Innlent | Morgunblaðið | 12.7.2026 | 23:10 | Uppfært 23:27 Vilja vekja umræðu um jökulinn Jökullinn hefur margan heillað í gegnum tíðina, en nú þykir tími til kominn að svipta af honum dulúðinni. mbl.is/Eyþór Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Næst þeirra fræðslugangna sem Snæfellsjökulsþjóðgarður heldur úti á hverju sumri er sérstök jökulganga, sú fyrsta af sínu tagi, sem gengin verður klukkan 14 í dag frá Eysteinsdal norðan við jökulinn undir yfirskriftinni Jökullinn kallar. Með framtakinu vilja starfsmenn þjóðgarðsins efla fræðslu um þennan merkilega jökul, sem lítið hefur farið fyrir í umræðunni að þeirra mati, utan listanna. „Þetta er sá jökull sem flestir Íslendingar sjá dagsdaglega, bæði íbúar Reykjaness, höfuðborgarsvæðisins, Vesturlands og norðan megin við Breiðafjörðinn. Hann blasir við, þó hann sé sífellt að hopa og minnka,“ segir Una Sóley Stefánsdóttir, yfirlandvörður við þjóðgarðinn, í samtali við Morgunblaðið. „Okkur hefur fundist vanta að fræða um þennan jökul, sem við sjáum svona oft, og ætlum þess vegna að hefja samstarf okkar við Jöklarannsóknarfélag Íslands á þessari göngu.“ Jökullinn er sannarlega tignarlegur þar sem hann skín móti meirihluta landsmanna undir kvöldsólinni til vesturs þegar vel viðrar, og sú dulúð sem hann sveipar hefur reynst fjölda rithöfunda og skálda yrkisefni um árin. Ber þar einna helst að nefna nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness sem segir í skáldsögu sinni Kristnihald undir jökli frá athugunum Umba, umboðsmanns biskups, á kristnihaldi í nærsveitum jökulsins, Þá beindi hinn franski Jules Verne augum bókmenntaheimsins norður til Íslands árið 1864 með vísindaskáldsögunni Leyndardómar Snæfellsjökuls , þar sem sögumaður ferðast að miðju jarðar í gegnum jökulinn. Una Sóley Stefánsdóttir. mbl.is/Eyþór Feta geimveruslóðann Leiðin verður gengin eftir gömlum vegslóða, sem heimamenn segja að sé sá sami og sjálfskipaðir geimverusérfræðingar, tökulið frá bandarísku fréttastofunni CNN og hundruð annarra fetuðu upp að Snæfellsjökli í þeirri von að ná sambandi við gesti frá fjarlægum plánetum árið 1993, í frægri fýluferð. Jökulganga dagsins í dag verður með aðeins öðru sniði en geimverugangan að sögn Unu, en hún hefst úr Eysteinsdal norðan jökulsins klukkan 14 í dag. Fyrst og fremst á íslensku Gengin verður 4-5 kílómetra vegtroðningur um jökulurðir þar sem laust grjót og jökulruðningur einkenna undirlagið síðasta spölinn, og því er þeim sem langar að slást með í för ráðlagt að hafa með sér góða gönguskó. Áætlað er að með stoppum og fræðslu muni ferðin taka um 2,5-3 klukkustundir. „Við munum rölta meðfram jöklinum og tala um hann, ræða hopið og þær breytingar sem eru að verða á honum, undir handleiðslu jöklafræðingsins Tómasar Jóhannessonar,“ segir Una, en hann starfar hjá Veðurstofu Íslands. Fræðslugöngur á vegum þjóðgarðarins eru farnar daglega yfir sumartímann, og sérgöngur á borð við þessa á hverjum fimmtudegi. Rétt eins og aðrar fræðslugöngur er jökulgangan opin öllum, heimamönnum jafnt sem ferðamönnum, og ef þess gerist þörf verður annar landvörður hafður með í för til þess að túlka á ensku þó íslenska fræðslan verði mest áberandi. „Við viljum leyfa Íslendingunum að njóta aðeins líka, vegna þess að oft er svona fræðsla miðuð sérstaklega að ferðamönnum, og bjóðum því heimafólk og Íslendinga sérstaklega velkomna,“ segir Una. Þjóðgarðurinn fagnaði 25 ára afmæli sínu um síðustu helgi, og til hátíðahaldanna mættu um eitt hundrað manns úr nærsveitum og tóku meðal annars þátt í gömlum vermannaleikjum á borð við hænsnaslag og glímu. Næsti aldarfjórðungur óviss Starfsemi þjóðgarðsins hefur vaxið að umfangi frá stofnun hans 28. júní árið 2001, en framan af starfaði þar einungis einn landvörður á gestastofunni við Malarrif. Nú eru heilsársstarfsmenn í þjóðgarðinum orðnir sjö talsins, og ennþá fleiri yfir sumartímann, og þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi og gestastofan á Malarrifi eru opnar alla daga ársins. Ekki er vanþörf á þessum starfsmannafjölda, enda heimsækja um 2.000 til 3.500 manns garðinn á hverjum degi yfir sumartímann – eða um 500.000 á hverju ári. Að sögn Unu er langstærstur hluti þessara gesta ferðamenn erlendis frá. „Ég myndi giska á að 98% gestanna séu ferðamenn, að minnsta kosti – ef íslensku leiðsögumennirnir eru taldir með þeim.“ Una segir það hins vegar óvíst hvort hægt verði að fagna næsta stórafmæli Snæfellsjökulsþjóðgarðs að 25 árum liðnum, enda hopi jökullinn ört. „Ég veit ekki hvað við gerum eftir 20 ár ef það er enginn jökull lengur,“ segir hún. „Þetta er náttúrulega eitt helsta aðalaðdráttaraflið fyrir ferðamenn á svæðinu, og hann er þegar búinn að minnka um 70% frá því sem hann var fyrir hundrað árum og heldur áfram að rýrna.“ Hálf milljón ferðamanna á ári Veðurstofa Íslands telur það líklegt að jökullinn verði að mestu horfinn árið 2050, og segir Una að starfsmenn þjóðgarðsins hafi áhyggjur af því hvaða áhrif brotthvarf þessa helsta aðdráttarafls svæðisins hafi á ferðamennsku til framtíðar. Þjóðgarðinn heimsækja árlega um 500.000 ferðamenn, og samkvæmt tölum Hagstofunnar kjósa um 250.000 ferðamenn að gista á Snæfellsnesi í eina eða fleiri nætur, með tilheyrandi ágóða fyrir heimamenn. „Okkar hlutverk er að fræða um náttúru og menningu og hvetja gesti til að vera umhverfisvæn,“ segir Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður í samtali við Morgunblaðið. „Jökullinn er eins og gangandi auglýsingaskilti fyrir afleiðingar hlýnunar – við verðum að skilja hvað er að gerast, hvers vegna og hvernig hægt er að draga úr neikvæðum áhrifum.“ Þá sé nýtt landslag að koma í ljós undan jöklinum sem hafi áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika, og því vilji starfsfólk auka rannsóknir innan þjóðgarðsins. Ljóst er þó að ef jökullinn hverfur mun það hafa áhrif á starfsemi hans. „Ég veit ekki hvort við verðum að skipta um nafn á þjóðgarðinum, hvort það verður bara Snæfellsþjóðgarður eða eitthvað álíka. En við vonum að hann haldist sem lengst, og þó það verði ekki þessi jökulís lengur í fjallinu verður áfram snjór í Snæfelli.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bláblómstrandi og rótsterk Heimildum lífeyrissjóða breytt Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Vilja vekja umræðu um jökulinn Messi við dómarann: Ekki sýna mér vanvirðingu Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hitinn gæti náð 25 stigum Segir að Íran verði útrýmt ef hann verður drepinn Telur Sindra og Ísidór geta sótt tugi milljóna Smart að kaupa notaðar vörur Mest lesið Í gær Í vikunni Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtuvörðuleiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Sundlaugagarður í Laugardalnum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Nýjast á mbl.is » Bláblómstrandi og rótsterk Heimildum lífeyrissjóða breytt Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Vilja vekja umræðu um jökulinn Messi við dómarann: Ekki sýna mér vanvirðingu Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frakklandseldar tvöfalt skæðari en í fyrra Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Tvær hindranir í vegi orkuskipta Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Mest lesið Í gær Í vikunni Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtuvörðuleiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Sundlaugagarður í Laugardalnum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum