Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

13,5 milljarða tap en góðar horfur

Read Full Article →

Tap af rekstri Álversins í Straumsvík nam 13,5 milljörðum króna árið 2025 samanborið við 1,2 milljarða króna hagnað árið áður. Stærsti kostnaðarliðurinn að frátöldum hráefnis- og orkukostnaði eru gangvirðisbreytingar innbyggðra afleiða en þær námu 12,1 milljörðum króna. Árið áður höfðu þær skilað sér í 1,2 milljarða tekjuaukningu. Tekjur félagsins námu 83 milljörðum króna og lækka um rúman milljarð milli ára. Eignir námu 82,8 milljörðum króna í árslok og eigið fé stóð í 55,2 milljörðum króna. Rekstrartap (EBIT) nam 17,5 milljörðum króna samanborið við 165 milljóna króna rekstrartap árið 2024. Í skýrslu stjórnar segir að hærra álverð hafi vegið upp minni framleiðslu steypuskála, sem rekja má til raforkuskerðinga. Súrálsverð hækkaði verulega á fjórða ársfjórðungi vegna truflana í aðfangakeðjum. Horfur í starfsemi álversins séu almennt góðar en álverð var 9% hærra að meðaltali 2025 en árið á undan. „Heildareftirspurn efir áli mun áfram verða leidd af orkuskiptum, einkum eftir rafmagnsbílum og framleiðslu endurnýjanlegrar raforku. Það setur ISAL í sterka stöðu. Hins vegar er skert samkeppnishæfni meðal annars vegna hás raforkuverðs nokkuð áhyggjuefni.“ Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 24. júní.

Share this article