Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tekinn fyrir að horfa á HM undir stýri Grétar Þór Sigurðsson Lögregluþjónn ur umferðardeild á mótórhjóli. Ruv.is / Anton Brink Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann í gærkvöld sem var að horfa á fótboltaleik á HM í símanum í miðjum akstri. Í dagbók lögreglu segir að grunur hafi vaknað um að ökumaðurinn væri undir áhrifum áfengis og auk þess sviptur ökuréttindum. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Á milli klukkan 17 í gær og 5 í morgun rötuðu 73 mál á borð lögreglu. Einn var vistaður í fangageymslu í morgunsárið. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Fuglainflúensa greinist í staðbundnum fugli í fyrsta sinn í Ástralíu Þangað til í síðasta mánuði hafði H5N1-afbrigði fuglainflúensu ekki greinst í Eyjaálfu. Hingað til hefur það aðeins greinst í farfuglum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Leitaði til lögreglu eftir innbrot þriggja greifingja Greifingjarnir fóru í gegnum kattaalúgu íbúðarhúss í Þrándheimi. Ringulreið ríkti meðal ferfættra íbúa hússins og húseigandi leitaði skjóls í svefnherbergi eftir að honum fannst einn greifinginn ógnandi. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Átta ákærðir fyrir skipulagningu árásar á bardagaviðburð við Hvíta húsið Bandaríska alríkislögreglan greindi frá því í júní að henni hefði tekist að koma í veg fyrir árásina. Áttmenningarnir eru sakaðir um að hafa ætla að beina sprengidróna á Hvíta húsið og skjóta háttsetta embættismenn, þar á meðal Bandaríkjaforseta. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Tólf látnir í gróðureldum í suðurhluta Spánar Yfirvöld hafa ekki greint frá eldsupptökum en vitni segja að eldurinn gæti hafa kviknað þegar rafmagnslína féll til jarðar. Sumir hinna látnu fundust í bílum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Burnham nær öruggur sem næsti forsætisráðherra Andy Burnham hefur svo gott sem tryggt sér embætti forsætisráðherra Bretlands. Komi ekkert óvænt upp tekur hann við þann 20. júlí. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Slökktu eld í Hlíðunum Grétar Þór Sigurðsson Einn af dælubílum slökkvilliðsins á höfuðborgarsvæðinu. RÚV / Ragnar Visage Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan níu í kvöld vegna elds í Hlíðunum í Reykjavík. Einn dælubíll var sendur á vettvang að sögn varðstjóra sem segir að ekki hafi verið um mikinn eld að ræða. Hann hafi verið slökktur með hraði og þá tók við reyklosun. Þá var einn dælubíll sendur að heimahúsi á Sogavegi í kvöld vegna heitavatnsleka. Útlit er fyrir að tjónið sé minniháttar. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Útför æðstaklerksins í Íran lauk í skugga áframhaldandi átaka Bandaríski herinn gerði árásir á skotmörk við strendur Írans í dag. Írönsk stjórnvöld skutu loftskeytum á bandaríska herstöð í Jórdaníu. Stjórnvöld í Pakistan og Katar reyna að fá ríkin til að ganga aftur að samningaborðinu. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Golf Ragnhildur í efsta sæti fyrir lokahring Ragnhildur Kristinsdóttir er jöfn í efsta sæti Women's English Open Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Bráðavakt allan sólarhringinn á framkvæmdasvæðinu í Vaðölduveri Ríflega tvö hundruð manns vinna við að reisa vindmyllur í Vaðölduveri. Sólarhrings bráðavakt er á staðnum. