Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Okkur finnst forgangsröðun Isavia ekki vera rétt“

Read Full Article →

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, vill að Isavia auki samstarf og samskipti við atvinnulíf í nærumhverfi Keflavíkurflugvallar áður en fyrirtækið ræðst í það að byggja hótel inni á flugvallarsvæðinu. Isavia hefur í huga að byggja flugvallarhótel með 200 til 400 herbergjum – í um 200 metra frá flugstöðinni og um fimmtán metra frá nýrri byggingu sem er á teikniborðinu. Áætluð lóðarstærð er 13.000 fermetrar með möguleika á 20.000 fermetra byggingu á fjórum hæðum. Lóðin er í dag nýtt sem bílastæði. Isavia fari í samkeppni við atvinnustarfsemi sem er nú þegar „Okkur finnst forgangsröðun Isavia ekki vera rétt,“ segir Vilhjálmur. Honum finnst að Isavia ætti frekar að leggja áherslu á samskipti við atvinnustarfsemina sem nýtir sér starfsemi flugvallarins, líkt og hótelin í grennd við hann. „Það er mjög erfitt fyrir hótelin að nálgast gestina í flugstöðinni út af aðgengismálum og öðru slíku. Nú ætlar Isavia að gera þeim enn erfiðara fyrir með því að byggja hótelið á bílastæðunum sem eru af skornum skammti og fara í samkeppni við þá atvinnustarfsemi sem er nú þegar.“ Fóru fram á fund bæjaryfirvalda og Isavia Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar fór fram á fund bæjaryfirvalda og Isavia vegna áformanna. Í bókun segir að þau veki upp spurningar um hvort félagið fari með áformunum út fyrir starfssvið sitt. „Við óttumst það að á meðan önnur hótel á svæðinu hafa ekki skýrt aðgengi að farþegunum þá muni þetta verða til þess að enn færri gestir komi inn í Reykjanesbæ, ef hótelið er staðsett á flugvellinum,“ segir Vilhjálmur.

Share this article