Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tekinn á 200 Ragnhildur Helgadóttir Lögregla stöðvaði allmarga ökumenn í nótt, að því er kemur fram í dagbók lögreglu, sjö vegna ölvunaraksturs. Þá voru nokkrir kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem mældist á mestum hraða ók á 200 kílómetra hraða á klukkustund á götu þar sem hámarkshraði er 80. Tilkynnt var um innbrot í miðborginni og um tónlistarhávaða víða. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 14 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Haítí - Skotland Skotar unnu sinn fyrsta sigur á HM í 36 ár, eða frá HM 1990, þegar þeir unnu 0-1 sigur gegn Haítí. Mark John McGinn í fyrri hálfleik reyndist nóg. Fyrir 22 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía Nýr forsætisráðherra í Rúmeníu Forseti Rúmeníu útnefndi í morgun nýjan forsætisráðherra, sem á að reyna að sefa pólitískan óróa sem verið hefur í landinu síðustu mánuði. Fyrir 23 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Ástralía - Tyrkland Ástralir unnu frækinn 2-0 sigur gegn Tyrkjum í D-riðli á HM karla í fótbolta í nótt. Hér má sjá mörkin. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hitinn allt að 19 stig Hiti gæti farið upp í 19 stig í dag og hlýjast verður sunnan- og vestanlands. Vindátt er hæg og breytileg. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Bretar stöðva rússneskt skip á Ermarsundi Breski herinn stöðvaði olíuflutningaskip úr skuggaflota Rússa á siglingu um Ermarsundið í nótt. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Ástralir lögðu Tyrki 2–0 Ástralir lögðu Tyrki 2–0 á HM í fótbolta í nótt. Tyrkir áttu 30 skot, þar af átta á markið, en góð vörn Ástrala tryggði þeim sigur. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Þjóðverjar mæta til leiks gegn minnstu þjóðinni x Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úganda Mótmæla ferðatakmörkunum annarra ríkja Stjórnvöld í Úganda gagnrýna ferðatakmarkanir sem mörg ríki hafa lagt á úganska borgara vegna ebóluveirunnar. Þau telja algjört ferðabann ekki í samræmi við raunverulega hættu af sjúkdómnum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Knicks er NBA-meistari New York Knicks er NBA-meistari í körfubolta í fyrsta sinn í 53 ár eftir stórkostlega endurkomu á útivelli í kvöld. Liðið var um tíma 16 stigum undir, en sneri leiknum sér í vil í síðasta leikhluta. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Fyrsti HM-sigur Skota í 36 ár Skotar unnu 1–0 sigur á Haítí í fyrsta leik sínum á HM á þessari öld. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Hrina hákarlaárása í Ástralíu Kona á fertugsaldri er í lífshættu eftir hákarlaárás á einni af vinsælustu ströndum Ástralíu í gær. Fjórir hafa orðið hákarli að bráð í landinu á þessu ári, sem er óvenju mikið. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Ein kröftugasta hrinan í Bárðarbungu frá gosinu 2014 Alexander Kristjánsson Veðurstofan hefur hækkað fluglitakóða fyrir Bárðarbungu upp í gulan. Þetta var gert skömmu fyrir klukkan eitt í nótt eftir mikla skjálftahrinu í norðanverðri öskju Bárðarbungu. Stærsti skjálftinn var klukkan 20:14 í kvöld, eða 4,8 að stærð. Síðan þá hafa um 250 eftirskjálftar mælst, þar af ellefu yfir þremur að stærð. Enginn gosórói mælist þó. Síðast gaus úr eldstöðvakerfi Bárðarbungu sumarið 2014. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að hrinan nú sé ein sú kröftugasta frá eldsumbrotunum 2014–2015. RÚV / Björn Oddsson Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump-fjölskyldan hagnaðist um milljarða á rafmyntum Donald Trump og synir hans hafa hagnast um minnst 2,3 milljarða bandaríkjadala með sölu og markaðssetningu rafmynta. Fjárfestar hafa hins vegar tapað álíka upphæð. Þetta leiðir rannsókn Reuters í ljós. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Brasilía - Marokkó Brasilía og Marokkó gerðu 1-1 jafntefli á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í dag. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 „Þú og einhverjir þrír í frumskógi í Brasilíu þekkja þetta“ Arnar Gunnlaugsson fræddi Stofuna um portúgalska orðið yfir utanfótarsnúning en enginn annar í Stofunni kannaðist við orðið. Óskar Hrafn Þorvaldsson vildi nota kjarnyrta íslensku í staðinn. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Óboðlegur samningur um hjólhýsabyggð Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir hjólhýsagarða ekki gott búsetuúrræði. Íbúar þar þurfi ekki að greiða sömu skatta og skyldur og aðrir. Hann gagnrýnir síðasta meirihluta fyrir samkomulag sem var gert rétt fyrir kosningar. 13. júní 2026 kl. 22:15INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Spila golf fyrir góðan málstað á Palla Open Á þriðja hundrað manns tóku þátt í Palla Open-golfmótinu á Hlíðavelli í Mosfellsbæ þar sem safnað var fyrir sumarbúðum fyrir fatlaða á vegum Gló í Reykjadal. Skipuleggjandi mótsins segir hugmyndina fyrst hafa kviknað á tímum covid. 13. júní 2026 kl. 22:14INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Landsréttur snýr nauðgunardómi héraðsdóms Landsréttur sneri dómi héraðsdóms og hefur sýknað ungan mann sem dæmdur var fyrir að hafa nauðgað þáverandi kærustu sinni á meðan hún var sofandi. 13. júní 2026 kl. 21:26ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Sviss - Katar Katar og Sviss gerðu 1-1 jafntefli í riðlakeppni HM karla í fótbolta 2026. Sviss sótti án afláts en náði ekki að skapa sér nægilega góð færi. Katar jafnaði metin í uppbótartíma. Þetta er þeirra fyrsta stig á HM. 13. júní 2026 kl. 21:01INNLENDAR FRÉTTIR Náttúruhamfarir Skjálfti að stærð 4,8 í Bárðarbungu Elín Hrönn Jónsdóttir Jarðskjálfti að stærðinni 4,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 20:14 í kvöld. Annar skjálfti að stærðinni 2,6 var skömmu áður, eða klukkan 20:10. Báðir skjálftarnir eru staðsettir í norðanverðri öskju Bárðarbungu á um 2-4 km dýpi. Um 20 eftirskjálftar hafa mælst. Skjálftar af þessari stærð mælast nokkuð reglulega í Bárðarbungu og var síðasti skjálfti um og yfir 5 að stærð 31. janúar síðastliðinn og mældist 5,4 að stærð. Myndin sýnir hvar upptök skjálftans átti sér stað. Veðurstofa Íslands 13. júní 2026 kl. 20:38INNLENDAR FRÉTTIR Hrunamannahreppur 1150 ára afmæli Hrunamannahrepps fagnað Forseti Íslands sótti Hrunamannahrepp heim á afmæli sveitarfélagsins. 13. júní 2026 kl. 19:59INNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Umræðan um lagareldi mjög þung Samkomulag um þinglok virðist vera á lokametrunum, en eins og oft áður eru mál sem hafa þvælst þar fyrir – meðal annars frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi. Þingflokksformaður Viðreisnar segir að umræðam um málið hafi verið mjög þung. 13. júní 2026 kl. 19:15ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína „Ég á börn sem lærðu orðið þjóðarmorð í æsku“ Það er stöðugt verið að reyna að fá okkur til að gleyma hryllingnum sem við sjáum og láta eins og hann sé ekki að gerast. Þetta segir bresk-egypskur leikari og höfundur sem er með sýningu á Listahátíð Reykjavíkur í kvöld. 13. júní 2026 kl. 18:55INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Fyrir hverja starfa stjórnvöld?“ Samtök áhugafólks um spilafíkn hafa sent dómsmálaráðherra opið bréf þar sem þau mótmæla svokallaðri „blandaðri leið“ hvað varðar fjárhættuspil hér á landi. Formaður samtakanna spyr fyrir hvern blandaða leiðin sé og fyrir hvern stjórnvöld starfi. 13. júní 2026 kl. 18:25ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump segist munu skrifa undir friðarsáttmála á morgun Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í dag að hann stefndi að því að undirrita friðarsamning við Íran á morgun. 13. júní 2026 kl. 17:22ERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Orban endurkjörinn formaður Fidesz Viktor Orban lætur ekki hugfallast þó hann hafi hrakist frá völdum í Ungverjalandi á dögunum. Hann var endurkjörinn formaður flokks síns í dag. 13. júní 2026 kl. 16:43MENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Stjörnustríð sekkur dýpra og dýpra Miðasala á nýjustu Stjörnustríðsmyndina hefur verið afspyrnuléleg. Ólíklegt þykir að sýningar í kvikmyndahúsum skili hagnaði. 13. júní 2026 kl. 16:39INNLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Mjög mikill eldur en allir heilir eftir eldsvoða á hafi Skipstjóri Barða segir mikinn reyk hafa borist um skipið eftir að eldur kviknaði í vélarrúmi þess nálægt Færeyjum í gær. Vel gekk að ráða niðurlögum hans en mikil hætta var á ferðum. 13. júní 2026 kl. 16:21INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ný könnun: Fleiri ætla að segja já í ágúst Meirihluti ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir DV. 13. júní 2026 kl. 16:19ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Jafntefli í fyrsta stórleik mótsins Katar náði jafntefli gegn Sviss, 1-1, en þeir jöfnuðu metin í uppbótartíma eftir að Sviss hafði legið í sókn allan leikinn. Þetta er fyrsta stig Katar í fjórðu tilraun. Marokkó og Brasilíu gerðu 1-1 jafntefli. Marokkó leit mun betur út í fyrri hálfleik og komst yfir en Vinicius Jr. jafnaði metin með einstaklingsframtaki. Seinni hálfleikurinn var öllu rólegri. Hér fylgdumst við með öllu því helsta í fyrstu tveimur leikjum dagsins í lifandi fréttavakt. Að neðan má sjá helstu atvik. SAMANTEKT 13. júní 2026 kl. 16:07ÍÞRÓTTIR Fótbolti FH náði toppsætinu í Bestu deild Jóhann Páll Ástvaldsson FH-ingar eru á miklu skriði. Mummi Lú FH skaust upp fyrir Breiðablik í Bestu deild kvenna og er með eins stigs forskot á þær grænklæddu eftir úrslit dagsins. FH konur unnu öruggan 5-2 sigur á Víkingum en Breiðablik tapaði á sama tíma gegn Stjörnunni, 1-3. FH hefur unnið fimm leiki í röð og er með 19 stig gegn 18 stigum Breiðabliks. Stjarnan er nú í þriðja sæti með 14 stig. Grindavík/Njarðvík vann Fram 2-0 og eru nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur nú í 6. sæti með 11 stig en Fram er í því níunda með fjögur stig. Þróttur og ÍBV gerðu svo markalaust jafntefli. ÍBV er í 4. sæti með fimmtán stig og Þróttur í því fimmta með þrettán stig. Valur og Þór/KA gerðu einnig markalaust jafntefli. 13. júní 2026 kl. 15:29INNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Jarðböðin taka miklum breytingum Stefnt er að því að opna jarðböðin við Mývatn í lok mánaðarins eftir miklar framkvæmdir og breytingar. Böðin eru mikið aðdráttarafl í Mývatnssveit en