Bryndís Gyða Michelsen, Marlena Piekarska og Sigurður Orri Hafþórsson hafa gengið í eigendahóp Atlas Lögmanna. Í tilkynningu segir að þau hafi gengið til liðs við eigendahópinn í ársbyrjun 2026. Bryndís Gyða Michelsen og Marlena Piekarska hafa starfað hjá Atlas Lögmönnum og Bótarétti frá árinu 2019 og Sigurður Orri Hafþórsson gekk til liðs við stofuna haustið 2025. Bryndís hefur sérhæft sig sérstaklega í skaðabóta- og vátryggingarétti, Marlena á sama sviði auk fasteigna- og fjöleignahúsaréttar, og Sigurður kemur inn með þekkingu á fjöleignarhúsalögum og öðrum fasteignatengdum álitamálum. Bryndís er lögmaður með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Hún útskrifaðist með BA-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2018. Marlena útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2021 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2022, þá sem fyrsti pólskumælandi lögmaður landsins. Sigurður útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2022 en áður starfaði hann hjá Húseigendafélaginu sem lögfræðingur og síðar sem lögmaður og framkvæmdastjóri þess. „Það er okkur mikið fagnaðarefni að þessir framúrskarandi lögmenn bætist í eigendahóp Atlas Lögmanna. Stofan er í hröðum vexti og þjónustar í dag fjölbreyttan hóp viðskiptavina sem treystir okkur til að koma fram fyrir sína hönd og gæta hagsmuna þeirra,“ segir Ásgeir Helgi Jóhannsson, lögmaður, eigandi og framkvæmdastjóri Atlas Lögmanna.