Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lögðu hald á um 800 kannabisplöntur á þremur stöðum

Read Full Article →

Sex voru handteknir, grunaðir um aðild að umfangsmikilli kannabisræktun á þremur stöðum sem lögregla upprætti. Hald var lagt á tæplega 800 plöntur. Nýlega var greint frá því að ræktun 200 kannabisplantna hefði verið stöðvuð í Reykholti í Bláskógabyggð. Lögregla gerði auk þess húsleit í sumarbústað í Kjós í lok júní þar sem virðist hafa verið ræktun um nokkurn tíma. Þá uppgötvaðist ræktun einnig á Reykjanesskaga. Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta við fréttastofu. „Það var ráðist í húsleitir á nokkrum stöðum og lagt hald á kannabisplöntur á þremur, tæplega 800 í heildina.“ Lögregla hefur einnig lagt hald á tilbúin fíkniefni. Rannsakað er hvort ræktunin tengist skipulagðri brotastarfsemi. Vísir greindi frá því að lögregla og sérsveit hefðu ráðist í handtökur á Vesturlandsvegi undir Esjunni 25. júní. Grétar segir að þar hafi tveir verið handteknir í tengslum við kannabisræktunina sem stöðvuð var í Kjós. Þau handteknu eru öll af erlendum uppruna, bæði karlar og konur. Enginn er í gæsluvarðhaldi.

Share this article