Stærstu fjárfestingarbankar Bandaríkjanna stefna í besta fjórðung sinn í þóknanatekjum frá árinu 2021, knúnir áfram af risastóru frumútboði SpaceX og endurkomu stórra samruna og yfirtaka á alþjóðlegum mörkuðum. Fimm stærstu fjárfestingarbankar Bandaríkjanna, JPMorgan Chase, Goldman Sachs, Morgan Stanley, Bank of America og Citigroup, eru taldir hafa aukið þóknanatekjur sínar af fjárfestingarbankastarfsemi um 27% á öðrum ársfjórðungi frá sama tíma í fyrra, samkvæmt spám sem Bloomberg hefur tekið saman og Financial Times fjallar um. Gangi spáin eftir munu þóknanatekjurnar nema samtals 11,1 milljarði dala. Það yrði hæsta fjárhæðin í fjögur og hálft ár og sú mesta frá árinu 2021, þegar umsvif í fjárfestingabankastarfsemi náðu síðast hámarki. Viðsnúningurinn kemur í kjölfar sterks fjórðungs á bandarískum hlutabréfamarkaði, þrátt fyrir óvissu og sveiflur vegna stríðsátaka við Íran. Bjartsýni í kringum fjárfestingar í gervigreind, lægra olíuverð og merki um áframhaldandi styrk bandarískra neytenda studdu við hækkun hlutabréfa á fjórðungnum. Stærsti einstaki þátturinn er endurkoma hlutafjárútboða. Þóknanir vegna hlutafjárútboða og annarrar fjármögnunar á hlutabréfamarkaði eru taldar hafa numið 2,5 milljörðum dala hjá bönkunum fimm á fjórðungnum. Þar vó frumútboð SpaceX þungt, en 23 fjárfestingabankar fengu samtals um 500 milljónir dala í þóknanir vegna útboðsins. Það eru hæstu þóknanir sem greiddar hafa verið í hlutafjárútboði. Goldman Sachs og Morgan Stanley fengu hvor um sig um 100 milljónir dala fyrir sína aðkomu að útboðinu. Greinendur benda á að ný kynslóð stórra tæknifyrirtækja geti haldið lífi í útboðsglugganum. Auk SpaceX eru OpenAI og Anthropic nefnd sem dæmi um félög sem gætu orðið meðal stærstu skráninga næstu ára. Minni félög í eigu framtakssjóða hafa hins vegar síður komist á markað, meðal annars vegna hærri vaxta og varfærnari verðlagningar fjárfesta. Samrunar og yfirtökur hafa einnig tekið við sér. Þóknanir af slíkum ráðgjafarverkefnum hjá bönkunum fimm eru taldar hafa aukist um 30% frá öðrum ársfjórðungi í fyrra og farið yfir fjóra milljarða dala. Það yrði í fyrsta sinn frá árinu 2021 sem þóknanir af samrunum og yfirtökum eru yfir þeim mörkum þrjá fjórðunga í röð. Stóru viðskiptin skipta þar mestu. Wall Street hefur notið góðs af endurkomu samruna og yfirtaka sem nema yfir tíu milljörðum dala. Morgan Stanley sagði í nýlegri greiningu til viðskiptavina að alþjóðlegar tilkynningar um samruna og yfirtökur á árinu 2026 stefndu í mesta umfang sem mælst hefur. Stóru bandarísku bankarnir birta uppgjör sín á næstu dögum. JPMorgan, Goldman Sachs, Morgan Stanley, Bank of America, Citigroup og Wells Fargo eru samtals taldir hafa skilað um 44 milljarða dala hagnaði á öðrum ársfjórðungi, sem væri 18% aukning frá sama tíma í fyrra. Viðskiptadeildir bankanna njóta einnig góðs af sveiflum á mörkuðum, þar sem bankarnir auðvelda viðskiptavinum að taka stöður, verja áhættu og fjármagna viðskipti. Sérstaklega er búist við sterkri afkomu í hlutabréfaviðskiptum. Góð afkoma kemur á sama tíma og útlánatap hefur verið hóflegt. Það hefur stutt við hækkun bankabréfa, sem hafa þróast betur en breiðari hlutabréfamarkaður síðustu tvö ár. Sú þróun hefur þó einnig hækkað væntingar fjárfesta.