Innlent | mbl | 26.4.2026 | 11:02 Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Bragi Bjarnason bæjarstjóri. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fjarskipti versnað mikið eftir brotthvarf 2G og 3G Takast á um virkjunarkosti Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Heimgreiðslur og samgöngusáttmáli endurskoðaður » Fleiri tengdar fréttir Algjör viðsnúningur hefur orðið á rekstri Árborgar en rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins var jákvæð um tæpan einn og hálfan milljarð árið 2025 en áætlanir höfðu gert ráð fyrir 67 milljóna jákvæðri niðurstöðu. Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, segir niðurstöðuna afrakstur þeirra aðgerða sem meirihluti hans hefur ráðist í á þessu kjörtímabili. Sjálfstæðismenn, undir forystu Braga, hlutu meirihluta kjörinna bæjarfulltrúa árið 2022 en þá var fjárhagsstaða sveitarfélagsins mjög slæm. Þurfti sveitarfélagið meðal annars að semja við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um það hvernig koma skyldi rekstrinum á réttan kjöl. Frétt af mbl.is Eina sveitarfélagið sem óskaði eftir aðstoð Fækkað stöðugildum og selt eignir Rekstarniðurstaða A-hluta sveitarfélagsins gerði ráð fyrir 525 milljóna króna neikvæðri niðurstöðu, en niðurstaðan varð að lokum jákvæð upp á 620 milljónir. „Frá upphafi kjörtímabilsins, þegar við tókum við grafalvarlegri stöðu sveitarfélagsins sem stefndi í greiðsluþrot, höfum við ráðist í miklar hagræðingaraðgerðir. Við höfum fækkað stöðugildum, selt eignir og því miður hefur þetta lent að hluta til á okkur íbúunum með álaginu á útsvarið sem lagt var á í eitt ár,“ segir Bragi í samtali við mbl.is en hann segir samblöndu af þessum aðgerðum valda því að fjármál sveitarfélagsins hafa færst á réttan kjöl. Frétt af mbl.is Mikill viðsnúningur í rekstri Árborgar Árborg skilaði einnig jákvæðri niðurstöðu árið 2024 en þá hafði álag verið lagt á útsvar íbúa afturvirkt. „Ég held að það sé bjart fram undan hjá okkur núna og vonandi leiðir þetta til áframhaldandi lækkun álaga sem við gátum byrjað á strax árið 2026, með verulegri lækkun fasteignagjalda,“ segir bæjarstjórinn sem segir mikinn ávinning fyrir íbúa í því að rekstur sveitarfélagsins sé að lagast hraðar en búist var við. Frétt af mbl.is Lækka gatnagerðargjöld af atvinnulóðum um helming Svekktur með útsvarsálagið Áfram Árborg, Framsóknarflokkurinn, Miðflokkurinn og Samfylkingin mynduðu meirihluta í Árborg á árunum 2018-2022. „Það er ótrúlegt að það sé hægt að koma sveitarfélaginu á svona slæman stað á einu kjörtímabili,“ segir Bragi um meirihluta þess kjörtímabils. Útsvar í Árborg er nú í lögbundnu hámarki, 14,97%, auk þess var eins og áður segir lagt álag á útsvarið árið 2024. Hagræðingaraðgerðir þess kjörtímabils hafa því á köflum verið sársaukafullar. „Við höfum allt kjörtímabilið verið mjög hreinskilin um hvað þyrfti að gera og hvernig við hygðumst takast á við verkefnið. Ég skil mjög vel, sem íbúi sjálfur í Árborg, að vera svekktur að hafa þurft að greiða álagið. Ég geng þó þakklátur og stoltur til kosninga að við höfum náð að komast í gegnum þetta saman. Þetta er verkefni sem allir í sveitarfélaginu tóku þátt í saman. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fjarskipti versnað mikið eftir brotthvarf 2G og 3G Takast á um virkjunarkosti Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Heimgreiðslur og samgöngusáttmáli endurskoðaður » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Meistararnir nánast öruggir áfram Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir „Við hittumst fyrst á stefnumóti og síðan hefur leiðin verið afar greið“ Forsetinn vildi hann ekki aftur 40 ár frá Tsjernóbíl og aftur er voðinn vís Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi Segist hafa aflýst ferð sendifulltrúa til Pakistans „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Þriggja stiga skjálfti í Bárðarbungu Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Verslanirnar vilja fá íslenskar gúrkur X26: Reyna að nota Starlink-búnað í skólabílnum Þrjú hundruð krítískir veikleikar Einn fær 2,5 milljónir: Fjórfaldur pottur næst Þriggja stiga skjálfti í Bárðarbungu Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Nýjast á mbl.is » Meistararnir nánast öruggir áfram Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir „Við hittumst fyrst á stefnumóti og síðan hefur leiðin verið afar greið“ Forsetinn vildi hann ekki aftur 40 ár frá Tsjernóbíl og aftur er voðinn vís Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segist hafa aflýst ferð sendifulltrúa til Pakistans Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Skotárás á hátíðarkvöldverði: Það sem er vitað Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Verslanirnar vilja fá íslenskar gúrkur X26: Reyna að nota Starlink-búnað í skólabílnum Þrjú hundruð krítískir veikleikar Einn fær 2,5 milljónir: Fjórfaldur pottur næst Þriggja stiga skjálfti í Bárðarbungu Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra