Innlent | mbl | 8.7.2026 | 23:30 Býst ekki við því að hótelið rísi Leigubílar í röð fyrir utan Leifsstöð. „Það er margt annað sem vantar í þjónustu við flugstöðina,“ segir Steinþór. mbl.is/Eyþór Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Áform Isavia um að reisa 200 til 400 herbergja hótel á Keflavíkurflugvelli falla ekki vel að framtíðarsýn ferðaþjónustu á Reykjanesskaga. Þetta segir Steinþór Jónsson, eigandi Hótel Keflavíkur, í samtali við mbl.is. Áformin hafa vakið furðu meðal fulltrúa Reykjanesbæjar en Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs bæjarins, velti því upp á fundi í síðasta mánuði hvort Isavia væri komið út fyrir starfssvið sitt með uppbyggingunni. Frétt af mbl.is Spyr hvort þetta sé rétt forgangsröðun hjá Isavia Steinþór Jónsson, eigandi Hótel Keflavíkur. mbl.is/Eyþór Margt annað sem þegar vantar við flugstöðina Steinþór á þó ekki endilega von á því að Isavia láti verða af áformunum. „Þetta er ekki eitthvað sem hentar framtíðarsýn ferðaþjónustu á Reykjanesi, þar sem við erum að reyna að ná ferðamönnum til okkar í samfélögin bæði í kringum Bláa lónið og Reykjanesbæ sem og aðra bæi á Reykjanesi.“ Telur hann að Isavia hljóti að forgangsraða öðrum hlutum yfir það að reisa hótel ef efla á þjónustu á Keflavíkurflugvelli. „Það er margt annað sem vantar í þjónustu við flugstöðina, samanber bara aðkomu við flugstöðina varðandi brottfararfarþega og varðandi bílaleigur og fleira. Ég sé ekki fyrir mér að þeir geti látið verða af þessu.“ Frétt af mbl.is Ósáttur með byggingu risahótels Fagnar viðbrögðum bæjarins Steinþór hefur rekið Hótel Keflavík frá árinu 1986. Hann segir ferðaþjónustuna á svæðinu hafa byggt upp fjölda hótela sem anni nú eftirspurn eftir gistingu vel og því séu áform Isavia um að reisa risahótel einfaldlega ekki tímabær. Steinþór tekur undir með fyrrnefndum Halldóri um að Isavia sé með uppbyggingunni að fara út fyrir starfssvið sitt. „Ég tek undir það og það er gott að vita að við búum í bæjarfélagi sem er annt um fyrirtækin sem eru fyrir í bæjarfélaginu. Ég get ekki annað en fagnað því að það sé verið að hugsa um hag bæjarbúa og þeirra sem hafa byggt upp ferðaþjónustuna.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fá gefins pylsu ef henni er stolið Býst ekki við því að hótelið rísi Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn Hetjur láta helstu stjörnu Bandaríkjanna heyra það „Ef þetta gerist aftur þá verður þetta mun verra“ Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Áður óuppgefin varnartengd útgjöld farin að telja Straumurinn hlýtur að liggja austur Óvissa um leikskólastarf vegna þakleka Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Nýjast á mbl.is » Fá gefins pylsu ef henni er stolið Býst ekki við því að hótelið rísi Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn Hetjur láta helstu stjörnu Bandaríkjanna heyra það „Ef þetta gerist aftur þá verður þetta mun verra“ Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Árásarmaðurinn 16 ára: Tvær stúlkur særðar Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Biskup kennir í brjósti um skemmdarvargana Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk