Innlent | mbl | 26.6.2026 | 18:11 Lögð á ráðin um myrkvamál Þessi hringmyrkvi sem birtist á himni 31. maí 2003 líkist þeim myrkva sem hörðustu sólmyrkvaaðdáendur bíða spenntir eftir 11. júní 2048. Mun almyrkvinn nú í ágúst vonandi gera þá bið bærilegri. mbl.is/RAX Setja bókamerki Undirbúningi í tengslum við almyrkvann 12. ágúst miðar almennt vel og hann er á mörgum stöðum á lokametrunum. Þetta kemur fram í minnisblaði stýrihóps Stjórnarráðsins um samhæfingu undirbúnings vegna almyrkvans en sex ráðuneyti senda frá sér sameiginlega tilkynningu um gang mála. Lagði hópurinn minnisblað sitt fyrir ríkisstjórnina á fundi hennar í síðustu viku en þar kemur ýmislegt fleira fram en framangreint. Tilmæli stjórnvalda eru að íbúar á vestanverðu landinu og suðvesturhorninu reyni að njóta þessa einstæða og sögulega atburðar heima eða í sínu nærumhverfi. Vestfirðir verða helsta álagssvæðið og er nú verið að stækka bílastæði við Látrabjarg, bæta þar salernisaðstöðu, afmarka bjargbrún, fjölga landvörðum og undirbúa umferðarstýringu og mögulegar lokanir. Skýrar áætlanir fyrir Vesturland Að líkindum mun vegurinn um Látrabjarg bera þá umferð sem reiknað er með um hann, mest fólksbíla og smærri langferðabifreiðar. Verður einstefna um veginn í aðdraganda myrkvans og einnig til baka að myrkva afstöðnum og verður akstur stærri ökutækja en með sætafjöldanum 19+1 bannaður á Örlygshafnarvegi og Rauðasandsvegi 12. ágúst. Á Vesturlandi liggja skýrar aðgerðaáætlanir fyrir vegna umferðar en reiknað er með að mannfjöldi verði þar helsta áskorunin þar sem búist er við því að þeir sem ákvörðun taka með skömmum fyrirvara um myrkvaför taki stefnuna á Vesturland fremur en firðina. Á Reykjanesi eru einkaflugvélar, drónaflug, hugsanleg samþjöppun fólks á vinsælum skoðunarsvæðum og álag á Reykjanesbraut helstu áskoranir en samkvæmt minnisblaðinu hafa lögregluembætti fengið heimild til að standa straum af nauðsynlegum útgjöldum vegna viðbúnaðar. Þetta hafi dregið verulega úr óvissu um aðkomu björgunarsveita og fjármögnun verkefna. Landhelgisgæslan klár í slaginn Almannvarnadeild ríkislögreglustjóra segir að búast megi við töluverðum umferðarþunga í þrjá daga fyrir atburðinn og tvo daga á eftir og verður Landhelgisgæslan með tvær þyrlur og áhafnir á báðar til reiðu í Reykjavík, þriðja áhöfn verður tæk til afleysinga komi til þess. Þá mun varðskipið Freyja lóna úti fyrir Vesturlandi og nýir aðgerðabátar Gæslunnar verða úti fyrir Snæfellsnesi og Suðurnesjum Samgöngustofa og Landhelgisgæslan telja mikilvægt að fólk kynni sér þær kröfur sem gerðar eru til farþegaflutninga á sjó og minna á að ekki er heimilt að bjóða upp á slíkt án tilskilinna leyfa. Minnt er á upplýsingagáttina um almyrkvann, island.is/almyrkvi . Hún verður uppfærð reglulega með nýjustu upplýsingum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Verðbólga hækki vegna utanaðkomandi áhrifa Norðmenn gera 10 breytingar Lögð á ráðin um myrkvamál Frakkar fresta Pride-göngu til hausts Tala látinna hækkar verulega Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Auglýsa eftir húsnæði undir brottfararstöð „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Breytingarnar of hraðar og aggressívar Verðbólgan eykst og mælist 5,2% Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Borgin viðurkennir veruleg mistök „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nýjast á mbl.is » Verðbólga hækki vegna utanaðkomandi áhrifa Norðmenn gera 10 breytingar Lögð á ráðin um myrkvamál Frakkar fresta Pride-göngu til hausts Tala látinna hækkar verulega Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur heitir að standa við stóru orðin Mótmæla frávísunarkröfu Skúla Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Borgin viðurkennir veruleg mistök „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda