Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sveitarfélögin fá bílhræin til úrvinnslu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 10.7.2026 | 10:15 Sveitarfélögin fá bílhræin til úrvinnslu Sveitarfélög þurfa að setja sér nýjar samþykktir og tryggja skýr úrræði til að framfylgja hreinsun lóða og fjarlægingu ökutækja. mbl.is/MJ Matthías Johannessen [email protected] Setja bókamerki Umfjöllun Morgunblaðsins um óökufær og númerslaus ökutæki hefur vakið viðbrögð lesenda sem segja sambærilegt ástand ríkja víða á höfuðborgarsvæðinu. Íbúar við Auðbrekku í Kópavogi segjast meðal annarra hafa lengi búið við að bílhræ standi á víðavangi og í merktum bílastæðum mánuðum saman án þess að gripið sé til aðgerða. Þrátt fyrir þær kvartanir segir Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) að formlegar kvartanir vegna slíkra ökutækja á einkalóðum séu ekki margar á ári hverju. Flestar ábendingar sem berast varði númerslausar bifreiðar á víðavangi. Þetta kemur fram í svari Harðar Þorsteinssonar framkvæmdastjóra HEF við fyrirspurn Morgunblaðsins. Þrátt fyrir gagnrýni íbúa hafnar Hörður því að heilbrigðiseftirlitið láti mál af þessu tagi afskiptalaus. Að hans sögn hefur eftirlitið haft afskipti af þessum bílhræjum, meðal annars við Auðbrekku í Kópavogi, og beint því til eigenda að fjarlægja ökutæki þegar þau hafa lekið olíu eða eru talin skapa hættu. „Ábyrgðin liggur hjá eigendum viðkomandi húsnæðis að viðhalda lóðum sínum og halda þeim hreinum,“ segir Hörður. Hann bendir þó á að ekki sé hægt að bregðast við öllum númerslausum bifreiðum á einkalóðum. „Í sumum tilfellum eru þessar bifreiðar án númeraspjalda en valda ekki mengun, óþrifnaði eða lýti á umhverfi. Heilbrigðiseftirlitið getur því ekki beitt sér í málinu með því að fjarlægja þær bifreiðar,“ segir hann. Nefndir lagðar niður Hörður bendir jafnframt á að verulegar breytingar séu fram undan í málaflokknum. Heilbrigðisnefndir verði lagðar niður um næstu áramót og verkefni þeirra færð til ríkisstofnana. Með því falli niður heimild heilbrigðisnefnda til að hafa afskipti af málum sem þessum. Samkvæmt 18. grein reglugerðar um hollustuhætti er heilbrigðisnefndum heimilt að láta fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar og bílflök að undangenginni viðvörun. Jafnframt er óheimilt að geyma hluti, tæki eða ökutæki þannig að þau valdi skaða, mengun, óþrifnaði eða lýti á umhverfinu. Hörður segir ekki sé sjálfgefið að heilbrigðiseftirlitið grípi inn í þegar kvartað er undan ökutæki á einkalóð. „Við gerum ekki kröfu um slíka hreinsun nema að undangenginni skoðun heilbrigðisfulltrúa sem metur hvort viðkomandi lausamunur valdi skaða, mengun, óþrifnaði eða lýti á umhverfinu,“ segir í svari hans. Þá hafi úrskurðir stjórnvalda gert ríkar kröfur um að eigendum sé tilkynnt með sannanlegum hætti áður en gripið er til aðgerða. Að sögn Harðar nægir ekki að merkja bifreið með álímingarmiða, heldur þurfi eigandi að fá skýra vitneskju um fyrirhugaðar aðgerðir. Í sumum tilvikum reynist hins vegar erfitt að hafa uppi á eigendum, meðal annars þegar fastanúmer hafa verið fjarlægð af ökutækjum eða eigandi er fluttur úr landi. Sveitarfélög útbúi verkreglur Á árinu 2025 óskaði HEF í nokkrum tilvikum eftir því að eigendur fjarlægðu ökutæki af lóðum og var orðið við þeim tilmælum í flestum málum. Ekkert ökutæki var þó fjarlægt af eftirlitinu sjálfu á starfssvæði þess á því ári. Á þessu ári hefur eftirlitið hins vegar þurft að láta fjarlægja bílhræ á einkalóðum. Að sögn Harðar er ljóst að sveitarfélög þurfi nú að setja sér nýjar samþykktir og tryggja skýr úrræði til að framfylgja hreinsun lóða og fjarlægingu ökutækja sem valda óþrifnaði eða lýti á umhverfinu nú þegar breytingar eru yfirvofandi. „Sú vinna er öll eftir og mikilvægt að vandað sé til hennar svo leikreglurnar séu skýrar, bæði fyrir almenning og sveitarfélögin sjálf,“ segir Hörður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sveitarfélögin fá bílhræin til úrvinnslu Straumurinn liggur í blíðuna úti á landi Íslensku strákarnir lágu gegn ríkjandi meisturum World-famous singer loves Iceland Býður ullarteppi og hlutabréf upp í skuld Umræðan Ábyrgð og árangur í ríkisrekstri Sumarfrísgreinar stjórnarliða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Straumurinn liggur í blíðuna úti á landi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Besta veðrið á Austurlandi Fyrir hverja er kerfið? Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Engin fordæmi um undanþágur Andlát: Bragi Hannesson Vísar hagsmunaárekstrum á bug Varað við öflugum vindhviðum og sandfoki Samskipti Þorgerðar og Jettens ekki í yfirlitinu Dregur úr vætunni Talar gegn undanþágum fyrir Ísland Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Sendi mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Sveitarfélögin fá bílhræin til úrvinnslu Straumurinn liggur í blíðuna úti á landi Íslensku strákarnir lágu gegn ríkjandi meisturum World-famous singer loves Iceland Býður ullarteppi og hlutabréf upp í skuld Umræðan Ábyrgð og árangur í ríkisrekstri Sumarfrísgreinar stjórnarliða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Straumurinn liggur í blíðuna úti á landi Besta veðrið á Austurlandi Uppselt í flug austur í dag og hótel nær fullbókuð Býður ullarteppi og hlutabréf upp í skuld Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Engin fordæmi um undanþágur Andlát: Bragi Hannesson Vísar hagsmunaárekstrum á bug Varað við öflugum vindhviðum og sandfoki Samskipti Þorgerðar og Jettens ekki í yfirlitinu Dregur úr vætunni Talar gegn undanþágum fyrir Ísland Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Sendi mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“

Share this article