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Frakkar sendu síðustu von Afríku heim Frakkar unnu öruggan 2-0 sigur gegn Marokkó og eru komnir í undanúrslit. Marokkó var síðasta afríska liðið í keppninni. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Frakkland — Marokkó Frakkland vann Marokkó 2-0 og fer áfram í undanúrslit. Þar mætir liðið sigurvegaranum úr leik Spánar og Belgíu. Mbappé klúðraði vítaspyrnu í fyrri hálfleik en kom Frökkum yfir um miðjan seinni hálfleik. Ousmane Dembele bætti svo öðru marki við. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Botnlið Fram vann Breiðablik og á FH á toppinn FH komst á toppinn í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld eftir 7-3 sigur á Þrótti. Ída Marín Hermannsdóttir skoraði fimm mörk fyrir FH. Á sama tíma vann bontlið Fram 3-2 sigur á Breiðabliki. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Hundurinn sem fannst á Langjökli hafði verið týndur í tíu ár Eigendur hundsins sem fannst dauður á Langjökli eru fundnir. Þeir segjast hafa saknað hans í tíu ár. Erfitt var að segja til um lit og tegund hundsins þegar hann fannst. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Stjarnan vann Færeyinga og Vestri tapaði gegn Aserum Stjarnan og Vestri voru í eldlínunni í undankeppni Sambandsdeildar karla í fótbolta í kvöld. Stjarnan vann Víking í Götu frá Færeyjum og Vestri mátti þola tap gegn Qarabaq frá Aserbaísjan. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Flóahreppur 71,3 % íbúa Flóahrepps vilja ekki sameiningu Samhliða sveitarstjórnarkosningunum 16. maí í vor var gerð íbúakönnun á meðal íbúa Flóahrepps sem voru nú að koma niðurstöður úr. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Le Pen ræsir framboðsvélina – „Baráttan snýst um endurreisn Frakklands“ Marine Le Pen hóf í gær kosningabaráttu til forseta Frakklands þrátt fyrir dóm fyrir fjársvik. Sumir efast um heilindi hennar meðan aðrir segja hana eiga skilið annað tækifæri. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Almyrkvi á sólu 2026 Geimfarar NASA skoða almyrkvann frá Snæfellsnesi Þrjátíu geimfarar og vísindamenn frá bandarísku geimferðarstofnuninni NASA verða við rannsóknir á Snæfellsnesi þegar almyrkvi verður á sólu í ágúst. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Lirfa frá helvíti ræðst á tré og fólk Lirfa sem kennd er við helvíti er orðin landlæg á eikartrjám í Danmörku og hefur nú fundist í Kaupmannahöfn í fyrsta skipti. Lirfan getur bæði valdið útbrotum og óþægindum í öndunarvegi. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Fótbolti og fléttur í Kópavogi um helgina Yfir þrjú þúsund fótboltastelpur keppa á Símamótinu í Kópavogi um helgina. Marglitar fléttur eru áberandi meðal keppenda. 9. júlí 2026 kl. 19:14INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Harðnandi átök auka líkur á forsendubresti kjarasamninga Auknar líkur eru á að forsendur kjarasamninga bresti í haust að mati fjármálaráðherra. Áframhald átaka við Persaflóa hafi neikvæð áhrif á þróun efnahagsmála. 9. júlí 2026 kl. 18:43INNLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Óstöðugleiki innan NATO sett mark sitt á leiðtogafundinn Sérfræðingar segja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Ankara bera merki óstöðugleika innan NATO. Væntingar Bandaríkjanna og Evrópu til samstarfsins séu ólíkar. 