Heimsmarkaðsverð olíu hefur hækkað um meira en 2% í morgun. Hækkunin er rakin til þess að Bandaríkin og Íran héldu áfram að skiptast á loftárásum í nótt, en markaðsaðilar hafa áhyggjur af áhrifum þeirra á flutninga um Hormússund. Verð á framvirkum samningum með Brent hráolíu hefur hækkað um 2,1% í morgun og stendur í 77,6 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð. Írönsk stjórnvöld svöruðu árásum Bandaríkjahers um helgina með árásum á mannvirki Bandaríkjanna við Persaflóa í gær. Þau sögðust jafnframt hafa lokað Hormússundi á ný. Byltingarvörður Írans sagðist í morgun hafa gert loftárásir á bandarískar herstöðvar í Kúveit og Barein. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Hormússund væri áfram opið fyrir almenna skipaumferð, þrátt fyrir að írönsk stjórnvöld höfðu lýst því yfir að sundinu hefði verið lokað eftir að skip sigldi óleyfilega leið og varð fyrir árás. Áður en átökin hófust í lok febrúar fóru um fimmtungur af flutningum með olíu og fljótandi jarðgas um Hormússund. Umferð um sundið dróst verulega saman um helgina og hefur ekki verið minni í fimm vikur samkvæmt gögnum Kpler. Aðeins sex skip fóru um sundið í gær.