Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Erfitt ár hjá álverum landsins

Read Full Article →

Rekstur álvera landsins litaðist af ólíkum áskorunum árið 2025. Alcoa Fjarðarál var eina álverið sem skilaði hagnaði en bæði Rio Tinto á Íslandi, sem rekur álverið í Straumsvík, og Norðurál Grundartanga voru rekin með tapi. Alcoa Fjarðarál hagnaðist um 17,9 milljónir dala, jafnvirði um 2,3 milljarða króna, samanborið við 53,9 milljóna dala hagnað árið áður, eða um 7,4 milljarða króna. Rekstrartekjur félagsins námu 124 milljörðum króna á síðasta ári og drógust saman um 2,7 milljarða milli ára. Fjármunatekjur að frádregnum fjármagnsgjöldum lækkuðu um 1,1 milljarð króna milli ára og rekstrargjöld jukust um 1,3 milljarða króna. Í skýrslu stjórnar segir að álmarkaðurinn búi áfram við óvissu vegna sveiflna á orkumörkuðum, reglubreytinga og geópólitískrar spennu. Til lengri tíma séu horfur þó góðar þar sem vaxandi eftirspurn sé eftir áli með lágt kolefnisspor. Norðurál skilaði 50,5 milljóna dala tapi, eða um 6,5 milljörðum króna, eftir 17,5 milljóna dala hagnað árið 2024. Rekstur félagsins litaðist af tímabundinni stöðvun á stærri kerlínu álversins eftir að tveir spennar í rafveitu þess biluðu haustið 2025. Framleiðsla dróst saman um 16% milli ára. Félagið gerir ráð fyrir að framleiðsla hefjist á ný í kerlínunni á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Sjá einnig Framleiðslustöðvun litar afkomuna Tap Rio Tinto á Íslandi nam 104,8 milljónum dala, eða um 13,5 milljörðum króna, samanborið við 8,6 milljóna dala hagnað árið áður. Stærsta breytingin í einstökum kostnaðarlið milli ára voru neikvæðar gangvirðisbreytingar innbyggðra afleiða að fjárhæð 12,1 milljarður króna árið 2025. Félagið segir hærra álverð hafa vegið upp á móti minni framleiðslu og að horfur séu almennt góðar Sjá einnig 13,5 milljarða tap en góðar horfur Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 7. júlí.

Share this article