9. júlí 2026 kl. 18:35ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Frakkar fljúga í undanúrslit Frakkland vann Marokkó 2-0 og fer áfram í undanúrslit. Þar mætir liðið sigurvegaranum úr leik Spánar og Belgíu. Mbappé klúðraði vítaspyrnu í fyrri hálfleik en kom Frökkum yfir um miðjan seinni hálfleik. Ousmane Dembele bætti svo öðru marki við. Lionel Messi og Mbpappé eru nú markahæstir með átta mörk. Hér fylgjumst við með öllu því helsta í lifandi leikdagsvakt og birtum helstu atvik. SAMANTEKT 9. júlí 2026 kl. 18:13INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Tugþúsundir Tyrkja hugfangnir af Kristrúnu — „Þú lítur vel út, herra forseti“ Forsætisráðherra Íslands vakti nokkra athygli í Tyrklandi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins. Hún hefur fengið þúsundir nýrra erlendra fylgjenda á samfélagsmiðlum í vikunni sem margir hverjir lofa hana í hástert. 9. júlí 2026 kl. 17:53INNLENDAR FRÉTTIR Fjallabyggð Primex ræsir vélarnar á ný eftir stórbruna í fyrra Primex hefur ræst vélarnar í kítósanverksmiðjunni á Siglufirði eftir 8 mánaða stopp. Stór hluti verksmiðjunnar brann í október í fyrra. 9. júlí 2026 kl. 17:28ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Segir Ísraelsher reiðubúinn að hefja árásir á Íran á ný Dagný Hulda Erlendsdóttir Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz, segir her landsins reiðubúinn að gera árásir á Íran á ný. Ísrael hóf árásir á Íran með Bandaríkjunum 28. febrúar. Úti er um tilraunir til samninga um vopnahlé í bili, hið minnsta, og síðustu tvo sólarhringa hefur Bandaríkjaher gert árásir á Íran. Meðal skotmarka Bandaríkjanna í dag var lestarbrú milli höfuðborgarinnar Tehran og borgarinnar Mashhad. Æðstiklerkur Írans, sem herir Bandaríkjanna og Írans réðu af dögum, var í dag borinn til grafar í Mashhad. Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz. EPA / ABIR SULTAN 9. júlí 2026 kl. 17:23INNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Jarðböðin á Mývatni opnuð eftir tímafrekar framkvæmdir Jarðböðin á Mývatni voru opnuð á nýjan leik í dag eftir langa bið. Kostnaður við framkvæmdirnar nemur milljörðum og hellir sem fannst meðan á þeim stóð er enn í friðlýsingarferli. 9. júlí 2026 kl. 17:19ÍÞRÓTTIR Hestar Ásmundur og Hlökk stórkostleg í töltinu Hin vinsæla úrvalstöltkeppni landsmóts hestamanna fór fram í gærkvöldi. Keppnisrétt eiga 30 efstu töltarar landsins samkvæmt stöðulista og þykir mikill heiður að vinna þessa keppni. 9. júlí 2026 kl. 17:10INNLENDAR FRÉTTIR Netöryggi Tilraunum til netbrota fjölgar en brotum ekki Tilkynningum til lögreglu um tilraunir til netbrota fjölgar milli ára. Tilkynntum brotum fjölgar þó ekki. Tölurnar benda til þess að aukin fræðsla og árvekni almennings dragi úr árangri brotamanna og komi í veg fyrir fjárhagslegt tjón. 9. júlí 2026 kl. 16:41ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Jólasveinar í sumarhita í Danmörku Dagný Hulda Erlendsdóttir Þrátt fyrir að enn sé hásumar og nokkrir mánuðir í jólin er orðið jólalegt í Álaborg í Danmörku. Þar eru tugir jólasveina samankomnir á árlegu heimsþingi. Viðburðurinn hefur verið haldinn í 70 ár. Fyrstu árin var tilgangurinn með þinginu að skemmta börnum. Síðar hefur það orðið ómissandi samkoma fyrir jólasveina víðs vegar að. Þetta eru jólasveinar sem eru önnum kafnir í desember við að skemmta fólki í verslunum og á jólaböllum. Í Álaborg keppa þeir í ýmsum þrautum eins og piparkökuáti og gjafapökkun. Sumir þeirra koma langt að, svo sem frá Ástralíu, Hong Kong, Kanada, Bandaríkjunum og Japan. Flestir eru þó frá Norðurlöndunum. AP / James Brooks 9. júlí 2026 kl. 16:32ERL