Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Berglind frá Alvotech til Atlas lögmanna

Read Full Article →

Berglind Guðmundsdóttir, lögmaður hefur gengið til liðs við Atlas lögmenn. Hún var síðast forstöðumaður lögfræðisviðs og regluvörður hjá Alvotech. Þar áður starfaði Berglind hjá lögmannsstofunni BBA/Fjeldco, þar sem hún sinnti m.a. regluvörslu fyrir Alvotech, Ölgerðina og Nova við skráningu félaganna á markaði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Þar á undan starfaði hún um árabil hjá Landsbankanum, annars vegar við lögfræðiráðgjöf tengda fjármögnun fyrirtækja og hins vegar í regluvörslu bankans við eftirlit með verðbréfaviðskiptum, aðgerðir gegn markaðssvikum og ráðgjöf um stjórnarhætti. Berglind er með BA- og ML-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Berglind er jafnframt formaður Fransk-íslenska Viðskiptaráðsins. „Sérþekking Berglindar á fjármálamarkaði, regluvörslu og stjórnarháttum styrkir enn frekar öflugt teymi sérfræðinga hjá Atlas lögmönnum,“ segir í fréttatilkynningu.

Share this article