjast afsökunar » Fleiri tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Niðurstaðan áfellisdómur Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi Ríkið sagt svíkja samkomulag Segja ríkið ganga á bak orða sinna » Fleiri tengdar fréttir Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) telur verulega annmarka vera á eftirliti barnaverndarþjónustu með börnum í fóstri. Í nýrri skýrslu stofnunarinnar kemur fram að 436 börn hafi verið í fóstri á 290 fósturheimilum á tímabili athugunarinnar. Af þeim voru 164 börn, eða 38%, hjá aðilum sem ekki höfðu gild leyfi frá GEV. Alls voru 46% fósturheimilanna án slíks leyfis. Þegar gilt fósturleyfi liggur ekki fyrir skortir lagagrundvöll fyrir fóstursamningi, að því er segir í skýrslunni . Athugunin tók til allra virkra fósturmála frá 4. mars til 1. apríl 2026. Gagna var aflað frá 20 barnaverndarþjónustum og rætt við 20 ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára sem voru eða höfðu nýlega verið í fóstri. Frétt af mbl.is Athuga eftirlit með börnum í fóstri Skráning eftirlitsheimsókna ófullnægjandi Samkvæmt lögum ber barnaverndarþjónustum að heimsækja fósturheimili að minnsta kosti tvisvar á fyrsta ári vistunar og árlega eftir það. Þær skulu jafnframt fylgjast með aðbúnaði og líðan barns og gefa því kost á að tjá sig. GEV segir skráningu eftirlitsheimsókna víða ófullnægjandi. Í mörgum tilvikum hafi ekki verið hægt að staðfesta að lögbundnar heimsóknir hefðu farið fram. Þá hafi símtöl, teymisfundir og önnur samskipti stundum verið skráð sem eftirlitsheimsóknir, þótt þau teljist ekki til slíkra heimsókna samkvæmt lögum. Um helmingur barnaverndarþjónustanna taldi sig hafa uppfyllt lágmarkskröfur um fjölda heimsókna, en gögnin staðfestu það ekki í mörgum tilvikum. Viðtöl við ungmennin benda einnig til þess að heimsóknir hafi oft verið færri en lög kveða á um og að þeim hafi fækkað eftir því sem börnin urðu eldri. Mörg ungmennanna sögðust ekki hafa fengið raunverulegt tækifæri til einkasamtals við starfsmann barnaverndar. Meirihluti þeirra sagðist ekki hafa treyst starfsmanni barnaverndar og því sagt lítið eða ekkert frá líðan sinni. Nokkur töldu jafnframt að frekar væri tekið mark á sjónarmiðum fósturforeldra en þeirra eigin. Frétt af mbl.is Töluverður og alvarlegur misbrestur átti sér stað Óskað eftir úrbótaáætlun innan sex mánaða GEV setur fram 13 tilmæli um úrbætur og hefur óskað eftir að barnaverndarþjónustur skili úrbótaáætlunum innan sex mánaða. Tilmælin lúta meðal annars að því að tryggja að börn séu ekki vistuð hjá aðilum án gilds leyfis, að beiðnir um fósturheimili séu ávallt sendar til Barna- og fjölskyldustofu áður en vistun hefst, að skráning og framkvæmd eftirlits verði samræmd og að réttur barna til þátttöku og samtals verði betur tryggður. Stofnunin leggur áherslu á að samræma þurfi verklag, bæta eftirlit og styrkja réttaröryggi barna í fóstri. Frétt af mbl.is „Skelfilega erfið mál“ Tengdar fréttir Barnavernd Tæpar 800 milljónir frá ríki til UNICEF Auglýsa eftir forstjóra Barnaverndarstofu Fleiri voru ósáttir við Barnaverndarstofu Sakar ráðuneytið um „klúður“ Tilefni til að biðjast afsökunar » Fleiri tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Niðurstaðan áfellisdómur Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi Ríkið sagt svíkja samkomulag Segja ríkið ganga á bak orða sinna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Györ - Víkingur R., staðan er 2:2 Manchester United tilkynnir félagaskipti 164 börn í fóstri án gilds fósturleyfis Hvernig föt passa við fótboltatreyjur? Frakkland – Spánn kl. 19, bein lýsing Umræðan Að koma sér í form Vilja alls ekki tala um Evrópusambandið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Skipverjarnir játa sök Dularfullir kalkþörungar fegra Starmer gefur lítið fyrir kvabb um Falklandseyjar Mest lesið Í gær Í vikunni Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Slökkviliðsstjóri lætur af störfum Skipverjarnir játa sök Ísland má ekki missa af lestinni Tvær stórfelldar líkamsárásir Að hluta til vegna fjármálahrunsins Andlát: Kristófer Þorleifsson Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Himnastiginn málaður blár Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Bíll valt í Kömbunum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Nýjast á mbl.is » Györ - Víkingur R., staðan er 2:2 Manchester United tilkynnir félagaskipti 164 börn í fóstri án gilds fósturleyfis Hvernig föt passa við fótboltatreyjur? Frakkland – Spánn kl. 19, bein lýsing Umræðan Að koma sér í form Vilja alls ekki tala um Evrópusambandið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Sögð hafa látist sólarhring áður en hún fannst Dularfullir kalkþörungar fegra Mest lesið Í gær Í vikunni Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Slökkviliðsstjóri lætur af störfum Skipverjarnir játa sök Ísland má ekki missa af lestinni Tvær stórfelldar líkamsárásir Að hluta til vegna fjármálahrunsins Andlát: Kristófer Þorleifsson Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Himnastiginn málaður blár Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Bíll valt í Kömbunum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi