Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Borgarbúar hvattir til að halda sig heima

Read Full Article →

Innlent | mbl | 9.7.2026 | 22:00 Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Sirrý býst við því að aðsóknin fari mikið eftir veðri, en verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Vesturlands hvetur íbúa höfuðborgarsvæðisins til þess að njóta almyrkvans heiman frá. Samsett mynd/mbl.is/RAX/Eyþór Árnason Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sólmyrkvi á Íslandi 2026 Landverðir búa sig undir mikinn fjölda Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Stjörnu-Sævar kominn í bjórinn Stýra umferð og telja bílana Kliðurinn af fuglakvakinu þagnaði » Fleiri tengdar fréttir Undirbúningur fyrir almyrkvann á Vesturlandi hefur staðið yfir í nærri þrjú ár að sögn Sigríðar Ó. Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra Vestfjarðastofu, sem alla jafna er kölluð Sirrý, og nú er það að hluta undir veðurspánni komið hvernig fer. „Það er búinn að vera umtalsverður undirbúningur undir þennan viðburð svo þetta fari sem best fram,“ segir Sigríður í samtali við mbl.is, en búist er við því að tugþúsundir ferðamanna, íslenskra sem erlendra, geri sér ferð vestur eftir til þess að berja sólmyrkvann augum þaðan. Sirrý býst við því að aðsóknin fari mikið eftir veðri, en verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Vesturlands hvetur íbúa höfuðborgarsvæðisins til þess að njóta almyrkvans að heiman. „Maður veit ekki hvar spáin verður best akkúrat á þessum degi, og þar sem myrkvinn er ekki fyrr en síðdegis gæti verið að fólk ákveði samdægurs að koma vestur,“ segir Sirrý. „Við ráðum auðvitað litlu um það hvað fólk gerir, en við reynum að vera tilbúin til að takast á við þann fjölda sem kemur.“ Frétt af mbl.is 100 dagar í almyrkvann: Þetta er gott að vita Frétt af mbl.is Landverðir búa sig undir mikinn fjölda Sigríður Ó. Kristjánsdóttir (Sirrý) og Kristján Guðmundsson hafa staðið í ströngu við að undirbúa svæði sín fyrir almyrkvann. Samsett mynd/mbl.is/RAX/Eyþór Árnason Vesturlandið vel í stakk búið Markaðsstofa Vesturlands hefur einnig staðið í ströngu við undirbúninginn, en hún hefur meðal annars stýrt samráðsvettvangi milli allra þeirra sem koma að skipulagi kringum sólmyrkvann, sem varir frá 16:40 til 18:49 þann 12. ágúst næstkomandi, eins og alþjóð er kunnugt um. „Við höfum aðallega veri í því að fá alla að borðinu til að taka þátt í verkefninu – boðið öllum ferðaþjónustuaðilum að taka þátt í því samtali og fengið með okkur lögreglu og sveitarfélög og viðbragðsaðila, og það hefur bara gengið ágætlega,“ segir Kristján Guðmundsson, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Vesturlands. Hellissandur er meðal þeirra bæjarfélaga sem hafa undirbúið sig fyrir almyrkvann, enda meðal vestustu byggðarlaga landsins. mbl.is/Eyþór Afraksturinn sé sá að skýr áætlun liggi fyrir um það hvernig tekið verði á sólmyrkvanum innan Vesturlands. Inni á vef sínum, west.is , hefur Vesturlandsstofa listað upp helstu upplýsingar um almyrkvann í samtarfi við Stjörnu-Sævar Helga Bragason, sem fræddi íbúa Vestfjarða einnig um þetta merka náttúrufyrirbrigði á kynningarfundi á vegum Vestfjarðastofu. Þá er þar að finna lista yfir bílastæði á svæðinu þar sem fólk getur skilið bílana eftir og notið almyrkvans á sérstökum safnstöðvum. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu haldi sig heima fyrir Skipuleggendur á svæðinu búast þó við miklum umferðarþunga á svæðinu, og hvetja borgarbúa til þess að halda sig heima fyrir til þess að bæta ekki ofan á þungann. „Við vonumst til þess að þeir sem ætla sér að mæta verði snemma á ferðinni, geri ráðstafanir og undirbúi sig vel,“ segir Kristján. Eftir þeirra bestu vitund eru öll hótel gersamlega uppbókuð á svæðinu, enda ekki borið á neinum frekari afbókunum í ætt við þær fjöldaafbókanir sem dundu á Hótel Breiðavík á Vestfjörðum fyrr í vikunni. Frétt af mbl.is Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Tjaldsvæðin uppbókuð eða umsetin Tjaldsvæðin eru annað mál, þar sem þau taka flest ekki við bókunum fram í tímann. „Þá snýst þetta svolítið um að fyrstur kemur, fyrstur fær,“ segir Kristján. „Það má gera ráð fyrir að fólk muni koma svolítið fyrr á staðinn og dvelja í svolítinn tíma á Vesturlandinu.