Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ronaldo hefur kveðið stærsta sviðið

Read Full Article →

Spánn sló út Portúgal í 16-liða úrslitum HM með 0-1 sigri. Þetta va að öllum líkindum síðasti leikur Cristiano Ronaldo á HM. Hann gaf það út fyrir leik, sama hver niðurstaðan yrði. Ronaldo er 41 árs og verður 45 ára þegar að HM 2030 verður. Það mót verður reyndar á heimavelli því Spánn, Portúgal og Marokkó halda mótið. Það er ekki hægt að slá það út af borðinu að Ronaldo verði þar. En hvað sem því líður er Portúgal úr leik. Spánverjar fara áfram í 8-liða úrslit og mæta þeir sigurvegaranum úr leik Belgíu og Bandaríkjanna sem fer fram á miðnætti. Allt það helsta úr leiknum: Cristiano Ronaldo hefur leikið síðasta leik sinn á HM karla í fótbolta. Portúgal mátti þola 0-1 tap gegn Spánverjum í 16-liða úrslitum. Mark Merino var nóg og þeir varamennirnir Ferran Torres og Merino skoruðu markið í sameiningu. Merino var pollslakur þegar hann komst einn gegn Diego Costa og skoraði með vinstri fótar skoti á nærstöngina. Spánverjar hafa enn ekki fengið mark á sig á mótinu í fimm leikjum og er það met á HM. Portúgalar áttu skot í slá þegar skot Nuno Mendes eftir hornspyrnu fór í hana og út. HM-ferill Cristiano Ronaldo Heimsmeistaramót: Sex (2006, 2010, 2014, 2018, 2022 og 2026) Leikir: 26 Leiknar mínútur: 2.116 Mörk: 11 Stoðsendingar: Tvær HM 2006 í Þýskalandi Sex leikir Eitt mark Portúgal hafnaði í fjórða sæti HM 2010 í Suður-Afríku Fjórir leikir Eitt mark og ein stoðsending Portúgal féll úr leik í 16-liða úrslitum HM 2014 í Brasilíu Þrír leikir Eitt mark og ein stoðsending Portúgal féll úr leik í riðlakeppninni HM 2018 í Rússlandi Fjórir leikir Fjögur mörk Þrenna gegn Spáni Portúgal féll úr leik í 16-liða úrslitum HM 2022 í Katar Fimm leikir Eitt mark Portúgal komst í átta liða úrslit HM 2026 í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada Fjórir leikir Þrjú mörk

Share this article