- What: IsMynt, a major Icelandic crypto exchange, shuts down due to regulatory issues
- Impact: Users lose access to their crypto services
Íslenska rafmyntakauphöllin IsMynt hefur hætt starfsemi eftir að félagið fékk ekki starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna samkvæmt nýju MiCA-regluverki Evrópusambandsins. Í tilkynningu á heimasíðu IsMynt segir að ákvörðun Seðlabanka Íslands leiði til þess að félaginu sé óheimilt að halda áfram starfsemi og að það neyðist því til að slíta þjónustu við viðskiptavini. IsMynt, sem var næst stærsta rafmyntakauphöll Íslands eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst, segir að félagið hafi frá ársbyrjun 2025 unnið með Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu að innleiðingu þeirra krafna sem MiCA- og DORA-reglugerðirnar gera. Félagið segist hafa innleitt fjölda nýrra kerfa, ferla og reglna og telji sig uppfylla allar kröfur regluverksins. „Þrátt fyrir þetta hefur Seðlabanki Íslands tekið þá ákvörðun að veita ismynt ehf. ekki starfsleyfi við upphaf innleiðingar reglugerðanna, frá og með 1. júlí 2026. Þessi ákvörðun veldur því að við þurfum að slíta starfsemi félagsins að beiðni Seðlabanka Íslands og stöðva alla þjónustu er snýr að þjónustu rafmynta.“ Félagið segir jafnframt að 30. júní hafi öllum inneignum viðskiptavina verið skipt yfir í íslenskar krónur til að koma í veg fyrir brot á MiCA-reglugerðinni. Samkvæmt viðmælendum Viðskiptablaðsins voru sumir viðskiptavinir ósáttir við að rafmyntaeignir þeirra hafi verið seldar og söluandvirðið lagt inn á þá af þeim forspurðum. Í því samhengi má nefna að markaðsverð Bitcoin var í kringum 60 þúsund dalir um mánaðamótin og hafði þá ekki verið lægra í um 20 mánuði. Verð á Bitcoin stendur í ríflega 62 þúsund dölum þegar fréttin er skrifuð. Sjá einnig Bitcoin ekki lægra í nær 2 ár Greint var frá því í lok júní að Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, hefði misst starfsleyfi sitt í Evrópu eftir að hafa ekki staðist skilyrði MiCA-reglugerðarinnar. Sjá einnig Hætta að þjónusta viðskiptavini innan ESB Seðlabankinn birti tilkynningu í byrjun mánaðar þar sem ítrekað var að óheimilt væri að veita þjónustu með sýndareignir án starfsleyfis frá og með 1. júlí 2026. Aðeins þeim aðilum sem hafa fengið starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna (Crypto-Asset Service Provider – CASP), samkvæmt lögum nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir, sé nú heimilt að veita þjónustu með sýndareignir. „Þjónustuveitendur sem ekki hafa fengið starfsleyfi skulu hætta þeirri starfsemi sem fellur undir MiCA og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að ljúka henni. Í því felst að þeir hætti þjónustu með sýndareignir, að öðru leyti en því sem nauðsynlegt er til að ljúka starfseminni með skipulegum hætti, stöðvi alla markaðssetningu og taki ekki við nýjum viðskiptavinum.“ IsMynt, Orange Gateway, Rafmyntasjóður Íslands og Monerium eru meðal þeirra félaga sem höfðu veitt þjónustu á grundvelli eldri skráningar en höfðu ekki fengið CASP-starfsleyfi samkvæmt MiCA við lok aðlögunartímabilsins. Monerium starfar þó áfram sem rafeyrisfyrirtæki og útgefandi rafeyristóka (e. Electronic Money Token) samkvæmt MiCA. Seðlabankinn hvetur viðskiptavini þjónustuveitenda sem ekki hafa fengið starfsleyfi til að grípa án tafar til nauðsynlegra ráðstafana, svo sem með því að flytja sýndareignir sínar til þjónustuveitanda með starfsleyfi eða í eigið stafrænt veski. Bankinn segist jafnframt munu fylgjast með því að aðilar án starfsleyfis hætti leyfisskyldri starfsemi og grípa til aðgerða ef henni verður haldið áfram eftir lok aðlögunartímabilsins. Ekki náðist í forsvarsmenn IsMynt vegna málsins.