“ Athugun Morgunblaðsins á þeim tjaldstæðum innan almyrkvalínunnar sem bóka má fram í tímann í gegnum Parka leiðir í ljós að öll pláss þeirra eru uppbókuð, utan tjaldsvæðisins við Eldborg, þar sem gestir mega reiða fram 10.000 krónur á mann fyrir hverja gistinótt í sólmyrkvavikunni. „En síðan náttúrulega hvetjum við fólk sem er innan almyrkvasvæðisins, til dæmis Reykvíkinga og aðra, til að njóta bara almyrkvans heima,“ segir hann. „Það verður gríðarlega mikill umferðarþungi hér á svæðinu, og það er alveg hægt að njóta sín eins vel á Reykjavíkursvæðinu og maður myndi gera víða á Vesturlandi.“ Frétt af mbl.is Búa sig undir tvær myrkar mínútur Einfari á Öndverðarnesi, þar sem almyrkvinn mun vara hvað lengst. mbl.is/Eyþór Umferðarstýring og sekúndukapphlaup Eins og áður sagði er búist við mikilli umferð um Vesturlandið í átt að Snæfellsnesi og Vestfjörðum, og því verður ýmsum tímabundnum umferðarúrræðum komið á. „Það verður einstefna um Snæfellsjökulsþjóðgarð, frá Búðum og að Hellissandi, og eins verður einstefna um Skarðsströnd í Dölum frá Fellsströnd að Skarðsströnd,“ segir Kristján. Þá verður veginum út á Öndverðarnes, vestasta tanga Snæfellsness þar sem almyrkvinn mun vara einhverjum sekúndum lengur en annars staðar á nesinu, lokað fyrir almennri umferð og rútur munu þess í stað ferja áhorfendur sólmyrkvans út á nesið. Frétt af mbl.is Stýra umferð og telja bílana Aðalatriðið að njóta Á Vestfjörðum verður einnig lokað fyrir veginn upp að Bolafelli og rútuferðir farnar í staðinn, Auk þess verður komið á einstefnu út á Látrabjarg, vestasta tanga landsins, yfir daginn, en þar mun almyrkvinn vara í allt að tvær mínútur og þrettán sekúndur. „En ég held að það séu kannski ekki margir sem ætla að keppast við einhverjar sekúndur,“ segir Kristján. „Aðalatriðið er bara að upplifa þetta, og njóta.“ Upplýsingar um aðgengi og söfnunarstaði á Vestfjörðum og Látrabjargi Upplýsingar um aðgengi og söfnunarstaði á Vesturlandi og Snæfellsnesi Tengdar fréttir Sólmyrkvi á Íslandi 2026 Landverðir búa sig undir mikinn fjölda Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Stjörnu-Sævar kominn í bjórinn Stýra umferð og telja bílana Kliðurinn af fuglakvakinu þagnaði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gerði dýrabúning úr dýnu frá Jysk Finnst þetta hafa verið smá fíaskó Sannfærandi Frakkar í undanúrslit Konráð og Kjarkur sigruðu 150 metra skeiðið Óheppnir að skora ekki fleiri Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Sama hvað það kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allir níu í fjögurra vikna gæsluvarðhald í viðbót Sóttu kaldan og blautan ferðamann Tjaldsvæðin fljót að fyllast fyrir austan „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Sendi mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Nýjast á mbl.is » Gerði dýrabúning úr dýnu frá Jysk Finnst þetta hafa verið smá fíaskó Sannfærandi Frakkar í undanúrslit Konráð og Kjarkur sigruðu 150 metra skeiðið Óheppnir að skora ekki fleiri Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Sama hvað það kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Lögregla óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum Skipti úr já-i í nei Innleiða þarf allt reglusafn ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Sendi mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk

Share this article