Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Portúgalar mæta Spánverjum í 16-liða úrslitum

Read Full Article →

Portúgalar unnu Króata 2-1 í leik liðanna í 32-liða úrslitum í Toronto í Kanada í kvöld. Ivan Persic skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Króatíu á 53. mínútu leiksins. Cristiano Ronaldo svaraði því marki með marki fyrir Portúgala tæpum tíu mínútum síðar. Liðin voru því jöfn 1-1 þegar hefðbundnum leiktíma lauk. Síðustu mínútur leiksins voru hádramatískar. Þegar komið var fram í uppbótatíma skoraði Goncalo Ramos annað mark Portúgala á 94. mínútu. Mario Pasalic skoraði svo jöfnunarmark á 103. mínútu leiksins sem var dæmt af því hann var rangstæður. Króatar halda því sársvekktir heim á leið af HM. Portúgalar komast því áfram í 16-liða úrslit og eiga næst leik við nágranna sína Spánverja á mánudag.

Share this article